Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
laugardagur, desember 31, 2005
  Gleðilegt ár elskurnar mínar...
Vitiði... Ég held að ég hafi aldrei lifað annað eins ár...
Ég treysti mér ekki til að fara yfir þetta allt ennþá, en ég held að þetta ár hafi verið í senn það besta og versta á minni ævi.

En ég er mjög kátur með þetta ár og það horfir allt til batnaðar í mínu lífi.
Hóf árið allt of þungur og þunglyndur, með kólesterólið langt yfir auðmælanlegum mörkum... Lýk því fjórtán kílóum léttari, sálin endalaust léttari, kátur og glaður, opinn og með kólesterólið á allt öðrum stað en áður.

Ég er búinn að kynnast henni Dagbjörtu dóttur minni miklu betur en áður og það er að kvikna á áhugamálum sem ég vissi ekki að ég hefði. Dóttir mín er töfraland sem ég hélt að ég þekkti en virðist þó enn bara vera að sigla eftir ströndum.

Hljómsveitin er að gera góða hluti og sjálfstraustið hjá mér er allt að batna.

Það er svo mikið sem ég hef að þakka fyrir í ár. Endalaust af fólki sem hefur verið gott við mig og stutt mig þegar ég hef átt sem erfiðast. Ef ég færi að byrja að telja fólkið upp myndi ég ekki hætta. En þakka þér fyrir Pálína fyrir að hafa reynst mér besti vinur sem ég hefði getað átt. Birna og Laila eiga líka svo stóra hönk upp í bakið á mér að ég veit ekki hvað...

Eva, sem ég kynntist nú í sumar, hefur með ótrúlegri þolinmæði staðið við bakið á mér og umborið ruglið í mér og barið á þunglyndinu mínu eins og með teppabankara. Ég er ekkert smá kátur að hafa kynnst þessari töfrastúlku.

Vá... eh... ég bara get ekki klárað þetta almennilega, þetta myndi ekki taka neinn enda.

En mikið af breytingum framundan... Samkvæmisdansa skal læra, söng, frönsku og fleira. Svo hugsa ég mér gott til glóðarinnar í langskólanámi líka... :D

Ég er að stíga inn í algerlega ókannað land í mínu lífi og nú verður þetta bara tekið eitt skref í einu án nokkurs ótta.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
föstudagur, desember 30, 2005
  Jólaplata Hrauns komin á vefinn
Hæ krakkar :D
Þeir sem ekki hafa enn fengið Jólaplötuna geta nálgast öll lögin á www.hraun.tk undir útgáfa!
Svo eru fínar nýjar myndir af Hraun á tónleikum, æfingum og upptökum undir myndir.
Gleðileg jól og takk fyrir allt það góða á liðnu ári elskurnar mínar :D
Farinn að sofa.
Ykkar vinur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Svona til viðbótar :D
Fyrir ykkur sem ekki hafið enn komist í að skoða nýju íbúðina mína...
Þá má sjá myndir af henni á þessum myndum hér sem Stebbi tók við upptökur Jólaplötunnar.

Svo eru hér myndir frá jólatónleikapartýballi Hrauns og æfingum á Jólaplötunni ógurlegu :D.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, desember 29, 2005
  Verðurðu fúll...?
Mér finnst alltaf svolítið erfitt að díla við það þegar fólk spyr mig: "Verðurðu fúll ef ég geri/geri ekki X?"

Ég vil ekki að fólk Geri/sleppi að gera hluti vegna þess að ég verði fúll ef þeir eru gerðir eða ekki gerðir...

Þegar löngun manns og óskir eru ljósar á maður ekki að þurfa að kúga fólk til að fara eftir þeim. Þ.e.a.s. Fólk getur bara gert það upp við sjálft sig hvort það gerir eða gerir ekki hlutinn sem það veit vel að maður vill eða vill ekki að sé gerður. Satt að segja finnst mér viss tilfinningaleg "blackmail" eða kúgun eiga sér stað þegar maður hefur gert skoðun sína ljósa. "Mig langar að þú gerir X" og viðkomandi spyr mann: "Verðurðu fúll ef ég geri ekki X?" Auðvitað verð ég ekki fúll, en þarna er verið að varpa ábyrgðinni á ákvörðunum yfir á mig, sem gerir mig fúlan. Þarna er í raun verið að setja fram eftirfarandi: "Sko, ég hef þína blessun til að gera ekki X. Enda myndirðu aldrei reyna að kúga mig til að gera X með því að segja að þú yrðir fúll ef ég gerði það ekki. Með því að fá þig til að afneita fýlu þinni hef ég keypt mér einhvers konar friðþægingu... Húrra! Ég er off the hook og þú þarft að díla við tilfinninguna að þú sért óréttlátur og heimtufrekur."

