![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, mars 31, 2006
Moggablogg
Hmm... Var beðinn, sem andans maður og snillingurinn sem ég er, að hefja bloggskrif á www.blog.is sem er nýr bloggvefur Moggans. Skoðaði þetta mál og mér virðist þetta bara lúkka vel. Miklir möguleikar í gangi, m.a. möguleiki á að færa bloggið sitt yfir á þetta og svona. Ég sló til og hóf svona "fagmannlegra" blogg á svavar.blog.is. Ég er ekki að hætta að blogga hér, en maður styður nú vinnustaðinn sinn aðeins :D Hérna hér... Líka mjög sniðugt. Ef maður borgar þúsara einu sinni, þá fær maður gígabæt af geymsluplássi að eilífu. Það finnst mér flott og ætla að gera til að sleppa við að borga Símanum 800 krónur á mánuði fyrir 200 mb af plássi. Bless í bili, Svabbi [ 0 ] mánudagur, mars 27, 2006
Hraunverjar á Skjánum...
Hey gæs... Ef þið viljið glápa á heimsókn okkar Hraunara á Skjáeinum... Þá getið þið kíkt á þennan línk hér :D Við erum inni í miðjum þættinum með tvö fín lög. weee... Skemmtilegasta sjó bara finnst mér... Í öðrum fréttum... Setti sjálfan mig í fyrsta sætið í dag... Ágætt að gera það öðru hvoru... Sjáum hvernig það virkar þegar maður setur sjálfan sig í fyrsta sætið. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Kompás...
Hulló... Gaman að sjá Kompás í gær. Dældu menn ekki bara laginu Dansa tvisvar inn í trakkið. Hellafínt. Bíð eftir tékkanum ;) Gaman að vita að Sigmundur Ernir er að fíla mússíkina manns, hohoho... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Fagur morgunn
Gott að mæta snemma í vinnuna og eyða smá tíma í rugl... Nú mætir maður á fund, skipuleggur daginn og klárar verkefnin á mettíma ;D Yiii-Haaa! Það var líka mjög skemmtilegt að syngja með Hraun á Skjáeinum á föstudaginn. Við vorum hressir og Guðrún Gunnars og Felix svona helvíti hress líka... A-ha-hahaha! :D Borðaði köku í beinni! :D Nú veit alveg stór einnar tölu prósenta þjóðarinnar hvernig ég smjatta á súhkulaði... Nema hvað? Nú eru nokkrir rólegir dagar framundan. Smá spilerí, en ekki mikið. Langar að spila fleiri tónleika, færri partý/böll akkúrat núna... Vildi óska að við hefðum verið beðnir um að spila á Aldrei fór ég suður, en það er svo mikið af fólki sem þarf að fá að spila þar að það er fullkomnlega skiljanlegt. Nú er það bara að taka hressilega á lífinu á komandi vikum. :D Kátur, takk fyrir helgina gott fólk. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, mars 22, 2006
Starrar og lavalampi...
Hjálpaði Nönnu elskunni með smá músík í einþáttungi sem hún er að leikstýra og verður sýndur á morgun í Þjóðleikhúskjallaranum klukkan átta ef einhver hefur áhuga á að hlusta á smá leikhústónlist eftir Svabbalinginn... Eftir hjálpina gekk ég út í kalt síðdegisloftið, niður Laugaveginn í átt að leigubílum BSR, til að fara aftur upp á Mogga. Leit upp og sá ótrúlega fallega sjón. 200 starrar í hóp, fljúgandi fram og til baka yfir kvosinni, í þessu handahófskennda en dáleiðandi mynstri sem víkkar og mjókkar og lengist og strekkist og styttist fram og til baka, fram og aftur, út og suður yfir miðbæinn breytti hópurinn um lögun, eins og hann gæti stafað einhvern sannleik um heiminn ef ég horfði nógu lengi á hann. Sjaldan verið eins dáleiddur af náttúrufyrirbæri. Starrar eru yndislegir. Og á meðan löbbuðu allir bara framhjá, sáu ekkert, upplifðu ekkert, hengdu hausinn í kaldri golunni. Ég fann til samúðar. Við Tim fórum víða í dag, leituðum að ýmiss konar lausnum fyrir íbúðina og fundum sitt af hverju. Hlakka til að búa til herbergi á loftinu. Það verður gaman. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur ný-endurreistur hamingjubjörn [ 0 ] mánudagur, mars 20, 2006
Eigum við að reyna...
