![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
mánudagur, janúar 30, 2006
Speki...
...Kannski maður skjóti að einni djúpviskunni... Þú stafar hvorki Ruglaður né ringlaður án "Glaður". Og þú stafar hvorki Kjáni né Bjáni án "Já". Ennfremur er hreint og beint ómögulegt að stafa Sambandsslit án "Samba." Og eins og allir vita, þá er Samba kátur dans :D Svo mikið er víst... [ 0 ]
Svo maður blaðri nú áfram...
Bara að vekja athygli ykkar á skemmtilegum penna ef þið rekið nefið í Fréttablaðið, en þar er á ferðinni Anna Margrét Björnsson. Ég held hún skrifi reglulega þanka á sunnudögum, en hún hefur lengi verið einn af mínum uppáhaldsblaðamönnum frá því hún var að ritstýra Iceland Review. RAbbaði lauslega við hana á Pressuballi 2004 held ég... Alveg hreint heillandi manneskja. Áfram Anna Margrét :) Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ]
Viðgerðir...
Stundum þegar eitthvað brotnar illa og þarf að laga það og manni tekst ekki nógu vel að setja það saman vegna þess að eitthvað var ekki alveg nógu skýrt í kollinum á manni, er eina leiðin að brjóta bara hlutinn aftur og byrja upp á nýtt að setja hann saman. Er það ekki annars? Ég held það. Framundan er, eins og endranær, tími uppbyggingar, bata og kátínu :) Þakklæti er tilfinningin sem fyllir brjóst mitt núna... Gríðarlegt þakklæti og væntumþykja. Ég er alls ekki leiður eða neitt... Eiginlega frekar léttur og þakklátur :) Góð tilfinning. Ég elska þetta líf og allt sem það býður upp á... Myndir úr afmælinu koma bráðum. Bæ í bili, Svavar [ 0 ] sunnudagur, janúar 29, 2006
Úff...
Gærkvöldið var kvöld hinna blendnu tilfinninga. Ég hitti fullt af skemmtilegu fólki, þar á meðal Bill úr the Shneedles, og við skiptumst á að bjóða hvor öðrum upp á bjór og meððí. Það var gaman. Svo varð ég eiginlega of fullur og endaði á að láta draga mig upp á Kofa Tómasar frænda. Þegar þangað kom tók sig upp gamalt dansbein og ég dansaði af mér allar sorgir til kl. að verða sjö. Það var rosalega gaman, en ég lenti í furðulegu atviki sem ég veit ekki hvort ég er tilbúinn að pæla mikið meira í ef ég vil ekki verða geðveikur. Skrölti á endanum heim og sofnaði... Engu glaðari en ég var þegar ég fór út úr húsi. Djammið var, sem endranær, innantómt... En tók hugann af sjittinu meðan það varði. Jæja... best að mæta í vinnuna... Kátur og hress. Sýna hvað í mér býr. Úff... Mig langar bara að liggja uppi í sófa og borða ís í dag. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] laugardagur, janúar 28, 2006
Þeim var ég verst er ég unni mest...
Fyrst maður er nú að brjóta prinsippin... Ég þarf bara að setja þetta í samhengi allt saman... Sálaröppdeit Svabbans... Ég er búinn að vera að finna sálina mína skríða saman undanfarna mánuði... Búinn að finna ótrúlegan stuðning og væntumþykju og ást úr öllum áttum... Búinn að vera að glíma við vandamál sem eiga mun dýpri rætur en mig hefði nokkurn tíma grunað. Mér er að batna og mér hefur ekki liðið svona vel í hjartanu í 20 ár. Mér líður náttúrulega ferlega núna, en það er allt öðruvísi. Það er eitthvað sem maður bara dílar við eins og gengur, tíminn læknar það. Hins vegar er ég búinn að vera að skafa gröftinn innan úr sálinni minni og það er búið að vera skófluverk... Gröfuverk... Ég held að það þyrfti jafnvel að athuga hvort þessar framkvæmdir valdi stórfelldum umhverfisáhrifum og setja þær í mat. En öllum bata fylgja verkir og sársauki og þeir fengu útrás á næst versta stað í bænum. Sem betur fer ekki á Dagbjörtu samt. Ég svaf ekki í nótt. Lá bara og hugsaði. Mætti í vinnuna núna klukkan átta og tek aukavakt á morgun. Bráðum verð ég búinn að vinna í 20 daga straight, fyrir utan frí sem ég tók á afmælisdaginn minn... Hresst... Alltaf gott að drekkja sér í vinnu... Ég ætla að stinga af í byrjun febrúar. Fara norður í nokkra daga og hugsa minn gang. Taka út vaktafrí og svona... Gefa mér tíma í að hugsa um hvernig ég hef komið fram við mína nánustu og hvernig ég get bætt mig. Kemur mér samt á óvart að eftir öll þessi ár og allt þetta krapp sem maður hefur lent í að maður sé ekki kominn með harðari skráp. Það ku víst vaxa falleg blóm úr skítahaugum :-) Vinir, fjölskylda og aðrir góðir vandamenn eru búnir að ráða mér heilt undanfarna mánuði. Ég hef kosið að hundsa ráð þeirra og jafnvel ráð minnar eigin skynsemi og fara erfiðu leiðina. Ég sé ekki eftir því, þótt ég geri mér grein fyrir að þau hafi öll haft rétt fyrir sér og ég rangt. En málið er að ég tók mína ákvörðun, ég reyndi og ég mun nú draga lærdóm af mínum eigin mistökum. Það er það besta sem ég get fengið. Það er víst miklu betra að læra af sársauka en af bók. Svo nú skal bara brosað framan í lífið og haldið áfram ferðinni. Ég hef eignast góða félaga og vini undanfarna mánuði og kynnst ótrúlegum nýjum og skemmtilegum hliðum á heiminum. Og ég ætla að halda því áfram... Næstu helgi ríð ég norður í söðli skammarinnar (Það kallar Jón Geir Saabinn minn). Það verður gott, vona ég... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] föstudagur, janúar 27, 2006
Veit ekki alveg hvað skal segja...
