![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, febrúar 24, 2006
Hraun á Rás 2 kl. 15
Hey Gengi, endilega hlustið á rás 2 kl. 15 :-) Við í Hraun erum að fara að spila í stúdíó 12. Hlakka mikið til :D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur, kampakáti söngvasveinninn... [ 0 ] fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Fallegur dagur...
Og ég ætla að nota það sem er eftir af honum til góðra hluta... Fiðluæfing og fótboltaæfing með Dagbjörtu og sækja svo Damien félaga minn. Hann ætlar að gista í nokkra daga. Það verður hresst :D Merkilegt hvað maður getur orðið sterkur allt í einu þegar hlutnir eru búnir að fá að rúlla aðeins í hausnum og svona. Ahhh... Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, febrúar 22, 2006
Jæjajá...
Fékk ansi mikinn skít í andlitið nýlega frá manneskju sem ég átti hann svo sannarlega ekki skilið frá. Í stað þess að röfla eða mótmæla, brást ég kurteislega við, baðst afsökunar á þeim hlutum sem ég hafði mögulega gert vitlaust og bað viðkomandi um að hjálpa mér að gera hlutina betur í áttina að því sem viðkomandi sæi fyrir sér sem ásættanlega lausn. Viðkomandi hjálpaði mér að gera hlutinn meir að sínu skapi og kvartaði svo í yfirmann minn sem kom kvörtun hennar 100% til skila... Mér gafst heldur ekki tækifæri til að mótmæla því, þannig að í raun kyngdi ég sömu óréttlátu kökunni tvisvar. Ánægjulegt... En ég ákvað núna að láta þetta ekki skemma fyrir mér góða skapið og hlakka bara til að fara í danstíma á eftir. Mig langaði svo að öskra á viðkomandi fyrir dónaskapinn, en ég gerði það ekki... taldi upp að tíu og reyndi að halda þeim litla professjonalisma sem ég hef... Svona er það nú bara... Ég tók nafnið mitt af fréttinni. Vil ekki vera bendlaður við hana lengur. En ég er bansi hress bara annars :D Bestu Kveðjur, SVavar [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Urgh...
Hlakka til að komast heim úr vinnunni núna... Búinn að vera á hlaupum síðan í morgun. Langar bara að sofa og taka því rólega... Yurgh... Hlakka til að dansa á morgun... Það verður gaman... Ef ég fæ að taka millivakt... Mig vantar frí... almennilegt frí... Langt frí... En annars fékk maður bara ágætis viðbrögð á Viðhorfið í dag... Kannski bara best að peista það hér inn í boði Morgunblaðsins: Undrumst og hneykslumst VIÐHORF Við megum ekki láta breyta okkur í sálarlausa uppvakninga. Við verðum að undrast, hneykslast, elska og reiðast, berja í borð, hlæja og gráta. Um daginn hitti ég nokkra jafnaldra mína að máli, ekki alla mér kunnuga. Ég spurði hvert skyldi farið í sumar. Utanlandsferðir voru í tísku í þessum hópi og vildu flestir komast á sólarstrandir, en færri einhvers konar upplifunarferðalög. Ég spurði hvort ekki stæði til að fara í einhvers konar innanlandsferð, tók sem dæmi að kíkja norður í Ásbyrgi og jafnvel heimsækja hinn tignarlega Dettifoss. "Ég veit ekki... Hvernig er með bílastæði þar?" spurði ein jafnaldra mín þá sviplaust um leið og hún henti sígarettustubb á gangstéttina þar sem við stóðum. Ég varð kjaftstopp. Ekkert: "Já maður þyrfti nú að fara að upplifa náttúruna aðeins," eða "Dettifoss já, maður