![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
sunnudagur, maí 28, 2006
Tvenn vonbrigði gærdagsins...
Það var pínu letdown að Björn Ingi kæmist inn í Borgarstjórn. Nú fer hann beint í oddastöðuna með hressa eftirláta "ég geri bara allt sem þið viljið" stemmaranum og hefst svo handa við pólítískar stöðuveitingar a-la B-listinn. Frekar hefði ég viljað sjá hreinan D-meirihluta í borginni. Mesta letdownið var samt Skagafjörður, þar sem VG misstu fylgi og Framsókn tók fylgi frá Sjálfstæðismönnum. Nú hafa framsóknarmenn jökulárnar í höndum sér og geta bara gert það sem þeir vilja. Það er ömurlegur veruleiki og þeir munu rýra framtíðarmöguleika ferðaþjónustunnar í héraðinu verulega. Bless bless rafting, halló fjörutíu ára líftíma jökulsárvirkjun sem mun "vonandi" knýja olíuhreinsunarstöð í Kolkuósi í stað þess að þar rísi skógur og fræðasetur. Framsóknarflokkurinn er það versta sem getur komið fyrir Skagafjörðinn og ég vona að Sjálfstæðismenn, Samfylking og Vinstri Grænir finni það og átti sig á nauðsyn þess að bjarga firðinum frá þessum fornaldardreka. [ 10 ] þriðjudagur, maí 23, 2006
Til lykke!
Til hamingju Jón Geir og Nanna með hana Úlfhildi Stefaníu. :D AWWWWWW :D Happy Onkel Svabbi :D [ 2 ] mánudagur, maí 22, 2006
Hálfviti...
Jæja... einhver hálfviti sem kallar sig Kannberreks hakkaði sig inn í kommentakerfið og póstlistann minn og skemmdi bæði. Ég átti sem betur fer dálítið gömul bakköpp af báðum. Til hamingju Kannbekeks... Mission accomplished. Þú skemmdir síðuna mína pínulítið og minnkaðir líkurnar á því að einhverjir Hraun-aðdáendur fengju tölvupóst næst. Vá... Þessi gaur ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Ekki pentagon eða Ríkisstjórn Íslands. Heimasíða Svabba... Vá... Metnaðarfullur gaur maður. Hvað næst? Hey, Kankeks, ég veit um róluvöll sem þú getur krotað út og jafnvel kveikt í dekkjarólu á. Anarkí!!! Anarkí!!! Bíddu aðeins á meðan ég baða mig í geislum stórkostleika þíns Kanbereks... Og þvílíkt "Challenge". Að brjóta upp 128 bita encryptuðu textafælana mína sem ég nota til að geyma póstlistann. Maðurinn er mastermind a-la Dr. X. Hey Morpheus, má ekki bjóða þér að reyna að opna lásinn á hjóli dóttur minnar næst. Hann er alveg með 999 möguleikum. Stórkostlegt og næstum því jafn góð nýting á tíma þínum. Ahhh... Búinn að venta... Hey, já, ef þið skráðuð ykkur á Póstlistann fyrir minna en tveimur mánuðum, endilega skráið ykkur aftur inn. Bestu Kveðjur, Svavar [ 6 ] fimmtudagur, maí 18, 2006
Ummæli aldarinnar
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra um landið sem fer undir Hálslón Kárahnjúkavirkjunar: "Þetta er eitt af því sem ég gerði upp við mig fyrir löngu löngu síðan að þetta er réttlætanlegt vegna þess hvað það breytir miklu fyrir þjóðina í heild og fyrir Austurland að fá þessa framkvæmd og skapa öll þessi störf. En mér, það sem mér finnst kannski ekki sanngjarnt það er það hvernig fólk metur þetta algjörlega án þess að hafa séð þetta svæði. Því að það er ekki hægt að tala um það að þetta sé einhver sérstök náttúrufegurð sem að hér fer undir, undir lón. Vissulega mikið land en það er engin sérstök náttúrufegurð í þessu landi þegar að við erum að horfa á landið okkar í heild." Takið eftir orðræðu forræðishyggjumannsins. Valgerður... Minkabóndinn frá Grenivík. Með stúdentspróf og skírteini úr þýsku og enskunámskeiðum. Þessari konu er treyst fyrir framtíðarsýn um viðskipti og uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Úje... Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ]
Þetta hlýtur að vera í fyrsta skipti...
Klukkan er 06.40... Ég sit við skrifborðið mitt uppi á Mogga... Það er dauðaþögn, ég og vaktmaðurinn niðri á fyrstu erum einu verurnar í húsinu. (fyrir utan smádýrin...) Gat ekki sofið... Leið eitthvað illa... svona undir bringspölunum... Furðuleg tilfinning að vera hérna einn á skrifstofunni eins og einhvers konar morgundraugur. Samt ágætt... Sötra bara kaffið mitt og borða brauðsneið og reyni að koma einhverju í verk áður en allir símarnir fara að hringja og fólkið að mala... Urm... Er samt ennþá með einhvern seyðing... Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, maí 16, 2006
Yummy Yummy Yummy I got love in my tummy...
Eru ekki allir kátir? Nóg að gera í vinnunni. Fullt af skemmtilegum verkefnum að baki hérna á Mogganum :D Ah hvað þetta eru búnir að vera brjálaðir dagar... Fór í ljós í gær... í fyrsta skipti í langan langan langan langan langan tíma. Brann... Var rauður eins og karfi og helaumur. Labba núna eins og róboti. Hlæiði bara helvítin ykkar! You'll all burn in hell!!! Ah... Það var verið að bjóða mér í ansi skemmtilega flugferð eftir rúma viku... veit ekki hvort ég fer, en mig langar rooosalega :D [ 1 ] sunnudagur, maí 14, 2006
Nýjasti horbjóðurinn...
