Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, apríl 27, 2006
  Breytingar og vesturför...
Hey Hó gott fólk.
Breytingar í nánd hjá mér... All svakalegar og all skemmtilegar... segi meira um það fljótlega... :D

Og í öðrum fréttum... Hraun á leið á Ísafjörð næstu helgi að spila gleði gleði gleði :D Ball - Tónleikar - Partýball! :D bissí skedjúl :d

Gizt inná vizt-inni og allt bara hrezt :D

Í enn öðrum fréttum... fór í læknisskoðun um daginn og fundust í mér fullmótaðir eggjastokkar og leg... ég er þá tvíkynja eins og ég hélt eftir allt saman. Svona er það þegar maður kannar ekki líkama sinn almennilega í æsku... :) Þetta útskýrir mánaðarlegar blæðingar sem ég hélt að væru út um bossann á mér...

Nei heyrðu... það var einhver kona sem var með það...

Alveg rétt, ég er ennþá bara karlmaður...
Fjúkk... þarna brá mér...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 18, 2006
  Staða mála ágæt...
Löggutékkið alltaf hresst...
Staða mála góð á landsbyggðinni...
Engin eymd, bara rólegheit og gott að frétta.
:D

Sundsprettur í fyrramálið hljómar eins og góð hugmynd...
Vill einhver koma með í Vesturbæjarlaugina?

Annars er það að frétta að einhver hreyfing virðist komin á plötumálin...
Auglýsi eftir flottum myndum af hljómsveitinni sem fólk hefur tekið. Mig langar að setja upp smá fanmyndasíðu á hraun.tk :)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Páskahelgin að baki
Jæja... hér sit ég að ljúka vaktinni hér uppi á Mogga... rallalallalæ...
Páskahelgin að baki, klippt í sundur með vinnu á laugardeginum, en það er allt í lagi, rallíræ...

Nú taka við tveir vinnudagar í viðbót og svo frí sweet frí...

Urgh...
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

p.s. Á einhver Final Fantasy X fyrir PS2 sem hann getur lánað mér?


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 13, 2006
  Blogþreyta...
Kemur fyrir mann að maður hreinlega er alveg blokkeraður...
Samt búið að vera stórkostlega skemmtilegur tími undanfarið.
Frábærir tónleikar á Rósenberg með Hraun síðustu helgi. Fara án efa á topp fimm yfir bestu tónleika-partý-böll ever...

Nú svo vorum við Eva í alveg frábærum bíltúr um Suðurlandsundirlendið, enduðum í gufubaði á Laugarvatni. Frábært að sitja þarna inni og heyra gutlið í hvernum sem gufubaðið situr ofan á.

Svo fréttum við að það ætti að rífa þetta og Bláa lónið ætlaði að reka pleisið í framtíðinni...

Ókei... ekki lengur 350 kall inn í náttúrulega gufubaðið með svona óttalega notalegum og heimilislegum blæ. Heldur fullt af hi-tech græjum og skápum og stálinnréttingum og 1300 kall inn... Hlakka til...

Arg... ætla að fara að fóðra köttinn hennar mömmu...
Bæ í bili.
Svavar Knútur


[ 0 ]
föstudagur, apríl 07, 2006
  Tónleika-partý-ball - Laugardagskvöld
Hraun verður á Café Rósenberg annað kvöld, laugardagskvöld! :D
Hressileikinn uppmálaður.
Mætið 22. Við byrjum rétt upp úr því.

Hlakka til að sjá ykkur.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Hvernig er það?!?!?!?
Þurfa Hraunverjar ekki að blása til tónleika-partý-balls fljótlega???

Hvernig hljóma páskarnir?
Eru einhverjir dyggir Hraun-aðdáendur sem væru til í að koma á slíkt sammenkomst, kannski fyrir 500-1000 kall á haus, svona til að standa undir kostnaði?

Hvað segir fólkið?

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 06, 2006
  Sungið í kvöld...
Urh... mig langar að fara að halda almennilega tónleika bráðum með Hraun... Vel auglýsta og með fullt af hressu fólki á svæðinu, jafnvel bara tónleika-partý-ball af gömlu góðu sortinni.

Kannski bara í Iðnó?

En talandi um Iðnó...

Þar er ég að fara að spila í kvöld, tvö til þrjú lög á tónleikum hjá Sigga Björns. Hann er góður gaur sem hefur fyrir einhverja skrýtna tilviljun tekið ástfóstri við uppáhalds lúðann ykkar.

Verð þar svona upp úr níu.
Það verður bara gaman :D

Hlakka til að sjá ykkur sem viljið mæta og sjá Sigga Björns spila og jafnvel lubbann sjálfan. :)

Bestu kveðjur,
Svabbalingurinn


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???