... ég veit ég lofaði að hætta að skrifa um tilfinningar hér... Og ég ætla að standa við það... Fyrirgefðu djásnið mitt... Og takk fyrir allt. Farinn að vera góður pabbi. Ég veit allavegana að ég er góður í því... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, janúar 24, 2006
Söngurinn...
Jæja... Allur að skreppa saman eftir þvílíkt hressa afmælishelgi. Nú stefnir maður bara á það að fara að rækta líkamann og berjast gegn þeirri árlegu eins kílós þyngingu sem maður á víst að verða fyrir eftir tvítugt... Það hefur gengið ágætlega hingað til. Allur að skerpast. En samt... Betur má ef duga skal. Annars er allt ágætt að frétta héðan af Mogganum. Maður skrönglast bara með sínar hugsanir hér og veltir upp pælingunum og hugmyndunum endalaust... blablabla... Endalaus pressa en enginn tími til að vinna úr neinu. Urg! Jæja... best að hætta að kvarta og byrja að vinna. Já, talandi um það, ef þið gætuð hringt á Rás 2 í 5687123 eða sent póst á 123@ruv.is og beðið um lagið Clementine með Hraun, þá væri það æði. En bara ef þið viljið að það sé spilað. Ekki vil ég að fólk geri eitthvað á móti eigin sannfæringu. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] sunnudagur, janúar 22, 2006
Afmælispartýgleðihamingja...
Hvar á maður að byrja... Bara takk svo gersamlega fyrir ógleymanlega kvöldstund elsku vinirnir mínir og fjölskylda. Ég þurfti að berjast við að bresta ekki í grát fyrir framan ykkur af ánægju. Djöfull þurfti ég á þessu kvöldi að halda. Takk svo mikið allir mínir vinir fyrir harmónikkuna og allir hinir fyrir hinar gjafirnar sem glöddu mig líka svo ósegjanlega! :D Úff hvað ég er kátur! Og nú er ég mættur upp á Mogga í alveg Über góðu skapi! :D Enginn daginn eftir blús og ekki einu sinni þynnka vegna þess að ég drakk eiginlega ekki neitt í gærkvöld, bara tvo eða þrjá bjóra! :D ÉG sem ætlaði að verða plastered! :D Heyri í ykkur fljótlega elskurnar mínar og Harmónikkan verður reglulega tekin upp í kátínupartýfíling... Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] laugardagur, janúar 21, 2006
Gott er að vakna...
...glaður og hress... Já, vaknaði kátur eftir þriggja tíma svefn og hef ekki getað sofnað síðan. Þannig er það bara stundum. Þrítugur... Sæmilega kátur bara... Í ágætis formi... Bestu kærleikskveðjur, Svavar [ 0 ]
Þrítugur...
Jæja krakkar... Maður bara orðinn Þrítugur. það var svaka fínt að vera innan um góða vini og liðið á Rósenberg... Náði mér seint á strik samt, var eitthvað dán svona fyrripartinn... En nú sit ég heima... Er að láta renna í bað... Vakna hress í fyrramálið og tek smá hressa sólótíð á afmælisdaginn minn... Gott að vera einn býst ég við. Svo kemur Dagbjört og við gerum eitthvað skemmtilegt saman þangað til við mætum í afmælisfrokostinn minn heima hjá Mömmu... Hún er yndisleg... Amma á líka afmæli... Best að muna einu sinni eftir að knúsa hana fallega. Hef alltaf verið nett upptekinn af sjálfum mér á þessum degi, en nú tók ég frí til að geta eytt smá tíma í fjölskylduna... Jæja... framtíðin blasir við... Björt vona ég... Sjáumst í kvöld kl. 20... Svavar Knútur [ 0 ] föstudagur, janúar 20, 2006
Tilfinningar...