getur nú varla kallað sig Íslending ef maður hefur ekki skoðað Dettifoss," eða bara "Já það gæti verið fallegt að sjá Dettifoss." Það fyrsta sem viðkomandi hugsaði um voru bílastæðin. Í hryllingsmyndinni Dawn of the Dead deildi leikstjórinn George Romero ákaflega á neysluhyggju nútímans og það tómlæti sem fólk er farið að sýna lífinu. Kristallaðist hugmyndin í því að uppvakningarnir drógust að verslunarmiðstöðvum, kjörnum samfélaganna. Nýleg endurgerð hinnar sígildu myndar hélt uppi gagnrýni Romeros og tómeygðir ráfuðu uppvakningarnir um bílastæði verslunarinnar. Nóg af bílastæðum, enginn á bíl. Undanfarið hef ég farið að verða í auknum mæli var við það sem ég vil kalla "Smáralindaraugu" í fólki á mínum aldri og jafnvel mun yngra fólki. (Ég vona að þetta fari ekki illa í eigendur Smáralindarinnar, enda ekki beint gegn þeim persónulega.) Tómlæti gagnvart heiminum, eintóma neysluhyggju. Það eina sem kemst fyrir í huga þessa unga fólks eru peningar og hvernig er best að eyða þeim. Bílar, bílastæði, umferðin og útsölur virðast vera grundvöllur helmings samræðna fólksins með Smáralindaraugun, en hinn helmingurinn af umræðunum snýst um tísku, sjónvarp og nýjustu leiðir til að ná fitunni af rassinum á sér. Fitunni sem safnast á rassinn við að keyra allra sinna ferða. Fitunni sem safnast enn betur á bossann við að sitja í bílnum hring eftir hring á akreinum bílastæðanna, leitandi að hinu fullkomna bílastæði, vappa síðan inn á skyndibitastaðinn og kjamsa á hamborgara, frönskum og kók. Leggjast síðan "örmagna" fyrir framan imbakassann og drekka meira gos og borða snakk. (En ekki samt fyrr en maður hefur skilað sínum klukkutíma í ræktinni með börnin örugglega geymd í "ævintýralandinu.") "Sá sem ekki lengur undrast er hættur að lifa," sagði Albert Einstein. Sá sem ekki lengur horfir út í heiminn, dáist að fegurð hans, hoppar af kæti yfir hinu góða eða hryllir við ljótleikanum og illskunni, heldur bara mænir með tómum "Smáralindaraugunum" út í loftið, þarf að vakna. Það er svo mikilvægt að lifa lífinu en ekki eyða því inni í bíl, inni í sjónvarpi, inni í verslunarmiðstöð. Tími er peningar, svo við skulum hugsa um hann sem slíka. Fjárfestum tíma okkar rétt, fjárfestum tíma okkar í hluti sem láta okkur vaxa sem manneskjur. Það er aldrei of seint að læra nýja hluti. Ég var sjálfur að byrja að læra að dansa samkvæmisdansa, það er æðislegt. Ég byrjaði líka á frönskunámi og hyggst halda því áfram næsta haust. Allt þetta er hluti af því að eiga meira og betra samfélag við annað fólk og heiminn. Það er að lifa lífinu. Við verðum að undrast og við verðum að leyfa okkur að hneykslast! Við verðum að leyfa okkur að fyllast viðbjóði þegar við sjáum hvernig farið er með unglingsstúlkur í dag. Klámvæðing og sjálfsvirðingarleysi, óhollar og viðbjóðslegar líkamsfyrirmyndir og ávísanir á átröskunarsjúkdóma eru ekki bara dæmi um hið endalausa "heimur versnandi fer" tal. Það er raunveruleg ógn á ferð. Sífellt bylur á okkur einhver menningarleg afstæðishyggja um að ef við hneykslumst séum við bara ekki nógu opin fyrir hlutunum. En það er nefnilega í lagi að hneykslast á sumu. Þegar við