Tökum dæmi:
Jón og Gestur eru vinir.
Jón vill endilega fá Gest í heimsókn í kaffi.
Jón býður Gesti í heimsókn, en Gest langar að spila tölvuleik heima hjá sér. Mjög eðlilegt ástand.
Jón: Viltu koma í heimsókn og fá þér kaffi með mér?
Gestur: Jaaa... neeei, ég er eiginlega svolítið upptekinn. Ertu nokkuð fúll yfir því að ég komist ekki?
Jón (vonsvikinn, en þó vill hann ekki segjast vera vonsvikinn og vera leiðinlegur við Gest): Neeeinei... ég er fínn sko... ég bara dúlla mér eitthvað í kvöld.

Skrans! Stopp! Þarna notar Gestur fýluspurninguna til að varpa sinni eigin sektarkennd yfir á Jón, sem allt í einu þarf að afsanna meinta heimtufrekju sína og tilætlunarsemi. Jón er allt í einu óbeint sakaður um að vera yfirgangssamur og frekur. Þetta er alls ekki sanngjarnt.

Betra hefði verið að þessar samræður hefðu farið svona fram:
Jón: Viltu koma í heimsókn og fá þér kaffi með mér?
Gestur: Jaaa... Neeei... ég er eiginlega upptekinn í kvöld, er í einhverju letikasti. Getum við hittst á morgun í staðinn? Ég vil alls ekki vera leiðinlegur við þig sko. Bara ekki í stuði í kvöld.
Jón (vonsvikinn, en þó ekki negldur upp við vegg með sektarkennd Gests): Ekkert mál maður. Sjáumst bara á morgun.
Jóni líður mun betur eftir samræðurnar og Gestur er ekki fríaður, heldur þarf að eiga það við sig að vera latur. Það er hans mál.

Mér finnst s.s. spurningin "verðurðu fúll ef ég geri/geri ekki X?" óréttlát og í raun nokkurs konar tilfinningakúgun, leið til að láta manni líða illa yfir því að hafa löngun/væntingu. Fólk getur bara sullast til að fylgja sinni sannfæringu og ef það veit að það er að gera öfugt við það sem maður vill með því að gera/gera ekki X á það síst af öllu að reyna að fá blessun manns fyrir breytni sinni á þann hátt. Það veit yfirleitt vel að maður er vonsvikinn og á ekkert með að neyða mann til að afneita því og kyngja eigin tilfinningum.

Bara smá pæling...
Enginn á að taka þetta nærri sér... ókei?
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Elliott búinn...
Þetta var gaman... tvö lög... rosalega stressaður og klúðraði öllu, en krádið var notalegt... :D

Var samt full berskjaldaður, þekkti eiginlega engan í salnum, eini bíllykillinn minn týndur í snjó einhvers staðar, kærastan víðs fjarri... Algjör mínus, svona absolut þunglyndi... Kannski bætti það bara þunglyndisperformansinn í Waltz no 2 og Everything Reminds me of her...

Allavegana... tvö ný lög komin fyrir Hraun að taka :)

Kominn heim, dóttirin allt of sein í háttinn og fótboltamót á morgun með engan bíl til afnota... sjæse...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Elliott Smith á Göken í kveld
Hæ krakkar...
Bara að láta ykkur vita að ég mun taka tvö lög á minningartónleikum um Elliott Smith í kvöld á Gauk á Stöng.

Hlakka til að sjá eitthvað af ykkur...

Sko sko nei nei, sjáið þið sei sei :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
miðvikudagur, desember 28, 2005
  En nóg um það...
...Það verður nóg að stússa í vetur hjá Svabbalingnum...
Úff...
Ég ætla að læra fernt meðfram vinnunni...
A: Frönsku í Mími Símenntun
B: Samkvæmisdansa í Dansskóla Jóns Péturs og Köru
C: Söng í Söngskóla Reykjavíkur
D: Fótbolta...

Dýrt, tímafrekt og suddaskemmtilegt... Þetta ætti samt ekki að vera mikið mál fyrir utan stöku pössun sem gæti þurft að redda... Mig langar samt að vera áfram besti pabbi sem ég get orðið, svo það þarf að skoða þessi mál vel og vandlega...

Svo fórum við Eva í borðtennis áðan.
Það var mjög gaman.