Ég hef ákveðið, eftir dálitla íhugun, að hætta að blogga um vanlíðan mína hér. Það gefur fólki allt of mikið tilefni til að hlaupa að ályktunum um hvernig ástandið er í mínu lífi. Ég hef hingað til bloggað tilfinningar mínar blátt áfram og ofboðslega hrátt og eins og þær koma "af kúnni". Ég held að allir fái svona tilfinningagusur og þær hörfa fljótt og aðrar koma í staðinn. En bla... hvað um það... Ég ákvað að stofna sérstakt blogg um líðanina. Ákvað að hafa það nafnlaust. Ákvað að segja engum slóðina. S.s. nafnlaust leyniblogg... Og viti menn... Ég fór að skrifa hluti sem ég hef ekki getað sagt neinum... Fór að henda þeim bara fram á nafnlausabloggið. Rosa gott... En gallinn (og kannski bara kosturinn) er sá að nú getur enginn vitað hvernig mér líður. Það fær enginn að lesa um líðan mína (allavegana ekki þá slæmu) og mér líður eins og stór partur af mér sé farinn eitthvert annað. Sjáum hvað það þýðir. Vonum bara að mér líði aldrei illa aftur... :D Bestu Kveðjur, Svavar ... 3 tímar í þrítugt!!! :D ... Sjáumst á Rósenberg á eftir á tónleikum og á morgun í partýi :D Þeir sem koma snemma á morgun fá fiskisúpu og bjór. [ 0 ]
Fyrsta þrítugsafmælisgjöfin...
Fékk munnhörpu frá fréttastjórunum og Guðna og Silju sem eru með mér á vaktinni. Hún er í D. Ég hlakka til að spila á hana :D WEEE :D Fyrsta þrítugsafmælisgjöfin komin í hús :D [ 0 ] fimmtudagur, janúar 19, 2006
Sagan hingað til...
Maður er að verða þrítugur... Dagbjört vinkona gerði svona smá króniku fyrir sig, best að ég geri slíkt hið sama. Hvað er nú búið að gerast í mínu lífi... Líf 1: 1975 - Pabbi fær glampa í augun... Mamma gerist móttakari téðs glampa, sáðfruma... Seint í Apríl frjóvgast egg... 1976 -> gott ár - 21. janúar. Afmælisdagur Pabba og mömmu hans, Svövu Ömmu. Ég fæðist, skríð út úr maganum á mömmu með látum, kveiki í vindli og segi, látum nú gossa strákar! Emma Bunton fæðist líka sama dag. Deilur um hvað ég skuli heita. Amma Vilborg sér svip látins frænda síns sem kveður barnið eiga að heita Knút. Draugurinn leggur á þetta ríka áherslu. Ég átti upprunalega að heita Svavar Njáll á móti Jóni Gunnari Bróður mínum... Það hefði að vísu verið mjög fitting, því við erum dálitlir Gunnar og Njáll stundum. Fjölskyldan bjó víst að Mímisvegi. 1977 -> gott ár - Man lítið eftir þessum tíma. Var skírður, úthúðaði séra Valgeiri fyrir að leyfa mér ekki að leika mér að handfanginu á líkkistu sem lá við hliðina á Skírnarfontinum. Það gerði nefnilega skemmtilegt hljóð þegar ég skellti því í viðinn. "Láttu Vera Mig!" voru orðin sem sögð voru af hálfu undirritaðs í kirkjunni. 1978 -> gott ár - Enn í haze... Ég held að við höfum búið í Kópavogi. Í Engihjalla 1. 1979 -> gott ár - Flutt á Stokkseyri - lærði að lesa með því að ergja móður mína á morgnanna, en hún kenndi þar á meðan pabbi starfaði við virkjanaframkvæmdir sem verkstjóri flokks af júgóslavnöskum farandverkamönnum. Hann kunni Serbókróatísku. "Hvítasunnudagur" var fyrsta orðið sem fjölskyldan heyrði mig lesa upp úr bók... Held ég alveg örugglega... Það var hún Þórhildur fósturamma mín í Móhúsum sem brosti að því uppátæki. Pabbi málaði barbapabbamyndir á veggina í herbergið okkar strákanna. Æðislega flottar. Í þriggja ára afmælinu mínu tók ég síðan upp á því að bæta við minni eigin sýn á myndirnar með vaxlitum. Ég skildi ekki í því hvers vegna foreldrar mínir vanmátu myndlistarhæfileika mína svo herfilega. 1980 -> Mjög gott ár Flutt úr Kópavogi á Skálá í Skagafirði. Við tóku átta æðisleg ár í sveit. Kynntist snillingnum og öðlingnum Stefáni Gestssyni á Arnarstöðum á meðan mamma kenndi og pabbi var á sjó. Stefán kenndi mér að tefla. Tveim árum síðar áttaði ég mig á því að hann hafði stundum leyft mér að vinna sig... Drukknaði í Sólgarðalaug en pabbi bjargaði mér upp úr og kom mér aftur til lífs. 1981 -> Gott ár - Sveit... dalur... á... gaman... Svavar kannski aðeins of ungur til að átta sig á hvað lífið er æðislegt... Eyddi dágóðum tíma í að lesa Þúsund og eina nótt, þjóðsögur Jóns Árnasonar og dönsku teiknimyndasögurnar hans pabba, sem ég eyðilagði skipulega með því að sitja ofan á þeim uppi á háalofti. (Þetta tímabil tók þrjú ár) Ég gerði ljóta hluti... 