hneykslumst er siðferðiskennd okkar að segja okkur eitthvað og við eigum að hlusta og meta málið. Stundum er hneykslunin innistæðulaus eins og t.d. þegar Silvía Nótt bullar, en stundum á hún rétt á sér, eins og þegar fjórtán ára stelpur fara í brjóstastækkunaraðgerðir eða þegar unglingsstúlkur eru narraðar út í kynlífsathafnir sem þær hafa hvorki líkamlegan, andlegan né félagslegan þroska til að stunda né skilja. Við þurfum að vakna og vera vakandi. Lifna og vera lifandi. Að hneykslast er að undrast. Það er engin sæmd eða flottheit í því að vera eins og sauðkind á valíumi úti í haga. Það er hallærislegt að hneykslast á því sem fullorðið fólk gerir upplýst sín á milli, en þegar málin snúa að börnum og sjálfsmynd þeirra þurfum við að opna augun og berja í borð. Óheilbrigð sjálfsmynd er böl sem byrjar að mótast strax í æsku. "Ef þú ert óánægð með líkama þinn, farðu þá bara í sílíkon," segir ótrúlega illa upplýst manneskja í sjónvarpi gagnrýnislaust. Hvað með að byrja á því að breyta brengluðu sjálfsmati sínu? Líkams- og peningadýrkun, siðferðisdoði og skeytingarleysi gagnvart náttúrunni eiga öll sömu rætur. Enginn hefur tíma né þor til að leyfa sér að undrast og elska heiminn. Allir eru svo mikið að drífa sig að passa inn í þau mót sem þeir halda að þeir þurfi að lifa inni í að þeir gefa sér ekki tíma til að stoppa og horfa í kringum sig, jafnvel leyfa sér að berast bara aðeins með lífsins straumi í stað þess að vera sífellt að reyna að finna betri bílastæði. Svavar Knútur Kristinsson (svavar@mbl.is) [ 0 ] mánudagur, febrúar 20, 2006
Æðislegt gærkvöld
Í gærkvöld gerði ég dálítið í fyrsta skipti í ellefu ár. Ég spilaði heilt gigg með hljómsveit þar sem ég var ekki í aðalhlutverki eða einhvers konar hljómsveitarstjórahlutverki. ÞAÐ VAR ÆÐISLEGT! Djöfull er afslappandi að mega bara vera að syngja með og fylla upp í með harmónikku/munnhörpu/sög/píanói. :D ahhh... T.I.M. Stimpluðu sig inn með miklum gæðafílíng og Tom Waits og Nick Cave svifu yfir vötnum eins og aldrei fyrr ::D Ánægður, hamingjusamur, blankur, en hress :D Weee... :D Bestu Kveðjur, Svabbi Kreisíhressi gaur :D [ 0 ] föstudagur, febrúar 17, 2006
Á jaðri hins löglega...
Jæja... nú ætla ég að gera svolítið sem liggur algerlega á jaðri þess löglega... Ég ætla að leggjast í heitt bað og borða hálfa dollu af núggatís...´ Yeee Haaa!!! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 14, 2006
Fallegur dagur...
Oh mig langar svo út í góða veðrið núna, en ég kemst ekki... urgh... Annars er bara gaman að vera til. Hlakka til að mæta í dans á morgun og gaman að læra að syngja loksins, þó ég hafi ekki næstum nógan tíma til að æfa mig. Kominn í skemmtilegt Tom Waits / Nick Cave tribjútband sem heitir Testiculus In Musica (T.I.M.) sem þýðir víst "Kuðungar í tónlist" en ekki eistu í tónlist eins og ég hélt fyrst... Annars bara brilljant hressileiki í gangi. Langar pínu að fara að skoða nýja möguleika á ýmsum sviðum, en rallaræ, við skulum nú bara halda því fyrir okkur í smá stund. Bestu kveðjur, Svavar Knútur sæti [ 0 ] sunnudagur, febrúar 12, 2006
föstudagur, febrúar 10, 2006
e.e. Cummings... eða Cum(m)mings...