Hlakka svo til að komast heim úr vinnunni í hlýju og notalegu íbúðina mína... Til ektakvinnunnar...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Blaðamennska...
Sem blaðamaður hef ég nokkuð ákveðnar hugmyndir um hvað mér finnst í lagi og hvað mér finnst ekki í lagi, hvað eru góð og hvað eru vond vinnubrögð.

Mér finnst í lagi að fylgja af harðfylgi fréttum þar sem einhver opinber persóna liggur undir grun um ólöglegt eða ósæmilegt athæfi. Opinber persóna verandi aðili sem er kannski embættismaður, opinskár álitsgjafi, virkur þátttakandi í þjóðfélagsumræðu, poppstjarna sem notar fjölmiðla mikið og veitir viðtöl og slíkt og fólk á þeim kaliber. Til opinberra persóna tel ég ekki maka opinberra persóna, nema þeir séu líka "opinberar persónur" á sinn eigin hátt. Venjulegt fólk á ekki að eiga á hættu að vera dregið fram í sviðsljósið með hluti sem koma öðrum ekki við. Harðsvíraðir glæpamenn og t.d. nauðgarar, dópsalar og handrukkarar finnst mér velkomnir í sviðsljósið, svo framarlega sem þeir hafi hlotið sinn dóm.

Hlutir sem koma öðrum ekki við eru t.d. afbrigðileg kynhegðun, svo framarlega sem hún sé lögleg, eiturlyfjavandi eða geðsjúkdómar.
Hlutir sem koma öðrum við eru t.d. ofbeldi, ofstæki, glæpir, afreksverk og fleira.

Mér finnst gersamlega óviðeigandi að fréttir séu ákveðnar og síðan fiskuð inn í þær ummæli fólks til að gera þær að einhverju meira... Jafnvel skálduð. Brynja skáldaði t.d. ummæli upp í Gumma í frétt sinni í gær, ef marka má kappann. Það voru léleg vinnubrögð að mínu mati.

Fréttamennska sem einkennist af meinfýsi finnst mér líka gersamlega tilgangslaus og ekki fréttir.

Ég man til þess að ég sendi einu sinni fréttatilkynningu um styrktartónleika sem ég hugðist halda til ónefnds snepils. Ég sendi með henni símanúmer hjá talsmönnum allra hljómsveitanna sem hugðust spila og tók sérstaklega fram að ég vildi ekki vera sérstaklega tengdur við styrktartónleikana, því þetta snerist alls ekki um mig sjálfan. Blaðamaður snepilsins hringdi í mig og endaði á því að skálda upp í mig ummæli eftir að ég bað hann um að tala við einhvern af hinum æðislegu ungu tónlistarmönnum sem þarna voru að fara að spila. Svo birti hann mynd af mér með fréttinni í þokkabót. Þetta finnst mér sama tegund lélegra vinnubragða.

Mér finnst það ansi lélegt að skálda upp fréttir í gúrkutíð og láta saklaust fólk verða fyrir barðinu á lélegum vinnubrögðum.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
þriðjudagur, desember 27, 2005
  DV alltaf hressir...
Jæja... Samsæri bara í Júróvisjón með fjórum flennistórum myndum af Hraun...

Brynja á DV hringdi í mig snemma morguns um daginn og fór eitthvað að reyna að spjalla við mig... Ég fann strax að hún var einmitt að fiska þessa frétt: "Samsæri í Júróvisjón" eða "Dómaraskandall"...
Nennti ekki að taka þátt í því svo ég sagði henni að ég væri syfjaður og þreyttur eftir kvöldvakt (sem ég var)...

Hringir þá hin sjálfskipaða "hnakkamella" (er þetta ekki annars örugglega hún?) í Gumma gítar og veiðir upp úr honum eitthvað rugl til að prenta... Skáldar síðan fyrirsögn ofan á allt saman, gersamlega úr samhengi við samtalið við strákinn.

Eiturhresst... Eins og eitur...
En hvað ég ber mikla virðingu fyrir svona fréttamennsku. En er það ekki bara dæmigert fyrir DV að búa til fréttir úr engu? Svona dæmalaust hresst :D

Brynja... ég elska þig...

Nema hvað: Ég er búinn að finna nýja leið til að vera fljótari í vinnuna.
Þegar ég legg af stað tek ég með mér fótbolta og rek hann á undan mér eftir gangstéttinni eða götunni ef hún er tóm. Með því móti er ég langtum fljótari á staðinn, skemmti mér vel og hleyp alla leiðina og öðlast um leið betri skilning á fótbolta, svo ég geti veitt Dagbjörtu betri stuðning í sínu áhugamáli...

Er maður ekki rokkpabbi þessa dagana?