1982 -> Gott ár - Byrja í grunnskóla... Mamma kennir forskólabekknum... Awkwaaarrd... Ég held að okkur hafi báðum fundist þetta pínu neyðarlegt og óþægilegt. Líka asnalegt að kalla kennarann sinn mömmu. Var búinn að læra að lesa, svo þetta var óttalega leiðinlegt. 1983 -> Gott ár - Fyrsti bekkur í Grunnskólanum á Hofsósi. Las allt sem hönd á festi, en fannst margt leiðinlegt, þótti yfirleitt skemmtilegra að skoða myndirnar. Tom Swift var í uppáhaldi. Reyndi að fara í fótbolta. Var valinn síðastur og settur í mark. Skammaður fyrir að vera lélegur í marki... skildi aldrei neitt í þessari blessuðu íþrótt. 1984 -> ágætis ár - Ágætiseinkunnir í öllu nema leikfimi, skrift og handmennt. Reyndi að fara í fótbolta. Var valinn síðastur og settur í mark. Fékk að fara á sjó með pabba á Sigluvíkinni. Afneitaði því að ég væri sjóveikur þangað til ég ældi pulsum og bökuðum baunum beint á skipstjórann. Kokkurinn á skipinu gerðist vinur minn og huggaði litla kútinn með Svala. 1985 -> Ágætis ár - Ágætiseinkunnir í öllu nema leikfimi, skrift og handmennt. Reyndi að fara í fótbolta. Var valinn síðastur og settur í mark. Skildi hvað bróðir minn meinti þegar hann kvað B. kennara vera ömurlegan. B. lagði mig í þétt einelti og gerði endalaust lítið úr mér fyrir framan bekkinn. Þetta hélt áfram í þrjú ár. Minningarnar eru heizí samt. 1986 -> Ágætis ár - Tíu ára. veei. Ágætiseinkunnir í öllu nema leikfimi, skrift og handmennt. Reyndi að fara í fótbolta. Var valinn síðastur og settur í mark. Lærði að hjóla... 1987 -> Ágætis ár - Ágætiseinkunnir í öllu nema leikfimi, skrift og handmennt. Reyndi að fara í fótbolta. Var valinn síðastur og settur í mark. Utangarðs... 1988 -> Skrýtið ár... Síðasta sumarið á Skálá... Síðan flutt á Heiðarskóla í Leirársveit þar sem ég lærði borðtennis og lenti í bekk þar sem voru 14 strákar og 2 stelpur. Fór í skrýtnar sumarbúðir á Hólavatni í Eyjafirði... Utangarðs... 1989 -> Sæmilegt ár... kyssti stelpu í fyrsta skipti... annað... og þriðja... mmm... Það var notalegt, langaði í meira. Æfði borðtennis. Utangarðs... 1990 -> Skrýtið ár... Fermdist. Fluttum á Skagann. Utangarðs eins og venjulega... Gekk í skátana, fór í útilegur... Gerðist role-playing nörd. 1991 -> Enn og aftur skrýtið ár... Sveindómsmissir hinn fyrri og verri... Allir virtust byrjaðir að drekka nema ég... Vann á Flateyri um sumarið og bjó í kastalanum hjá Pabba. Kynntist Helga. 1992 -> Flutti til Reykjavíkur, bjó hjá ömmu. Fór í Æfingadeild KHÍ, kláraði grunnskólann þar... Vonbrigði... Byrjaði í MH... Utangarðs, en eignaðist samt fína vini. Kassagítar og stelpur fóru að heltaka líf mitt... Sveindómsmissir hinn seinni og betri, en samt ekkert sérstakur... Mikið af fólki hélt ég væri hommi. Gerði lítið til að afsanna það. Geðveikur köttur ömmu gerði mér lífið leitt. Einmana sem aldrei fyrr. Kynntist Má frænda almennilega, góð fjárfesting þar á ferð ;). Kynntist Sigga Palla og fleirum. Vann á Flateyri. 1993 -> Dansað eins og svín á 22. Ekki byrjaður að drekka. Farinn að finna alvarlega fyrir hinum félagslega einangrandi áhrifum þess að drekka ekki. Skólinn gekk ágætlega, en stelpur og gítar tóku mig enn lengra burt frá náminu sem virtist nú engu máli skipta. Samt einmana. Takandi framförum. Vann á Flateyri. 1994 -> Dansað eins og api á 22. Hommar klipu í bossann á mér. Lyfti sjálfsmatinu upp. Mér leið eins og flottum strák fyrst samkynhneigðir karlmenn sýndu mér áhuga. Gaman :) Vann í Reykjavík um sumarið. Uppgötvaði Dummy með Portishead. Ömurlegt. Síðustu jólin með pabba. Skrýtin jól, beyglaði á mér bakið á 290 stöðum en lagaðist mjög fljótt án læknishjálpar. Læðurnar stofnaðar með látum. Vann á Flateyri. Á sjó með pabba. 1995 -> Svarta árið. Gekk rosalega vel fyrri partinn. Vann söngkeppnina í MH, 3ja sæti í söngkeppni framhaldsskólanna með Hvar er húfan mín :D einkunnir í ágætu lagi, en samt dálítið skrýtið. Síðasta sumarið með Pabba. Pabbi hvetur mig til að byrja að drekka, ég geri það með semingi. Gengur miklu betur að fitta inn eftir það. 25. Október... Síðasta símtalið við Pabba. 