Tók sig upp gamalt andvarp hjartans þegar ég las þessa færslu hjá Möggu. Það er satt... e.e. Cummings var ótrúlegt skáld... temmilega dónalegur og ótrúlega rómantískur, en umfram allt tilraunaglaður. Svo lék hann sér listilega með form ljóða og smíðaði úr þeim myndir og notaði líka sviga alveg ótrúlega flott... til dæmis í ljóðinu: l(a le af fa ll s) one l iness En fyrst maður er nú kominn á þessar nótur... Ætli maður verði þá ekki að leyfa tveimur mörgum uppáhalds ljóðum mínum eftir kallinn að koma hér. you said Is you said Is there anything which is dead or alive more beautiful than my body,to have in your fingers (trembling ever so little)? Looking into your eyes Nothing,i said,except the air of spring smelling of never and forever. ....and through the lattice which moved as if a hand is touched by a hand(which moved as though fingers touch a girl's breast, lightly) Do you believe in always,the wind said to the rain I am too busy with my flowers to believe,the rain answered Og svo Klassíkin: she being Brand she being Brand -new;and you know consequently a little stiff i was careful of her and(having thoroughly oiled the universal joint tested my gas felt of her radiator made sure her springs were O. K.)i went right to it flooded-the-carburetor cranked her up,slipped the clutch(and then somehow got into reverse she kicked what the hell)next minute i was back in neutral tried and again slo-wly;bare,ly nudg. ing(my lev-er Right- oh and her gears being in A 1 shape passed from low through second-in-to-high like greasedlightning)just as we turned the corner of Divinity avenue i touched the accelerator and give her the juice,good (it was the first ride and believe i we was happy to see how nice she acted right up to the last minute coming back down by the Public Gardens i slammed on the internalexpanding & externalcontracting brakes Bothatonce and brought allofher tremB -ling to a:dead. stand- ;Still) Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Svínaspil
Ég geri mér grein fyrir því að lífið er ekki auðvelt úti á landi og byggðirnar bíða eftir útspilum ríkisstjórnarinnar með það hvernig taka eigi á sívaxandi vanda. En útspilið virðist bara vera eitt. Álver. Vá... Í stað þess að velta upp fjölmörgum möguleikum, styrkja innviði bygðanna og rækta þá möguleika sem fyrir eru, frumkvæði heimafólksins og hugmyndaflug, er sveitarfélögunum í rauninni haldið í hugarfarslegri gíslingu. Enginn hreyfir sig fyrr en "álmálin leysast". Þannig bíða nú Húsavík, Akureyri, Skagafjörður, Skagaströnd og Blönduós öll með öndina í hálsinum eftir því hver "hreppir hnossið" kannski eftir tíu ár. Á meðan gerist ekki neitt í málefnum þessara byggðarlaga og ríkisstjórnin er stikkfrí frá því að gera nokkurn skapaðan hlut í þeirra málum. Getur í versta falli kennt náttúruverndarsinnum um skort á "framförum" þarna fyrir norðan, enda séu það náttúruverndarsinnar sem eru á móti landsbyggðinni eins og allir vita og einmitt Vinstri grænir sem hafa þau völd á Alþingi að þeir geti tafið allar framfarir á Norðurlandi einir síns liðs. Trúverðugt... Álæðið, þetta móðursýkislega og örvæntingarfulla öskurverk, gefur mér grænar bólur. Hér æpir og vælir kór fólks sem hefur litla sem enga trú á mætti hugvits, menntunar og gildi lítilla hluta eins og t.d. að styðja við uppbyggingu lítilla verkefna og fyrirtækja á landsbyggðinni. Landsbyggðin getur ekki beðið endalaust eftir einhverjum kannski, kannski ekki leik iðnaðarráðherra og kó, sem með endalausri rörsýni sinni