...að koma Clementine inn á A-listann á Rás 2? :D Það er allavegana inni á B-listanum núna, sem er bara nokkuð gott! Það væri gaman ef þið gætuð hringt upp á rás 2 (5687123) eða sent þeim mail (123@ruv.is eða poppland@ruv.is) og beðið um lagið... En bara ef þið viljið heyra það í útvörpunum ykkar... Ekki vil ég hvetja fólk til að biðja um lag sem það nennir ekki að heyra ;) Bestu Kveðjur, Svabbalingurinn [ 0 ] sunnudagur, mars 19, 2006
Ég mæli innilega með...
...Viðtalinu við Tryggva Felixson hagfræðing og fyrrverandi framkvæmdastjóra Landverndar, sem yfirleitt hefur verið talin hógværustu og yfirveguðustu umhverfisverndarsamtök landsins, í Sunnudagsmogganum, bls. 10-11. Það er áhugavert að lesa t.d. um fjöldaúrsögn Landsvirkjunar, SA, ASÍ og SÍS úr Landvernd þegar samtökin skiluðu niðurstöðu úr afar vönduðu vinnuferli þar sem lagst var gegn Kárahnjúkavirkjun. Skoðanakúgunin alger. Einnig er áhugavert að lesa hvernig erfitt er fyrir frjáls félagasamtök að hegða sér eins og Landsvirkjun og Alcoa sem hafa hundruðir milljóna til að eyða í að kaupa sér velvild með alls konar glingri. Þá er einnig mjög flott viðtal við Andra Snæ í Tímariti Moggans. Hann er algjör hetja strákurinn. Og þvílík tilviljun. Viðtölin taka tvær æðislegar vinkonur mínar, Halla Gunnars og Sigga Víðis. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, mars 17, 2006
Letingi
Latur þessa dagana... Bölvuð skrifleti að taka yfir líkama minn og sál. Er gersamlega að fíla Hanne Hukkelberg um þessar mundir, hún er norsk járnbrautarlest af kærleik og ánægju. Tim er fluttur inn, gríðarskemmtilegur sambýlismaður. Hann er laghentur, myndarlegur og yfirhöfuð snillingur. Ég vona að við eigum eftir að mynda gott lið. En nóg um það. Langaði bara að gera smá inntékk hér. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, mars 13, 2006
Góður morgunpóstur...
Það er oft auðvelt að einfalda hlutina, eins og sá góði drengur og vinur minn, Snorri Pedersen, gerir stundum, með því að segja: "Vinstri grænir eru bara kommúnistar og vita ekki neitt..." Ég vona samt að Snorri, þessi annars harðklári og skemmtilegi náungi, láti af þessum ósið og dæmi menn út frá raunveruleikanum, en ekki dogmum þeim sem stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins hefur innrætt. Hér er ágætis morgunpóstur frá VG, sem ég myndi hvetja Snorra til að lesa, ef hann les þetta blogg ;) Ekki það að ég telji Snorra neitt sérstakan stóriðjusinna, en hér er um að ræða ágætis nýlegt níðingsverk frá uppáhaldsflokkum landsmanna. D og B. Sérstaklega finnst mér frasi Valgerðar Sverrisdóttur æðislegur, þegar hún ku hafa sagt orðrétt á kynningarfundi á Húsavík: "Mér finnst þið ekki nógu glöð." Af því fólk var ekki alveg að deyja úr spenningi yfir álverspælingunni... Fyndið... Hljómar næstum Kúbverskt... [ 0 ]
Óborganlegt...