En frekar vildi ég vinna sem klósettvörður á Hlemmi en að skrifa fréttir eins og "Samsæri í Evróvisjón..." Guð hvað ég er feginn að mín lægstu móment í blaðamennsku eru fyrirsagnir eins og: "Nýr (setjið inn nafn bíltegundar hér) afhjúpaður við hátíðlega athöfn í (setjið inn nafn verslunarmiðstöðvar/bílaumboðs hér...)"

Ég vona bara að þetta bitni ekki illa á Hraun. En eins og þeir segja: "Any Publicity is good publicity..." En bara svo það sé á hreinu. Við báðum ekki um þetta og þetta er algerlega í minni óþökk. Mér dettur ekki í hug að dissa Júróvisjón þó mér finnist keppendahópurinn í ár með því klisjukenndara og normaliseraðra sem ég hef hingað til séð. Það er bara smekkur dómnefndarfólks og ekkert út á hann að setja.

Þið vitið það allavegana, næst þegar Brynja frá DV hringir, segist vera kvefuð eða þreytt eða eitthvað. Bara hundsa þetta fólk, ekki gefa því séns á að vitna neitt í ykkur.

Annars er ég ótrúlega þakklátur henni Pálínu, elsku bestu barnsmóður minni og vinkonu, fyrir að hafa skýrt málið á snilldarhátt fyrir Dagbjörtu. DV er nefnilega eins og Rita Skeeter í Harry Potter... Dagbjört fattaði strax samlíkinguna og kinkaði kolli með skilningsbros á vör. :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Hressi gaurinn...
:)
Gaman í kvöld... Fór á "pöbbinn með strákunum..."
Labbaði síðan heim með söknuð í hjarta... en samt mjög sætan söknuð... :)

Hitti fullt af skemmtilegu fólki... M.a. gamlar vinkonur mínar úr MH og Sveinbjörgu frænku sem bara æðislegust og allt of sjaldan sem ég hitti hana... :)

Eva... ég hvet þig til að kynnast Sveinbjörgu... Hún fattar margt um mig sem ég fatta ekki sjálfur...

Gvöð hvað ég er þreyttur... ætla í háttinn...

Sund í fyrramálið og svo kaffi á tíu dropum í hádeginu.

Mmmm... kaffi...

Bestu kærleikskveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
mánudagur, desember 26, 2005
  Grasekkill...
Jæja...
Eva farin norður á Blönduós... Kallinn bara grasekkill í þrjá daga... Vildi óska að ég gæti farið með og tjúttað á "dósinni" en ég hef mínum skyldum að gegna hér.
Einhverjar góðar hugmyndir um eitthvað að gera á daginn eru vel þegnar, því ég er á kveldvöktum... Súper...

Hrikalega væri ég samt mikið til í að fara í göngutúr með henni í þessum fallega jólasnjó....

Annars voru jólin fín. Fjölskylda Evu er frábært lið og gaman að kynnast þeim. Tóku gamla manninum opnum örmum... Ég ku víst hafa ruglað eitthvað í þeim og þykir það leitt, en maður er víst ekki eins og fólk er flest, svo það er ekki við öðru að búast...

Nú verður tekið til við líkamsrækt og hreyfingu sem aldrei fyrr...
Ekki af því ég hafi þyngst, heldur þvert á móti, til að fagna því að ég er bara hress í stöðugum góðum fílíng og ætla bara að koma mér í súper gott form...
Ég hef aldrei verið í fótbolta eða neinu svoleiðis, svo ég hef helvíti mikið forskot á ykkur öll með geðveiku fóta/bak/hnjá/eyrna/axla-meiðslin. Nú kemur minn bara sterkur inn að koma á fertugsaldurinn...

Já... Þið heyrðuð rétt... Ég nálgast nú óðfluga þrítugt... Á tæpan mánuð eftir í afmælið.

Er búinn að sækja um í Söngskólanum og ætla að sjá til hvort þeir þora að taka við mér þar og laga örlítið til í kassanum... :)

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
laugardagur, desember 24, 2005
  Gleðileg jól öllsömul
Kæru vinir,
þetta er búið að vera rosalegt ár... eitt það undarlegasta í mínu lífi.
Mikið búið að vera að gerast og rosalega margt nauðsynlegt.

Nú koma jólin, jibbí jei :D
Þeir sem fengu Jólaplötu Hrauns mega endilega líta á hana sem jólakort/jólagjöf frá mér, enda er vinnan á bak við hana frá minni hendi u.þ.b. 90 mannstundir, eða rúmur hálfur mánuður af dagvinnu þegar allt er saman talið, það sama gildir um aðra hljómsveitarmeðlimi og Stefán.