munu aldrei stinga upp á neinu uppbyggilegu fyrir þessar byggðir. Enda er höfuðið á þeim fast langt uppi í tómri og illa lyktandi grautarskál stóriðjustefnunnar og eina leiðin að ná henni af er að brjóta hana eins og af hausnum á Emil forðum. Spyrjum okkur aðeins: Hver hefur meira vit á uppbyggingu atvinnulífs og möguleikum Íslendinga? Keppandi A: Ágúst Guðmundsson, fjárfestir, atvinnurekandi og fyrirtækjarekandi til áratuga, sterkur aðili í viðskiptalífinu og með gríðarlega reynslu af öllum mögulegum hliðum viðskiptaveruleikans. eða: Keppandi B: Valgerður Sverrisdóttir, framsóknarkona, kvennaskólagengin, lærði smá þýsku og ensku (dugleg), atvinnulýðskrumari og potari. Oh oh bíddu... við skulum skoða ferilsskrána hennar af althingi.is, leyfum henni að njóta vafans: Ritari hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1967-1968. Ritari kaupfélagsstjóra KEA 1969-1970. Læknaritari á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1970-1971. Kennari við Grenivíkurskóla 1972-1976, í hlutastarfi 1977-1982. Húsmóðir og bóndi á Lómatjörn síðan 1974. Skip. 31. desember 1999 iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Skip. 24. sept. 2004 samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 27. sept. 2005. Ah... húsmóðir og bóndi á Lómatjörn -> Iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Nú, þetta liggur beint fyrir. Hvað var ég að hugsa? Ekki það að ég líti ekki á húsmóður/bónda starfið sem ágætis reynslu. Öll tuttugu og fimm árin af því... Ekkert stafar hugmyndaflug og framsýni, reynsla af viðskiptalífinu og fjölbreytt þekking á uppbyggingu atvinnu í ólíkum byggðum eins og kvennaskólagenginn kaupfélagsritari sem gerist húsmóðir og bóndi. Úh... Úh... Úh... Ekki má gleyma félagsstörfunum: Í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga 1981-1992. Í stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga 1985-1992. Í stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra 1983-1987, formaður stjórnar 1985-1986. Já... hvernig gat ég gleymt þessari mikilvægu reynslu. Kaupfélögin og samvinnufélögin. Það gerist nú varla nútímalegra og framsýnna... Hún hefur þó allavegana reynslu af því að halda fólki í gíslingu. Heyrðu, jú, og svo var hún náttúrulega einu sinni grúppía hjá Hljómum... Já, Keppandi B hlýtur að hafa rétt fyrir sér. Enginn sem rekur og ræktar tugmilljarða fyrirtæki af eigin verðleikum getur vitað nokkuð um efnahagsmál. Treystum frekar pólítíkusnum sem var nú einu sinni í stjórn Sambandsins. Þar fór nú ansi framsýnt apparat. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] fimmtudagur, febrúar 09, 2006
Klökkn...
Illinoise platan hans Sufjan Stevens gerir mig alltaf eitthvað svo lítinn... Hann er bara stórkostlegur... En það eru tvö lög sem ég fer alltaf næstum því að gráta þegar ég hlusta á. Annars vegar æðislegt upphafslag plötunnar og hins vegar Casimir Pulaski day... Ég get hlustað á það lag endalaust og bara andað djúpt og verið alveg ofsalega leiður en samt eitthvað svo happí, þrátt fyrir að lagið fjalli um minningar um deyjandi ástvin... Helvítis Sufjan... Æi... Ég hlakka svo til að fá heimasætuna heim... :) Vika hjá okkur feðginunum er fljót að líða. Allt of fljót... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, febrúar 08, 2006
LOKSINS!!! URGH!!!
Ég er búinn að vera að halda þessu fram í 6 ár. Og nú þegar þessi gaur segir það, þá er það stórfrétt! Jæja, betra að einhver hlusti núna en aldrei. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Pakkinn...