Á föstudag sat ég smá ráðstefnu um umhverfisvæna atvinnu- og þróunarmöguleika Íslands. Ein merkilegasta fullyrðingin (og í raun staðreyndin) sem þar kom fram var frá fulltrúa CCP (sem framleiða Eve-Online tölvuleikinn). Sagði hann að ekkert væri því til fyrirstöðu að reka fyrirtæki á borð við CCP á Sauðárkróki eða Húsavík, væri fyrirtækinu boðið svipaðir afslættir af sköttum og/eða rafmagni og stóriðjunni. Ég hélt að þetta væru góðar fréttir. Þar sem fyrirtæki með langtum hærri framleiðni en Álverin og langtum minni fórnarkostnað gætu hreiðrað um sig á Landsbyggðinni með fullt af störfum og peningum fyrir alla. En nei... Ég er ekki vanur að birta bréf sem ég fæ, en þar sem þetta kom frá nafnleysingja, þá býst ég ekki við að neinum sárni... "Einhver hefur kosið að senda þér eftirfarandi frétt af mbl.is Skilaboð frá viðkomandi: "Hvaða Skattaasslætti fá fyrirtæki á Húsavík og Sauðárkrók ??.Geta menn komið með hvaða bull sem er á forsíðu morgunblaðsins í nafmi umhverfisverndar ? Eru 110.000 tölvur á Íslandi umhverfisvænni en eitt álver. Hvaða menntun hafa blaðamenn í efnahags og atvinnumálum ? félagsfræði ??." Tækni & vísindi | Morgunbl. | 11.3.2006 | 5:30 Gætu starfað á Sauðárkróki eða Húsavík Ef nýsköpunarfyrirtækjum eins og CCP væri boðið upp á sams konar skattaafslætti og kjör og stóriðjunni væri ekkert því til fyrirstöðu að CCP starfaði á Sauðárkróki eða þess vegna Húsavík. " Fyrir utan orðið Skattaasslætti... og tilhneiginguna til tveggja spurningamerkja... Geta lesendur talið ruglin í þessari ábendingu? Komum í leik. Hvaða fáránlegu rökvillur og heimskupör er þessi sendandi að gera? Ég ætla ekki að segja neitt og læt ykkur það eftir. Ég tel a.m.k. 4. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, mars 07, 2006
Viðhorfspistill dagsins...
Í boði Morgunblaðsins: Loksins frjáls VIÐHORF Gunnar í Krossinum hefur frelsað mig úr hlekkjum rökstuðnings, hlutlægni og orsakasamhengis. Loksins má ég bulla eins og ég vil án þess að hafa áhyggjur af sannleiksgildinu. Gunnar "í Krossinum" Þorsteinsson fékk sunnudaginn 26. febrúar sl. birta hér í blaðinu grein sem ég tók svo sannarlega fagnandi, eins og frelsandi vindi sem hrindir burt fjötrum hversdagsleikans. Umfjöllunarefni Gunnars var kunnuglegt og sosum ekki nýtt af nálinni, óþol hans á samkynhneigðum og viðurstyggð sú sem hann hefur á þeim sem ganga aðra vegi en hann kýs. Það hefur hingað til ekki þótt tíðindum sæta að ofstopamenn túlki bókstafi trúarrita til að henta sinni stefnu. Hvers vegna ættu hryðjuverkamenn sem kenna sig við íslam að eiga einkarétt á því? En eitt var alveg frábært við grein Gunnars sem gefur mér ástæðu til mikillar bjartsýni og gleði. Gunnar skellti fram sjö "staðreyndum" um samkynhneigða og börn þeirra án þess að rökstyðja þær nokkuð frekar með hlutlausum rannsóknum, rökrænum tengslum eða neinu. Við skulum fara yfir fullyrðingar Gunnars stuttlega. Svo við höfum "staðreyndirnar" okkar á hreinu: 1. Börn samkynhneigðra eiga á hættu að alast upp við óvissu um kynhlutverk sitt. (En áhugavert. Mér þætti nú gaman að sjá þá hlutlausu rannsókn sem sýndi fram á það.) 2. Börn samkynhneigðra eru hneigðari til fjöllyndis. (Enn og aftur væri spennandi að sjá þessa rannsókn, en bara svona fyrir mína forvitni.) 3. Börn samkynhneigðra eru í meiri hættu á að missa foreldri (alnæmi, lyfjaneysla, sjálfsvíg (og skoðanabræður Gunnars í Krossinum að berja úr því líftóruna)). Ævilíkur samkynhneigðra karla eru aðeins um fjörutíu ár. (En hvað með ævilíkur samkynhneigðra karla sem bindast hvor öðrum og ala upp barn saman?) 4. Börn samkynhneigðra eiga frekar á hættu að glíma við þunglyndi og önnur geðræn vandamál. (Væntanlega þegar fólk eins og Gunnar í Krossinum heldur sífellt áfram að predika að foreldrar þeirra eigi einnar leiðar passa til helvítis. Það er alltaf hressandi.) 5. Hærra hlutfall barna sem alin eru upp "með slíkum hætti" verður samkynhneigt. (Ég sem hélt að börn samkynhneigðra væru bara opnari fyrir því að koma út úr skápnum ef þau væru á annað borð samkynhneigð. Ekki það að það gerði neitt til að vera samkynhneigður, en það er greinilega mikið mál fyrir Gunnar.) 