Þeir sem ekki hafa enn fengið plötuna mega kenna öðru af tveimur um: Ég komst ekki í það að koma henni til ykkar vegna anna/fjarlægðar eða að ég gleymdi ykkur og það var ekki illa meint.
Í versta falli komið þið til mín og ég brenni fyrir ykkur eintak ókei?

En nóg um það.
Ég er ástfanginn og ég er í jólaskapi og ég er að fara að eiga alveg æðisleg jól...
Hlakka til að heimsækja fjölskyldu Evu um Jólin, þó ég kvíði því vissulega pínulítið.

Stórt jólaknús,
Svavar Knútur Jólabarn

Munið eftir síma 907-2020 fyrir fólkið í Pakistan gott fólk.
Og hlustið á Höldum Jól :)
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
föstudagur, desember 23, 2005
  Fyrsta Bona Fide Jólalagið...
Hæ,
Mig langaði að deila með ykkur fyrsta bona fide jólalaginu sem Hraun gefur út.

Gjörið svo vel kæru vinir.

Lagið heitir Höldum Jól

Textinn er svo hljóðandi:

Glatt er geð í desember
Gnægtaborðin svigna
Njótum við þá nálgast fer
Nóttin ljúfa og lygna

Enginn grætur allt er hljótt
Yndislega jólanótt
Ljúfu börnin liggja í sæng
Lúra undir móðurvæng

Höldum jól með hreinni sál
Hjálpum þeim sem líða
Kveður heimsins Kuldabál
Kærleikshöndin blíða

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, desember 22, 2005
  LOKSINS! Jólaplötuupptökum lokið!
AHHH!!! Loksins!
Byrjaður að brenna jólaplötu Hrauns 2005. Hún ber nafnið Höldum jól!

Hresst! Bilað góð plata, betra en allt fyrra efni okkar :D

Jólatónleikar á Rósenberg í kvöld. Allir velkomnir.

Uppgefinn...

Hlakka til að sofa aðeins á Aðfangadag...

Sjáumst í kvöld.

Bestu Kveðjur,
Svabbinn


[ 0 ]
fimmtudagur, desember 15, 2005
  Vangaveltur...
Við þurfum mörg á því að halda að einhver þarfnist okkar, að okkar sé saknað, að okkar sé þörf.
Það er svo yndislegt þegar manns nánustu biðja mann um eitthvað, þó það sé ómerkilegt, eitthvað smáræði... Manni líður svo vel þegar maður veit að maður getur þó veitt viðkomandi eitthvað, hversu smátt sem það er, því það staðfestir á vissan hátt þýðingu manns fyrir viðkomandi...
"Pabbiii... geturðu gefið mér bita af osti... Ég er pínu svöng..." og "Geturðu breytt yfir mig pabbi?" eru setningar sem bræða mig á kvöldin... "Ástin mín, ég er alveg ómöguleg, geturðu hitað handa mér te/skotist út í búð og keypt appelsín/nuddað á mér tærnar?" er líka svona setning... Þegar ég fæ svona setningar í eyrun mín þá bráðna ég eins og súkkulaði í gluggakistu á júlídegi.

Ég veit fátt verra heldur en þegar mínir nánustu virðast ekkert þurfa og ég get ekkert boðið þeim. Engar óskir eða væntingar koma frá þeim, engin smáræði sem maður getur bjargað þeim með, ekki einu sinni faðmlag... Þá finn ég fyrir tómleika...

Það er mörgum ofboðslega mikil grundvallarþörf að vera einhverjum einhvers virði og að einhver þarfnist þeirra. Og það er erfitt að fá það á tilfinninguna að maður sé óþarfur, jafnvel þegar maður veit að manns nánustu eru viðkvæmir og þurfa eitthvað. Það er verst í heimi ef þeir biðja mann ekki um neitt á slíkum stundum.

Ég býst við að ég sé einn af þessu fólki... Kannski er þetta óöryggi eða ósjálfstæði, en fjandakornið, svona er ég bara... Ef þetta er einhver galli, þá verður það bara að hafa það. Hann fer lítið úr þessu...

Annars er ég bara að pæla... Slaka bara á krakkar mínir...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Jólaplötuupptökur hafnar...
Hó hó hó!
Jólaplötuupptökur hófust óvenjusnemma í ár, með því að við fengum lánaða glæsilega interface græju frá Jóni Kjartani í Tónabúðinni. Öðlingur!!! Undirritaður, Jón Geir og Loftur settust síðan í góðum fílíng, mauluðu saltpillur og tóku upp grunna að sjö af ellefu lögum sem þarf að taka upp fyrir jólaplötuna.