Einu sinni var ég sætur strákur, sexý, klár, skemmtilegur. Ég er það örugglega ennþá... En nú hefur skemmtilegt orð bæzt við lýsinguna... "Pakki..." Í samhenginu: "Það er jú rosalegur pakki að byrja með manni sem á barn." og: "Hann er náttúrulega frábær náungi, en það er enginn smá pakki að eignast allt í einu stjúpdóttur." Sem sagt. Ég er ekki lengur einstaklingur. Ég er pakki :D Ég er búinn að vera að hlera samræður vinkvenna minna um svona hluti og rosalega oft kemur þetta upp þegar rætt er um karlmenn sem eiga börn fyrir. Þeir eru "pakkar." Og ekki svona skemmtilegir pakkar eins og jólapakkar eða tilboðspakkar. Meira svona eins og Þungir og klunnalegir pakkar sem allir kvíða að opna. Pakkar fullir af rukkunum. Já... Ég er blankur og ég er skuldbundinn, en ég er virkilega góður gaur. Og dóttir mín er æðisleg! Hreint út sagt mergjuð mannvera, stórskemmtileg og nærandi í návist. Já, ég kemst ekki allt sem væntanlega kærustu langar að taka mig... En ég á gott heimili sem er ævintýraland útaf fyrir sig. Og svo getur maður bara skipulagt sig aðeins betur, tekið sér frí og svona, reddað pössun. Það þarf bara aðeins meiri fyrirvara... En það þarf víst "sérstaka týpu af konu" til að "sætta sig við pakkann". Þegar fólk talar svona líður mér eins og ég sé holdsveikur... En ég er það ekki, ég er fínn náungi, skemmtilegur og frábær og það er bara þeirra missir ef þær eru "hræddar við pakkann..." :D Svo er það líka: "Þetta var rosalegur pakki, en það var þess virði..." eins og það sé einhver fáránleg fyrirhöfn að byrja með manni sem á barn. Eru börn virkilega svona ótrúleg fyrirstaða í lífinu? Já... ég býst við því... Ég ætti ekkert svo auðvelt með að hoppa í samband með stelpu með barn... Það er nefnilega svolítill "pakki"... Ég skil þetta nefnilega alveg. :) Jahá! YARGH! segir Svabbi Sjóræningi! Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Draumurinn...
Mig langar svo að flytja út í sveit... Vinna einhverja nauðaómerkilega vinnu úti á landi, kennslu eða blaðamaður á landsbyggðarblaði og eiga upptökustúdíó í risinu á húsinu mínu... Læra á trommur... Eiga fallega og góða konu sem ögrar mér vitsmunlega... og börn með henni... Vera stundum fastur heima vegna veðurs... Fá stundum rafmagnsleysi... Fara í sund í sveitasundlaugina... Eiga hund, kannski tvo eða þrjá hesta... Eiga læk sem ég get veitt silung í... Vera bara nett blankur en skorta ekki neitt... ... Djöfull er ég metnaðarlaus. Mmmm... Það er gott að vera metnaðarlaus. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Kalt...
Úff hvað það er kalt þessa dagana... Tvær sængur duga skammt til að hlýja manni á nóttunni. Samt hefur oft verið kaldara, en aldrei svona kalt. So far... Sooo cooold... Harmónikkan er strax komin í góðar þarfir og farin að nýtast vel á ýmsum vettvangi... Tekin fram á þorrablóti á föstudag og leikið hálft ballið með Hraun. Svo er maður kominn í eitthvað Waits/Cave tribute band þar sem Harmónikan leikur stórt hlutverk. Það heitir T.I.M. og gæti verið gaman að taka nokkur gigg með því... Það verður gaman á morgun þegar við feðginin förum aftur að sprella eitthvað saman, fótboltaæfingu og svona. Jújú, auðvitað er einvera nauðsynleg til að melta sín mál. Alveg bráðnauðsynleg. Annars hefur maður verið að gera merkilegar uppgötvanir undanfarið. Furðulegt hvað augljósir hlutir geta flækst fyrir manni. Hananú, best að koma sér í vinnuna... Áttaskýring og hálfsíða af höfuðborg bíða. Hraunæfingin á mánudag heppnaðist vonum framar. Þrjú lög æfð hreint út sagt ágætlega. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur p.s. Hey já! Er að spila ásamt Skúla Þórðar á Rósenberg í kvöld. Ef þið valdið vettlingi, þá megið þið endilega mæta. Ef þið valdið ekki vettlingi getið þið bara verið heima hjá ykkur þið þarna... þið þarna... óvettlingsvaldandi... óvettlings... valdarar... já... [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Úff...