6. Samband samkynhneigðra er ekki eins varanlegt og gagnkynhneigðra, sérstaklega hvað homma áhrærir, og meðalsambúðartími þeirra er um þrjú ár. (Og ég sem hélt að þegar fólk ákveður að eignast saman börn væri það vottur um skuldbindingu.) 7. Fjöllyndi er nánast lífsstíll homma og hefur það neikvæð áhrif á uppeldi barna. (Auðvitað er það sjálfsagður hlutur að fólk sem ákveður að eignast barn heldur áfram sukki, svínaríi og stóðlífi úti í bæ, auðvitað, hvað var ég að hugsa?) Gleymdi ég einhverju? Þetta er stórkostlegt! Loksins má skrifa í blöðin fullyrðingar sem eru gersamlega út í hött og órökstuddar. Loksins má ég kynna fimm helstu hugmyndir mínar um heiminn og setja þær fram sem staðreyndir án þess að hafa nokkrar áhyggjur af argans bulli eins og rökstuðningi. Án frekari tafa langar mig því að feta í fótspor Gunnars í Krossinum og setja fram nýmótaða heimsmynd mína án nokkurs tillits til rökstuðnings, vísinda, jarðnesks veruleika eða orsakasamhengis. Í grundvallaratriðum felst hún í því að Framsóknarflokkurinn og Krossinn eru hluti af alheimssamsæri sömu aðila og færðu okkur fuglaflensuna, silkiblóm og sembalinn. Og hér höfum við "staðreyndirnar" mínar fimm sem renna enn frekari stoðum undir kenningu mína um heiminn. Þakka þér kærlega, Gunnar í Krossinum, fyrir að frelsa mig undan viðjum rökstuðnings og orsakasamhengis. Áður hefði fólk bara getað vænt mig um fordóma gegn Framsóknarflokknum, en nú get ég, með aðferð Gunnars, auðveldlega "rökstutt" afstöðu mína. 1. Framsóknarflokkurinn er eitt andlita demónsins Gargaroth og allir sem ganga í flokkinn missa sál sína hið snarasta. Framsóknarmenn þekkjast af gatinu aftan á hnakkanum þar sem sálin var dregin út. 2. Krossinn er nornasamfélag sem byggist á fjölvíddafræðum bresku saumakonunnar Hortense Wilkinson, en hún var fræg fyrir semballeik og fjölkynngi. 3. Eitt af inntökuskilyrðunum í Krossinn er fjórða stigs kunnátta í semballeik. 4. Allir sem ganga í Krossinn og Framsóknarflokkinn fá bólusetningu við fuglaflensunni. Leynimottó þeirra er "Þurrkum út andstæðinga framfara." 5. Tilvist mannkyns liggur í fertugustu og fimmtu sveiflutíðni sjöundu víddarinnar. Þetta getur hver maður uppgötvað við það eitt að ganga niður Laugaveginn á fallegum sólskinsdegi. Eruð þið, lesendur góðir, nú ekki öllu nær um veruleika heimsins? Datt mér ekki í hug, enda er þessi aðferð mun fljótlegri og vænlegri til árangurs en að vera endalaust að flækja sig í rök og sannleika, því satt að segja gæti maður með þeirri aðferð komist að því að maður hefði rangt fyrir sér, að framsóknarmenn væru ekki allir sálarlausir og að í Krossinum leyndist ágætis fólk. En hvers vegna að vera að flækja heiminn með rökum, umburðarlyndi og hlutlægni? Stuttlega yfir í aðra sálma. Á dögunum sá ég líka í því fróma riti DV tvö svör við spurningu dagsins sem vöktu athygli mína. Spurt var hvort múslimar mættu reisa sér mosku hér á landi og svöruðu tveir áhugaverðir menn svo til: "Nei, þetta fólk á að aðlagast okkar menningu." Ég vona að þessir menn muni það ef þeir einhvern tíma flytjast til Indlands eða bara til Ítalíu. Þá skulu þeir ekkert vera að leita að lúterskri kirkju, heldur bara taka upp hindúatrú eða hoppa yfir í kaþólskuna, það ætti ekki að vera neitt mál. Þeir eru komnir í annað land, best að aðlagast þeirra menningu. Að lokum vil ég koma að leiðréttingu. Á dögunum hljóp ég á mig og skrifaði hér í viðhorfspistli að kirkjan vildi ekki leggja blessun sína yfir sambönd samkynhneigðra. Réttlát reiði brast út hjá einni sannkristinni konu og hringdi hún bálreið í blaðið. Þetta var auðvitað kolrangt hjá mér. Auðvitað vill kirkjan fúslega veita samböndum samkynhneigðra blessun. Hún vill bara ekki vígja þau. Ég biðst innilega afsökunar. Eftir Svavar Knút Kristinsson (svavar@mbl.is) [ 0 ] föstudagur, mars 03, 2006
Mesta tímasóun ævi minnar...