URGH! Þessi ó-maría drulla sem er að tröllríða öllu núna er eitt það viðbjóðslegasta drullusubb sem ég hef nokkurn tíma heyrt!!! Mig langar að skera af mér eyrun þegar þetta kemur í útvarpið! Sjæse! Sorrí ef þetta er einhver vinkona mín, en þetta er bara viðbjóður sem hefði betur farið í lakið... En mun betri er sýning Benedikts Erlingssonar, Mr. Skallagrímsson, sem sýnd er á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Við Eva Skelltum okkur á þetta í gær og ég verð bara að segja, farið undir eins, þetta er brilljant sagnastund og Benni fer á kostum í flutningi sínum á Egils sögu. Heimsótti líka Skaganesið í gær, það var mikið stuð, hitti gamla vini og átti bara overall æðislega kvöldstund með kærustunni. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] laugardagur, maí 13, 2006
Morgunógleði...
Helvítis leiðindi á Blogger þessa dagana... "Aldrei kaus ég Framsókn" er besta slagorð seinni tíma, enda er það besta vísbendingin um að menn séu gersneyddir gagnrýninni hugsun að þeir kjósi þann framapotaraflokk. Sit hér á Mogganum, alveg dýrindishress og er á leiðinni upp í Borgarnes og Bifröst að kóvera tvo atburði, taka myndir og viðtöl. Merkilegt hvað þetta starf er allt í einu orðið skemmtilegt eftir langt niðurlægingartímabil ;) Mætti seint í morgun, kom við í bakaríinu, þar sem var löng röð og uppáhalds mannlega heimskan mín var í fullum gangi. Leyf mér að útskýra með litlum leikþætti... AFGREIÐSLUSTÚLKA 1: Númer 53, númer 53? KÚNNI 1: Hérna! Ég er fimmtíu og þrjú. AFGREIÐSLUSTÚLKA 2: Númer 54, númer 54? KÚNNI 2: Hérna! Ég er fimmtíu og fjögur. AFGREIÐSLUSTÚLKA 3: Númer 55, númer 55? Númer 55? Númer 55? ... Númer 56? KÚNNI 3 (Með drumbslegri rödd...): Halló! Ég er númer fimmtíu og fimm! AF HVERJU GETUR ÞETTA PAKK EKKI DRULLAÐ SÉR TIL AÐ HLUSTA EFTIR ÞVÍ HVORT VERIÐ SÉ AÐ KALLA NÚMERIÐ ÞEIRRA? ÉG MEINA! ÞAÐ ER FIMMTÍU OG FJÖGUR, AF HVERJU SPERRIRÐU EKKI EYRUN MANN ANSKOTI? Helv. Framsóknarmenn... Jæja farinn að kóvera málþing um Draumalandið hans Andra Snæs, sem btw. er besta bók í heimi :D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur p.s. Fólk er oft að væla að við fjölmiðlafólk eigum að vera svo hlutlaust. Fuck that! Það er bara blekking og rugl að halda fram hlutleysi. Ég hef sagt það og mun segja það aftur, það besta sem getur komið fyrir framsóknarmann er að láta mig taka viðtal við sig, því ég er svo meðvitaður um eigin skoðanir og það að allir vita um þær, að ég passa mig 180% að láta ekki nappa mig á fordómum í fréttaflutningi. Sömuleiðis er það hryllingur fyrir umhverfisverndarsinna að láta mig taka við sig viðtal, því ef ég kem auga á rökvillu eða rugl, þá hakka ég þá í mig, enda vil ég ekki láta saka mig um að vera eitthvað mjúkur við skoðanabræður mína. Svoleiðis er þetta í 90% tilvika hjá fréttafólki, það er meðvitað um skoðun sína og gerir ráð fyrir henni. [ 0 ] fimmtudagur, maí 04, 2006
Gaman fyrir vestan...
Úff hvað ég er orðinn latur bloggari... Eitthvað er vorið farið að hlaupa í mig. En nóg um það, það var gaman fyrir vestan. Við spiluðum heví fínt á Langa Manga og Krúsinni, en enduðum með einhvern þann fáránlegasta barreikning sem sögur fara af, þrátt fyrir að enginn okkar hafi verið áberandi ölvaður nema Gummi... Sem blóðgaðist á götum Ísafjarðar... Það er svo gaman að fara Vestur. Überskemmtilegt alveg :D Hlakka líka til að spila í Iðnó í kvöld. Jei! Svo hitti ég góðan mann sem vildi endilega fá okkur á Nasa, sem er líka gaman. Hlakka bara til að takast á við ýmislegt framundan. Breytingarnar umræddu... Ég er að fara að taka að mér nýtt starf sem ég er geeeðveikt spenntur fyrir. Ég mun leita mér hjálpar við það á komandi mánuðum, enda er um gríðarlega töff djobb að ræða. Ho hum... Hlakka til að sjá ykkur, ef þið kíkið á Iðnó í kavööld. :D Og ég skil við ykkur með quote í Jónu Kristínu Heimisdóttur, Nýkrýnda ungfrú Reykjavík, tilvitnun sem leiðir í ljós dýpt hennar og persónutöfra: "Þetta er sætur strákur, annars væri ég nú ekki með honum." Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||