Fékk ofþreytukast... sló niður í hálsbólgu og hósta... lá í rúminu í dag... Er svona að reyna að koma mér á fætur... Annars furðu kátur, merkilega í lagi svona miðað við allt sem á undan er gengið. Tók mér svaka innvortisskoðunarkast í gær og í dag og um helgina... Sú námuvinna skilaði miklu, gengur vel... Æfing með Hraun í gær gekk líka mjög vel :D Hlakka til að sjá hvernig ég kem undan vetri. Tónleikar annað kvöld, við Skúli Þórðarson Trúbador ætlum að spila til skiptis fyrir gesti Rósenbergs :) Húrra... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, febrúar 03, 2006
Hvar fá þessir Arabar alla þessa fána?
Ég vildi að ég ætti svona mikið af fánum. Kannski ef þessar týpur eyddu peningunum sínum í mat og aðrar nauðsynjar í stað þess að skunda niður í Flags'r'us, væri ekki svona mikil eymd í gang... Veit ekki... Auðvitað er ömurlega tillitslaust að vera að gera grín að hópi fólks sem er í veikri stöðu fyrir. Múslimar eru niðurlægðir og verða fyrir aðkasti á Vesturlöndum. Þeir eru birtir sem kvenfyrirlítandi terroristar og ofstækismenn, þegar langflestir þeirra koma ekki nálægt því. Þess vegna er þetta eins og hver annar dissbrandari á konur, gyðinga, svertingja eða aðra þjóðfélagshópa sem eru ekki með völdin. Þetta er valdabirting og frekar ógeðsleg sem slík. En kommon. Þú flytur ekki til einhvers lands og ákveður að halda öllum þínum gildum og hundsa þeirra. Hér á vesturlöndum er hefð fyrir því að hafa húmor fyrir hlutunum og trú er ekki eins stór partur af okkar lífi. Maður hugsar nú að þegar múslimar flytja hingað þurfi þeir aðeins að tempra hugarheim sinn. Ekkert mikið, en kannski smá. Bestu Kveðjur, nenni ekki að pæla í þessu núna, hef annað að gera við heilann á mér. Svavar Knútur p.s. átti æðislegt kvöld í gær í Kefló. [ 0 ] miðvikudagur, febrúar 01, 2006
Tæklingar ýmiss konar...
Eyddi gærkvöldinu í góðu spjalli við gamlan vin... Kynnti hann fyrir hinu stórkostlega menningarfyrirbæri: Túnfisk burrito! Æfði mig á harmónikkuna, fiðluna og sögina... las í bók... Svæfði dótturina... Vaknaði kl. 04.50 í nótt þegar Dagbjört vaknaði (eins og venjulega) og söng rámur fyrir hana afmælissönginn... Þetta verður áhugavert ár. :) Febrúar bara byrjaður... Best að reyna að rækta sig eins mikið og maður getur áður en maður trénar og fellur til jarðar. :D Gengur vel. Þetta verður allt í lagi. Hlakka til að spila á styrktartónleikum á morgun í Keflavík og ég hlakka enn meira til að mæta í dansinn í kvöld. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||