7 tímum seinna var hann dáinn. Ömurlegt... Sjokk, afneitun, þunglyndi, týndist, hvarf, fann mig ekki aftur í mörg ár. Of mörg ár... Dofna tímabilið byrjar... Líf 1 endar... Man lítið eftir næstu fimm árum... 1996 -> Helvítisárið... Tvítugur... Þunglyndur, næstum rekinn úr MH fyrir mætingu þangað til Wincie kippti í spottana... 80's er málið... Fer túr með línubát, vingast við kokkinn, læri skemmtilegustu skemmtisögu mína, vinn í Húsasmiðjunni. Útskrifaðist um haust með þreytulegt bros á vör... Ein mín helsta lærimóðir Þ.I. kvaddi mig með eftirfarandi orðum við móður mína: "Það verður aldrei neitt úr honum Svavari, hann hefur engan aga." 1997 -> Erfitt ár... Vann á Borgarspítalanum, öööh... líkhús... dimmir kjallarar... Kynntist Pálínu á sólrisuhátíð MÍ. Fór að vinna á Leikskólanum Sólborg. Það var æðislegt! Söng fyrir börnin, mjög þerapjútískt. Moonboots spiluðu inni í og ofan á Tunglinu, Tunglið brann. Gerðum allt brjálað á Gamla Gauknum líka. Dansað á borðum öskrað og læti. Verslunarmannahelgin 1997 - koníakdauði... Byrjaði í heimspeki... Mjööög skrítin áramót. Vendipunktur í lífinu... Nýtt líf byrjar... Fitna... Líf 2: 1998 -> Líf 2 hefst... Skrýtið, erfitt, yndislegt ár... Dagbjört hin yndislega gerist tilgangur lífs míns. Varð pabbi... Dálítið snemma... Hentist inn í pakkann algjörlega ótilbúinn. Enn í dofna tímabilinu... Heimspeki... Rafiðnaðarskólinn... Nýir vinir. Fitna... 1999 -> Skrýtið, erfitt, yndislegt ár... Doðinn fer að víkja, en þunglyndið heldur sér. Kominn í andlegt rugl... Sekk ofan í kóvermúsík, þori ekki að gera mitt eigið stöff. Rafiðnaðarskólinn - Unnið hjá Origo - Bee Gees showið. Handleggsbrotna í vespuslysi... Fitna... 2000 -> Skrýtið, erfitt, yndislegt ár... Dagbjört tveggja ára... Vann hjá Oz um sumarið. Dofna tímabilið að víkja, en fastur í þunglyndishugarfarinu... Fitna... Trúlofast Pálínu. Hún er yndisleg. Förum til Danmerkur í ferð... Svaka gaman hjá okkur. Ég samt í tómu tjóni... 2001 -> Áhugavert ár... Dagbjört þriggja ára... Útskrifast úr HÍ úr Heimspeki og Mannfræði - fer að vinna á Mogganum um sumarið... Nýherja um haustið. Hell... Algjörlega týndur... Stóð í stað í þyngd... 2002 -> Gott ár... Dagbjört fjögurra ára... hætti hjá Nýherja og byrja í meistaranámi í Umhverfisfræðum. Gaman, en ennþá þunglyndur og týndur, eignast fullt af nýjum vinum. Fer að hugsa um að gera mína eigin tónlist af alvöru. 2003 -> Erfitt ár... Hætti í Meistaranáminu vegna blankheita, fer að vinna á Mogganum, stofna Hraun (frábær hugmynd). Sem músík, tek upp músík... Fyrsta jólaplatan... Gaman að vera til. Enn í rugli og ömurð í hausnum. Stóð í stað í þyngd... 2004 -> Erfiðara ár... Daydjobbið, ekkert nám, fastir liðir eins og venjulega... ekkert hreyfist. Við Pálína förum til Danmerkur með Dagbjörtu... Það var mjög gaman. Margir bestu dagar ævi minnar gerðust þar. Stóð í stað í þyngd... 2005 -> Erfiðasta ár ævi minnar, en samt alveg roosalega mikilvægt ár. Horfðist loksins í augu við vandamálin. Við Pálína hættum saman, en erum yndislegir vinir núna. Keypti íbúð í Barmahlíðinni. Fékk að gista hjá Birnu og Lailu, sem björguðu lífi mínu með gestrisninni. Vann í sjálfum mér eins og hestur. Léttist og held áfram að léttast. Gerði loksins upp missin hans Pabba. Byrjaði með Evu... Allt of snemma, en vonandi er það í lagi. Uppgötvaði stórkostlega hluti um lífið, samdi góð lög, vann trúbadorakeppni Rásar 2, átti vinsælt lag, fór í stúdíó og er að vinna að plötu. Líf 2 endaði... Líf 3: 2006 -> Líf 3 hefst. Þrítugur... Er að ná tökum á sjálfum mér. Byrjaði í Söngskólanum, byrjaði í samkvæmisdansi, er enn að léttast. Hyggst verða betri maður en ég er búinn að vera. Ætla að láta mér líða vel og láta gott af mér leiða. Langar að stunda íþróttir, ferðalög og útivist í meira mæli. Fara að vinna minna, leika meira. Vera góður pabbi, góður vinur, góður maki. Mér líður betur í höfði og hjarta en mér hefur liðið í 20 ár. Mér finnst ég vera að byrja að verða hreinn. Langar líka að eyða meiri tíma á Skálá. Ég held að þetta verði frábært ár. Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, janúar 17, 2006
Söngskólinn hefst...