Nú tekur við all rosaleg heimavinna!!! Þeir sem hafa áhuga á að leggja fram raddir sínar í jólakórinn mega hafa samband við mig eða bara kíkja í heimsókn á sunnudags-, mánudags-, eða þriðjudagskvöld.

Ah... Það er rosalega gott að vera farinn að vinna loksins í jólaföndrinu.
Verð að vísu að játa að ég er eins skítblankur og menn verða... Svo jólagjafir bæði til fjölskyldu og vina verða á Tiger-verðskalanum... (fyrir utan vinnuna sem fer í jólaplötuna...) :D

Rallaræ!
Nú þarf ég að fá lánað eitt stykki hljómborð og við Hjalti og Stebbi, Gummi, Loftur og Jón Geir setjumst, ásamt ómældum fjölda snillinga yfir jólaplötuvinnsluna með smákökur og mjólk.

Er að skrifa niður parta fyrir blásturshljóðfæri as we speak...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Jólabarn


[ 0 ]
miðvikudagur, desember 14, 2005
  Jólin kooomaaaaa...
Jæja... jólaplötuupptökur í kvöld...
Hey, á einhver svona fjögurra inpútta M-audio græju sem hann getur lánað mér?
Það myndi gera allt auðveldara...

Hvað segiði annars? Ekki allir jólakátir?

Ég er kominn með ljótan lítinn jólakött á heimilið sem ég er að passa fyrir Lilju vinkonu. Það er gaman, en skrýtið, því hann vælir undarlega og er afar matvandur. En kosturinn er að hann er alltaf úti og skilur eftir sín stykki þar, í barnavögnum og sandkössum...

Eva er lasin... Ég er alveg í kerfi. Mig langar svo til að gera eitthvað fyrir hana svo henni líði betur, en ekkert virðist vera í stöðunni... Kannski er ég svona ímyndunaraflslaus. Eða á maður bara að láta hana vera? Leyfa henni bara að dvelja í faðmi fjölskyldunnar og halda sig til hlés á varamannabekknum með hvatningarorð á vörum... Það er pínu leiðinlegt að vera í þeirri aðstöðu, en satt að segja held ég að það sé það eina í stöðunni í bili...

Langar samt svo að geta gert eitthvað fyrir hana... Er með ferlega samúðarverki... Sjáum til...

Jæja... ég get allavegana hangið yfir jólaplötunni með strákunum í kvöld og verið duglegur...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, desember 13, 2005
  Svona fréttir koma mér í jólaskap!
Þetta kalla ég að vera í jólaham!
Svabbi


[ 0 ]
  Vonbrigði Aldarinnar!!!
Jæja krakkar mínir,
Hraun fer ekki til Aþenu þetta árið. :/
Fjandakornið.
Get ekki neitað því að þetta eru pínu vonbrigði, enda var lagið þrusugott og smitandi, en það þýðir ekkert að vola og væla, við reynum aftur að ári með enn betra þjóðlegt gleðipopp. :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
sunnudagur, desember 11, 2005
  Góð helgi að baki...
Búið að vera rosa gaman undanfarna daga...
Fimmtudagurinn fór í rosalega skemmtilega æfingu með Hraun. Jólalögin fyrir Jólaplötuna voru spóluð í gegn, þar á meðal eitt stórkostlega skemmtilegt sem ég hlakka til að eyða tveimur dögum í að taka upp... ;)
Ég var búinn að gleyma því að við ættum að spila á föstudaginn á jólahlaðborði kennara við Kársnesskóla, en það reddaðist og við tókum alveg gríðarskemmtilegt gleðigigg og skiptumst meira að segja allir á hljóðfærum í endann. Hef ég sagt ykkur hvað ég elska Hraun? Hraun er besta hljómsveit í heimi! Og ég fokkíng meina það...
Erfiður gærdagur var þess virði... byrjaði illa, leit illa út um miðbikið, en leystist vel og endaði stórkostlega hjá okkur Evu. Jólahlaðborð Innlendu deildarinnar, Eva kynnt fyrir samstarfsfólkinu sem tók henni bara mjög vel. Svo var haldið á jólaglögg, þar sem það eina sem sló skugga á annars gott kvöld var hreint óborganlega vondur bjór... :D
En það kemur fyrir besta bjór að vera vond... nei annars... nei... Þetta var bara vondur bjór...