Ég hef nýlokið við að eyða verst eyddu 30 mínútum lífs míns. Þær fóru í að lesa bók Egils "Gilzneggers" Biblíu Fallega Fólksins... Fyrir forvitni og óskhyggju um að hér væri að ræða ólíkindatólshátt með hárbeittum ádeiluhúmor kíkti ég í bókina og varð fyrir svo miklum vonbrigðum að mig langar til að biðja Gilz um að borga mér 20.000 kall, sem er prísinn fyrir illa eyddan hálftíma í mínu lífi, til baka. Ókei... Ég nenni ekki að eyða mörgum orðum í þetta drasl. Ókei að grínast eitthvað með hlutina, en það sem gerir útslagið er að húmor mannsins er svo einhæfur og mikil útjöskun á tískubólunni að það er ótrúlegt. Enginn heilsteyptur stíll, vald hans á tungumálinu minnir á jaðar-einhverfan kverúlant sem heldur að hann sé "ógissla töff" á málefnin.com. Blah! Mannfyrirlitningin, fordómarnir, þröngsýnin og hrein heimska sem lekur af þessari bók eru hreint út sagt ótrúleg! Fáið hana lánaða á bókasafni eða eitthvað gott fólk. Ekki kaupa þetta drasl og styðja við bakið á lélegri útgáfu. Það væri bara synd! Svo veit ég ekki hvaðan hann fær þær hugmyndir að artífartar (sem hann kallar trefla) hlusti á Damien Rice og Coldplay! Ég meina, ég þoli ekki Artífarta sjálfur, en að væna artífarta um að liggja svona í meginstraumnum er nú að taka af þeim það eina sem þeir eiga sérstaklega fyrir sjálfa sig. Þessu greyi og öllu hans hyski er vorkunn. Ókei, bara svo það sé líka á hreinu: Ég er ekki "hneykslaður" á neinn hátt á bók Gilzeneggers. Hún nær ekki að hneyksla mig. Hún nær ekki að vera fyndin í hring eða neitt. Hún er bara barnaleg og eitthvað svona prívathúmorsdrasl sem allir vinahópar eiga á einhverjum tímapunkti en engum dettur í hug að gera neitt með af því þetta á að vera vaxið af mönnum fyrir tvítugt, eða allavegana fyrir þrítugt ef menn eru með greindarvísitölu á við meðal simpansa. Ef ég hefði hneysklast hefði ég hvatt fólk til að kaupa og lesa bókina, enda vil ég frekar hneysklast en stara dauðeygur út í loftið og vonast eftir að einhver stingi mig í hendina svo ég vakni aftur til lífs og anda. Sorrí Gillz, Sorrí kallarnir.is, þetta er sorglega léleg lesning og lítið annað en upphafning á einhverjum prívathúmor hjá strákaklúbbi sem gekk of langt í djókinu sínu. Þetta er bragðtegund síðustu viku og gersamlega búið að vera. Bestu Kærleikskveðjur, gaurinn sem er hvorki hnakki né trefill né nokkuð annað, bara manneskja... Svavar Knútur Kristinsson [ 0 ]
Ég held ég geti með sanni sagt...
Að goodbye my lover með James Blunt sé ljótasta og ógeðslegasta lag í heimi og Blunt eigi skilið að vera varpað á þverhnýptan klettavegg með valslöngvu hverrar skotfesting er bundin við hans ónýta pung... Takk fyrir... Svavar Knútur [ 0 ] fimmtudagur, mars 02, 2006
Hressi Gaurinn...
Úber hressi gæinn ætlar ekkert smá ýkt að spara núna ha? Engin Árshátíð fyrir mig, ekkert pressuball, bara vinna vinna og versla í Bónus, hætta að borða subway og svoleiðis drasl og bara slafra í sig heimaeldaðri fiskikássu... Mmmm... Svabbinn kann að meta góðan heimamat og sparnað... Nú þarf bara að fara að finna leiðir til að losna við skuldir dauðans og þá verður Svabbinn ennþá kátari... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, mars 01, 2006
Til hamingju Húsavík...
Jæja... ég verð nú bara að segja að mér léttir að Skagafjörður varð ekki fyrir valinu, enda hefði það verið hrikalegt. Gott að móðursýkiskastinu léttir þá þar. En í tilefni dagsins vil ég taka undir með vini mínum Andra Snæ Magnasyni og flagga skjaldarmerki framfararíkisins Norður Kóreu í tilefni dagsins. ![]() [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||