Jæja... mætti í minn fyrsta tima í Söngskólanum í gær og fer svo í dansskólann aftur með Evu í kvöld. Brilleraði í tónheyrn með fullt hús stiga í hlustunarsessjóni. Woohoo! Að vísu voru tónbilin einföld... Bara hrein tónbil stór. Engar litlar tvíundir, þríundir, fimmundir, sexundir eða sjöundir. Bara stórar... Þarf samt að læra þetta doremifasolatido söngbatterí almennilega. Kemur... Kennarinn minn er Már Magnússon, virðist vera sómakappi, hlakka til að læra af honum. Einhverjir gætu spurt sig... Af hverju í andskotanum er hann að læra að syngja strákurinn? Og svarið er... Mér fannst vera kominn tími til... Ekki seinna vænna. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] mánudagur, janúar 16, 2006
Singstar Hraun! Enn af ammli...
Jæja gott fólk, Best að láta betur vita af afmælisstælum mínum í ár... Þrátt fyrir að verða þrítugur ætla ég ekki að hafa þetta grand. Við Hraunarar höldum tónleika á föstudaginn og að sjálfsögðu allir velkomnir. Hins vegar mun ég halda mig meira og minna fjarri sviðinu á laugardagskvöldið en leyfa öðrum að njóta sín. Tvær eða þrjár hljómsveitir hafa meldað sig til spilamennsku og gleði auk Hrauns, en Hraun-liðar munu leika undir Live Singstar í partýinu. En Singstar ku vera móðins í partýum þessa dagana :) Þannig: Föstudagskvöld - Svabbi heldur "afmælistónleika" með Hraun! Allir velkomnir tóm gleði. Laugardagskvöld: Svabbi heldur afmæli - "Singstar - Hraun" (TilHraun) og tvær-þrjár aðrar hljómsveitir sjá um fjörið. Meira seinna - en þar til þá: Kíkið á þetta: Oh hvað það er gaman að eiga afmæli :D Og það er líka gaman að átta sig á því hvar maður þarf að laga sig. Yeah :D allt að koma. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Urg...
Ég vona að ég fari bráðum að lagast af þessum drunga og ofurviðkvæmni sem hefur legið yfir mér... Mér líður eins og ég sé með króníska fyrirtíðaspennu. Það þarf varla fluga að prumpa og þá er ég kominn í algjört rugl... En sem betur fer er ég líka fljótur til baka og reyni að bæta fyrir leiðindin... Missti mig í gær og líka í hittifyrradag... Líður mjög illa yfir því. Mig langar ekki til að hrekja fólk frá mér með pirringi og fýlu. Fékk mér annars frábæran morgunmat í dag með Dagbjörtu og Evu... Það var frábært. Bláberjaskyr með rjómablandi, appelsínusafi og brauð með kjúklingabringu, osti, tómati og gúrku. Frábær byrjun á góðum degi... Djöfull er maður samt dragúldinn núna... Langar svo að leggja mig. Fjandakornið... Jæja... ég ætla að vinna eins og hundur núna. Bæ í bili [ 0 ] sunnudagur, janúar 15, 2006
Þrítugsafmælið kemuth...