Og svo vinnur maður bara sunnudaginn eins og auli. Rosa gott að vera til bara :D
Oh hvað mér líður vel í dag. Ég held að ég sé bara hamingjusamur... Það væri bara æðislegt ef svo væri. Ég er að vinna rosa mikið í sjálfum mér, takandi framförum á hverjum degi og brjótandi af mér eldgamla hlekki sem hafa verið að flækjast fyrir mér. Búrið er að brotna og lífið blasir við.

Ég elska þetta... Ég elska lífið í dag.

Er að vinna í jólalagi fyrir jólaplötuna... Gæti verið flott... sjáum til.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, desember 08, 2005
  Ég vildi óska...
...Að ég gæti verið aðeins kaldlyndari og grimmari, gefið svolítið skít í það hvernig öðrum líður og hvaða áhrif mínar ákvarðanir hafa á aðra. Það myndi gera líf mitt ótrúlega mikið auðveldara.

...Að ég hefði það í mér að vera stundum dálítið montinn og ánægður með sjálfan mig. Að ég gæti leyft sjálfum mér að vera hamingjusamur og kátur. Undanfarið hef ég verið að kveikja á því að það virðist sem það sé harðvírað í mig að berja sjálfan mig niður í hvert skipti sem mér gengur vel eða eitthvað gott er að gerast. Þessu þarf að vinna í... Hinir hógværu og lítillátu munu ekki erfa jörðina... Synir hinna gráðugu munu erfa jörðina.

...Að ég hefði kjark til að segja Nei eða Stopp við fólk stöku sinnum.

...Að ég væri ekki alltaf að biðjast afsökunar á tilfinningum mínum, sársauka, draumum og þörfum. Að ég væri ákveðnari í samskiptum við fólk og skýr á mínum kröfum.

...Að ég þorði meiru, gerði meira, drifi lengra... Ég veit að ég get svo margt, en ég geri það ekki... Mig langar að gera meira.

...Að ég væri betri pabbi, hefði meiri orku til að gefa dóttur minni þá hvatningu og aðhald sem hún þarf.

...Að heimurinn væri bara aðeins sanngjarnari við okkur öll... Djöfull myndu margir fá á baukinn ef svo væri... Djöfull veit ég um marga sem eiga skilið eld og brennistein fyrir það sem þeir hafa gert öðrum. Og djöfull veit ég um marga sem mætti alveg hætta að rigna þessum sama eldi og brennisteini yfir...

Ég get lagað alla þessa hluti nema einn.
Ég get bara breytt mér, breytt því hvernig ég umgengst heiminn og þá sem í honum búa.
Kannski það muni gera allavega smá dæld í heiminn eins og hann er...

Ég held að það verði nýársheitið mitt í ár.
Ég ætla að verða sterkari persóna, taka á mínum innri djöflum af sömu hörku og þeir eru búnir að vera að taka á mér undanfarin ár. Baráttan er þegar hafin og þeir munu fara halloka. Ég mun rísa upp úr svaðinu mínu og blómstra, þótt seint sé. Það dugar ekkert að óska sér. Maður verður að teygja sig eftir því sem maður vill. Og eina leiðin er að taka sjálfan sig í gegn.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Tveir hlutir...
Númer eitt:

Ég gæti ekki verið meira sammála Svarthöfða dagsins í DV.
:D
Hvert mun ég snúa mér til að hlýða á gæðaútvarpsefni og andlega ögrandi dagskrárgerð nú þegar Ásgeir Kolbeins er farinn af FM 957?


Númer Tvö:

Elísabet Thorlacius?
Horfði framan á Hér og nú: "Elísabet Thorlacius opnar nærfataskúffuna sína..."
Hver er Elísabet Thorlacius? spurði ég sjálfan mig...
Ætlaðist í fáfræði minni til þess að Hér og nú gætu varpað einhverju ljósi á þennan leyndardóm...
En þótt Elísabet Thorlacius sé falleg og án efa bráðgáfuð og æðisleg stúlka, þá virtist blaðamanni Hér og nú vera alveg sama. Fjórar myndir, samtals um fjörutíu orð, sem höfðu ekkert að gera um manneskjuna Elísabetu Thorlacius. Það eina sem ég veit um hana er að þessi stúlka á fullt af nærfötum, vann í nærfatabúð og hefur komið til London.
Þetta er príma blaðamennska, fyrsta flokks, skilja okkur eftir hungruð í meira um þessa dularfullu stúlku sem ég veit engin deili á en kom bara svona hit'n'run í blaðinu.

Hún er samt með ágætis líkama, það þarf ekkert að kvarta yfir því... Þetta var bara eitthvað svo dásamlega shallow blaðamennska... Á ekki að kynna manneskjuna aðeins fyrir manni, fjallar þetta ekki um fólk?

Ne'er mind...
Ég er farinn að borða...


[ 0 ]
miðvikudagur, desember 07, 2005
  Ætli þetta ál verði frá Reyðarfirði?
Alcoa Awarded Contract to Produce Aluminum Castings for Tactical
Tomahawk Missile Program

PITTSBURGH--(BUSINESS WIRE)--Dec. 1, 2005--Alcoa (NYSE:AA) announced
today that its Alcoa Forged Products and Aluminum Castings business has
signed a five-year contract with Klune Industries, a supplier of
finish-machined parts to prime contractor Raytheon, to manufacture
high-strength aluminum structural castings for the U. S. Navy's
Tactical Tomahawk missile. The contact is valued at nearly $30 million.


Neinei... þetta ál verður örugglega frá einhverju miklu verra og óhreinna álveri. Okkar ál verður bara notað í umhverfisvæna bíla og léttar flugvélar, ekki í gosdósir eða stríðstól.

Bestu Kveðjur,
Svabbinn


[ 0 ]
  Að lokinni Grýlugleði
Ah... Svakaleg helgi að baki...
Ball í Grindavík, mikið stuð og ánægja innan hljómsveitarinnar, sem bókstaflega hljóp upp á svið eftir 4ra mínútna pásu.
Svo var þrusustuð á Rósenberg á laugardag. Hresst hugleikslið mætti á svæðið og skemmti sér víst alveg ágætlega vel. Gamall kennari mætti líka á svæðið svona líka eldhress og fleiri og fleiri svona hellahressir :D
Menn veltu fyrir sér af hverju Hraunarar (og fleiri tónlistarmenn) syngja með lokuð augun... Ég býst við því að það sé sama ástæða fyrir því og maður lokar stundum augunum í kynlífinu... Til að hugsa um George Clooney... Eða kannski bara til að ná betri snertingu við tilfinninguna sem maður er að vekja og upplifa.
Á sunnudag vaknaði maður svo bara í gúddí fílíng með dásamlegan félagsskap og fór síðan í fylgd dótturinnar á flugvöllinn og við feðginin flugum austur á Egilsstaði þar sem enn eldri kennari sótti okkur á flugvöllinn og fór með okkur á Skriðuklaustur þar sem ég hitti Skottu vinkonu og tjúttaði með krökkunum og Skúla "sögudverg" :D

Svo fengum við glæsilegan kvöldverð í boði Staðarhaldarahjónanna og enduðum kvöldið sötrandi kaffi og borðandi kleinur með Skottu vinkonu. Snilld! :D

Nú situr maður bara einn í stofunni og horfir á Batman... Dúbb dúbb dúbí...
Rosalega hefði verið gott að fá vissa hringingu eða einhvers konar skilaboð fyrr í kvöld... Vantaði allavegana að heyra vissa rödd þó ekki væri meira... :/

En nóg um það... Hér sit ég bara kátur og er á leið í háttinn, því skólinn hefst kl. 8 hjá Dagbjörtu og við þurfum að vakna snemma...

En hvað það er samt alltaf notalegt að eiga kerti...

Bestu kveðjur,
Svavar Knútur, lítillátur ljúfur og kátur


[ 0 ]
föstudagur, desember 02, 2005
  Nýjasti lost...
209... bone chilling shit...

Annars er ég helv. ánægður með karlaráðstefnuna sem ég fór á í dag. Fínt að geta rætt jafnréttismál án þess að hafa eilífar áhyggjur af því að konur fari að hengja sig á öll smáatriðin sem maður fer ekki "rétt með". Afsakið konur, en þið gerið þetta og það eyðileggur rosalega oft fyrir þegar við karlar erum að reyna að gera eitthvað. T.d. eins og þegar maður setur einn rauðan sokk í þvottavél og maður fær aldrei að gleyma því. Það veldur því að maður treystir sér einfaldlega ekki í þvottinn aftur. Döh! :)
Sama gerist oft með jafnréttisumræðuna, maður reynir með sínum óþjálfaða munni að tjá sig, gerist óvart sekur um netta kaldhæðni í garð málefnisins, þó í góðu, og þá er maður bara dæmdur úr leik og fær yfir sig stóru feitu skammarræðurnar og röflið og nennir aldrei aftur að tala um jafnrétti við konur.
Þetta er bara rosalega oft svona. Þýðir ekki að skammast í mér yfir því.
En þetta var virkilega frjór fundur.
:D
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???