Jæja gott fólk... Í ljósi síðustu færslu ætla ég að tilkynna um næsta sessjón af vinaglaðningi hjá mér. Laugardaginn 21. janúar næstkomandi verð ég þrítugur og fjölskyldu minni, vinum og velunnurum er boðið að koma á Rósenberg kl. 20 og þiggja veitingar og gott spjall... Staðurinnn verður beisikallí lokaður frá 20-24, þegar hann opnar fyrir almenningi, en þið bara látið vita að þið séuð komin í afmælið mitt. Þá verður ykkur hleypt inn með brosi á vör... Gjafir vel þegnar :-) Bestu kærleikskveðjur, Svavar Knútur Kristinsson [ 0 ]
"þú skilur ekki djammið"
"Þú skilur ekki djammið," sagði vinkona mín við mig á spjallinu... Meiningin var sú að þegar maður er ungur sé Djammið heilagra og frábærara en nokkuð annað, og bætti vinkonan við að á þeim tíma hefði hún frekar hætt með kærastanum sínum en að hætta að djamma... Segir það eitthvað um sambönd, um kærasta, um hvað djammið sé æðislegt og ómissandi, helst í hverri viku ef ekki oftar... Hversu margir djammekklar séu til? og Djammekkjur? Hverra kærastar og kærustur mega helst ekki missa úr föstudags/laugardagskvöld með félögunum og svo er sunnudagurinn líka ónýtur sökum þynnku? Djammekkil. Flott orð. Veit ekki... Ég veit að stundum sef ég til hádegis á sunnudögum af því mér finnst það gott, en það er líka bara þreyta og ég er orðinn góður til flestra verka þegar ég skrönglast á fætur... Ég byrjaði að drekka 19 ára. Hef síðan drukkið áfengi á kannski mánaðar eða tveggja mánaða fresti, og ef um er að ræða eitthvað meira en þrjá bjóra, þá erum við að tala um hálfsárslega eða eitthvað... Ég hef aldrei skilið af hverju fólk drekkur svona mikið og þarf að vera svona lengi og "öflugt" á djamminu... Þetta tekur svo mikinn tíma af manni dagana eftir... Mér finnst persónulega miklu skemmtilegra að eyða laugardögum og sunnudögum í að gera eitthvað skemmtilegt með vinunum eða fjölskyldunni... Drykkja og djamm er að mínu mati eitthvað sem maður gerir spari og þegar tilefni gefst... Ekki einhver kvöð... Auðvitað finnst mér æðislegt að fara út og drekka einn eða tvo bjóra með vinunum, jafnvel aðeins fleiri, en svo vil ég líka bara fara heim og eiga góða nótt og enn betri morgun daginn eftir... Mér finnst bara svo margt annað líka skemmtilegt og drykkja og djamm tekur tíma frá því. Til dæmis þegar heilir sunnudagar eða laugardagar og jafnvel mánu- og þriðjudagar fara til spillis vegna þynnku og svefnsýki. Þessi helvítis framlengdi opnunartími skemmtistaða hefur heldur ekki bætt úr skák... Ég veit ekki... Það er líka þetta þegar fólk er að stæra sig af eigin þynnku... Djöfull var ég fullur! Djöfull er ég þunnur! Höhöhö! Er þetta einhver sjálfsupphafning sem ég er búinn að missa af? Er það töff að vera þunnur og fullur? Síðan hvenær? Missti ég af einhverri lest? Ókei, fyrir þá sem eru gjarnir á að oftúlka bloggið mitt: Ég er alls ekki að meina þessa færslu sem neins konar skot eða kveink... Bara velta vöngum í ljósi samræðna við fólk og lífsins almennt... Það er allavegana ljóst að ég "skil ekki djammið"... Ég er greinilega eitthvað þroskaheftur og vitlaus. Best að reyna það ekki. Ég hef nóg með mitt... En þá þarf maður kannski bara að fara að hugsa hlutina aðeins öðruvísi, breyta áherslunum aðeins í lífinu og reyna að kynnast frekar hófsömu og lífsglöðu fólki sem á sér áhugamál sem hægt er að stunda um helgar án stöðugrar viðveru hjá Bakkusi frænda. Mér finnst það far leiðinlegt og mig langar að vera á öðrum stað. Allt í lagi að drekka aðeins öðru hvoru og þá í hófi, en lífið býður bara upp á svo miklu meira og persónulega tími ég ekki að hafna því tilboði. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, janúar 13, 2006
Ný reynsla...
Upplifði nýja reynslu... Varð bona fide sár... Mér sárnaði við manneskju. Það var eiginlega góð reynsla... Búinn að vera þunglyndur svolítið lengi og yfirleitt þegar ég lendi í aðstæðum þar sem ég verð sár enda ég á að refsa sjálfum mér, hata sjálfan mig fyrir að vera svona eigingjarn og vondur. Núna er ég bara sár og það er eiginlega bara gott að fá að vera það. Ég held ég eigi fullan rétt á því að fá að vera sár og ég ætla bara að vera það. Áfram það :) Gott að fá að upplifa hreina tilfinningu í friði fyrir sjálfsásökun og þunglyndi. Ég er ánægður... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Lítill...
Urg... Dálítið lítill í dag... Sár og marinn... Lenti í smá byltu í gær, en það er allt í lagi, þetta grær áður en maður giftir sig... Bara... leiðinlegt að vera lítill og aumur og sár... En... Það er snjór úti og kannski getum við Dagbjört farið á Snjóbretti á eftir, þrátt fyrir eymslin. Það væri gaman... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, janúar 12, 2006
Komdu í nótt...
Komdu í nótt hét lagið sem okkur langaði að senda í Evróvisjón... Og textinn var eftirfarandi: Komdu í nótt, komdu til mín Við skulum strjúka Haltu mér þétt, haltu mér fast... Við skulum strjúka... Komdu í nótt, komdu til mín Við skulum þjóta og yfir stjörnubjartri nótt við megum fljóta Og ef að sólin kemur upp skulum við biðja hana um að bíða aðeins lengur Ó, við þurfum ekki að fara Því að ekkert liggur á, við lúrum lengur. Lallalalalala... Býst við að þetta sé einn fyrsti glaði textinn sem hefur komið upp úr mér í tíu ár... Það var hressilegt :D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Ódauðlegur... Hvorki meira né minna...
Schumacher gerður ódauðlegur er skíðabrekka verður nefnd eftir honum!!! Þetta er bara hreint út sagt ótrúlegt! Sumir láta frysta sig, aðrir gefa út bækur sem fylgja heiminum að eilífu. En Skíðabrekka? Olræt!!! Við skulum vona að þeir taki þetta fjall og vefji það inn í frauðplast til að hindra bráðnun þess á komandi hlýnunarskeiði sem írónían ein tryggir að er komið að stórum hluta frá nákvæmlega sömu aðilum og heiðra Schumacher með skíðabrekkunni... Úff... :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, janúar 11, 2006
Heimkominn...
Hæ... :D Færeyjar voru frábærar... Meira um það má lesast í Mogganum. Svaf fáránlega vel í nótt... Aðeins of vel... Eva var eitthvað lasin og var að reyna að vekja mig til að tala við mig og ég bara umlaði og lúrði á mínu græna eyra... Skammarlegt fyrir manninn sem vaknar venjulega við músaprump... En... Í kvöld fer ég í fyrsta danstímann minn... Húrra fyrir því :D Svabbi bara að fara að læra samkvæmisdansa og einbeita sér að því að verða tígulegri :D Svo komst maður inn í Söngskólann og er að fara í sína fyrstu tíma þar rétt strax. Úff... Þetta verður erfitt en gaman... Þrítugsafmælið á næstu grösum líka... Gaaa!!! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] sunnudagur, janúar 08, 2006
Jæja gott folk...
Her er madur... i Føroyar... Kaften knas fullur og hress... Sendi ykkur rokk- og stud kvedjur eftir gridarvelheppnada tvo daga... Kem aptur a manudag, tviligt hress... og tunnur... A morgun fer eg i færeyska messu og samkomu hja lokal hvitasunnusofnudinum... hresst... Sakna ykkar... serstaklega farra utvalinna... Vildi ad tid vaerud her med mer til ad djamma a skarvinum eda hvar sem er... Kleopatra er tøff, en fordist stad sem heitir Torshall pub... tad er rooosalega slæmur stadur... for helvede... Jæja, nu aetla eg ad hundskast ut a lifid og sleppa tessari færeysku hoteltolvu... Elska ykkur øll.. Madur med mullett er ad horfa a mig og tad er hljomsveit ad spila med eitt thad furdulegasta lagaval sem eg hef nokkurn timann heyrt! Smakkadi skerpukjøt i dag... trisvar... og grindhval... skoladi bragdinu nidur med bjor... skerpukjøt venst furdu vel... Eftir tridja skiptid bragdast tad bara eins og munnurinn a manni hafi lent i kloakrørinu sem leidir fra fjorda hring helvitis... Fer s.s. sibatnandi... Stelpurnar eru sosum sætar her, og tad er agætt, en eg kann betur ad meta islenskar stelpur... Serstaklega eina... Mmmm... Sjaumst krusilingar! :D Bestu Kvedjur, ykkar kærleiksbjørn, Svavar Knutur [ 0 ] miðvikudagur, janúar 04, 2006
Harmóniku vantar...
Hæ hæ gott fólk. Minn bara á leiðinni til Færeyja á föstudaginn að fá að kynnast öllu því helsta sem eyjaklasinn krúttlegi hefur upp á að bjóða. Annars er ég að leita mér að harmóniku, gamalli og lúinni, bara venjulegri harmóniku, til að æfa mig á og spila. Lumar einhver lesandi á harmóniku sem ég get fengið lánaða? Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, janúar 03, 2006
Spritzað beint í augað...
Jæja krakkar mínir... Var minn ekki bara að upplifa all klámmyndalega reynslu í tannlæknastólnum í dag... Þannig var málið vaxið að blessaður tannlæknirinn minn spurði mig hvort mig langaði í deyfingu áður en hann hæfist handa við að bora. Ég verandi töffari spurði: "ertu nokkuð að fara að bora ofan í kviku?" og vitaskuld svaraði hann "neinei..." Svo Herrann afþakkaði pent deyfingu, vitandi hvað hann verður alltaf súr og skvapkenndur af náfrænda kókaíns í kjálkann... Sem tannlæknirinn hóf borfarir sínar og sviði og sársauki fóru að hreiðra um sig fann ég allt í einu nettan þrýsting í gómnum og horfði síðan á tignarlegan boga af vökva sprautast út um munninn... Í tvær sekúndur stóð þessi fallegi gosbrunnur og hitti mig beint í augað. Tannlæknirinn hló og sagði munnvatnskirtla mína hina sprækustu... Undir þetta tók ég og sagði kærustuna mína einmitt hafa bölvað ofvirkni munnvatnskirtlanna á dögunum. Neyðarleeegt... Gleymið brunnum í Afríku... Sendið Svavar með ofvirku munnvatnskirtlana sína til Malaví að brynna þyrstum kornökrum. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||