![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
fimmtudagur, júní 29, 2006
Platan komin í mix... Loksins!!!
ARGH! Upptökurnar búnar á Hraunplötunni... lagalistinn er u.þ.b. svona: Your love was death to me Clementine Impossible Mother's day Kysstu tímaglasið Beautiful way to die Stories You should call a doctor Call off your cavalry og Goodbye my lovely Hlakka til þegar þetta er búið, svo við getum byrjað að vinna að næstu plötu og svo þeirri þriðju, sem við erum líka byrjaðir að semja... Geimóperuna The Amazing adventures of Johnny Rocket and Retro Bob... IN SPACE!!! en nema hvað... Masteruð útgáfa ætti að vera til í næsta mánuði snemma og platan ætti að koma út með haustinu... Jei:D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] föstudagur, júní 23, 2006
Hjólið komið í lag...
Ahhh... kominn aftur á trusty 20.000 króna hjólið mitt... Virkar vel og þrír gírar eru kappnóg. Að vísu rugluðust viðgerðarmennirnir pínu þegar þeir settu nýja afturgjörð og dekk á hjólið... Þeir settu allt eitthvað dálítið skakkt á, þannig að það var geðveikt erfitt að hjóla aftur upp í vinnu... Það var sosum allt upp í móti, svo ég hélt bara að ég væri kominn úr formi, en þegar ég þurfti að stíga pedalana fast niður brekku, þá fór ég að átta mig á að eitthvað væri að... Jovist... Dekkið nuddaðist nokkuð fast utan í grindina... Það var svo skakkt sett á að það var eins og að hjóla upp 20 gráðu brekku að hjóla á jafnsléttu, svo mikill var núningurinn. Hey, ef ég vil puða, þá fer ég í Laugar... En nema hvaaað. Er ekki kallinn flottur núna!!! Þeir löguðu þetta eldsnöggt og allt í fína bara... Svabbi ánægður með lífið og heimurinn til mestu prýði. Ám... :D Nýja djobbið er stórskemmtilegt og ég kann svo sannarlega vel að meta það :D En nú ætla ég að drulla mér heim hvað úr hverju og komast norður á Skálá, þar sem ég ætla að rækta tengslin við dóttur mína. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, júní 21, 2006
Annars...
...eru þetta og þetta án efa myndir dagsins... Meðlimir Hrauns að bera saman ammóníaktáfýlu á Ísafirði... [ 0 ]
Helvítis hagkaupshjól!
Keypti mjög beisik borgarhjól hjá Hagkaupum. Virkaði mjög fínt... Þangað til það hreinlega fór að detta í sundur u.þ.b. einum mánuði eftir að ég keypti það! HVAÐ ER MÁLIÐ?!?!?! My wrath will be swift!!! Ég get samt ennþá hjólað... sem betur fer... Bremsurnar bara að fara í rugl og skrölt og læti úti um allt! Djöfulsins draslidrasl! Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] þriðjudagur, júní 20, 2006
AHHHHH...
13 tónleikum lokið á rétt rúmum tveimur vikum... Ekkert smá feginn að þetta er búið... Ég er svona uppgefinn í hausnum og orðinn rammhás... Gekk samt furðu vel og endalaust gaman að syngja í 3ja ára afmæli Hrauns og síðan í 30 ára afmæli Jósa Daginn eftir :D T.I.M. Projektið búið að spila sitt rennsli og lauk því á Grandrokk á sunnudag, sem var æðislega gaman. Djísuss hvað það er gaman að vera ég núna... (Fyrir utan ákveðna hluti sem eru að sjálfsögðu drulluerfiðir og þjakandi á sálina.) Farinn að hjóla allt sem ég fer, ótrúlega lítið mál. Setti mér fyrst það sem markmið að keyra aldrei óþarfa ferðir. En síðan útvíkkar hugtakið óþarfi svo mikið allt í einu. :) Brilljant! Strákurinn bara orðinn hraustur. Svo er maður að byrja í nýju vinnunni þessa dagana... Ráðgjafi á sviði forvarna og félagsauðs í Laugardal og Háaleiti. Mjööög skemmtilegt djobb með mörgum skemmtilegum vinklum. :D Fyrsta verkefnið mitt er að koma þessum nammigrísum sem ég vinn með upp á bragðið á grænmeti og ávöxtum. Maður er svo mikið heilsunött... Ahhh... Farinn að sækja dótturina og koma henni á fótboltaæfingu, enda ætlar hún svo sannarlega að standa sig með prýði á því sviðinu. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur... Stoltur pabbi... [ 4 ] laugardagur, júní 10, 2006
Keflavík-Húsavík-Akureyri... The Story so far...
Hæ, sit hér á Akureyri hjá Dreng vini mínum eftir eina þá skrýtnustu máltíð sem ég hef nokkurn tíma í mig látið... Best að fara yfir dagana sem að baki eru. Miðvikudagur: Keflavík... (treflavík) Paddy's. Geeðveikt gaman. Pólverji dó í miðju gleðiöskri yfir því hvað honum fannst Testiculus in Musica geðveikt band. Sveitin klöppuð upp af brjáluðu Horde aðdáenda... Fengum mikinn stuðning frá Rjúpunni vini okkar og þetta var bara æðislegt gigg... Fimmtudagur: Húsavík... Gamli Baukur... Furðuleg upplifun... Eftir fimm og hálfs tíma ferðalag komum við á svæðið, hittum engan vert, ekkert kaffi eða neitt... Máttum bara selja inn í hluta hússins, sem leiddi til þess að hópur fólks stóð og sat fyrir utan og hlustaði ókeypis á tónleikana og var bara í góðum fílíng. Svo kom það inn þegar Fanney hætti að rukka inn þegar tónleikarnir voru rúmlega hálfnaðir... Voðalega ánægt með sig... Þetta var furðulegt... Samt... ég held við höfum haft fyrir bensíninu... Var boðið í hvalaskoðun daginn eftir, en þegar ég mætti 3 mínútur yfir 10 var báturinn kominn út úr höfninni... Fljótur af stað... samt... allt í fína. Föstudagur: Akureyri - Vélsmiðjan... Erfiðasta giggið... Eitthvað hafði vertinn misskilið okkur og bókað aðra hljómsveit um kvöldið, svo við þurftum að byrja kl. 21 á föstudagskvöldi... ekki alveg að gera sig. Fjórir voru mættir þegar ég byrjaði að spila. Svo kom einn pólverji sem dó mun ótignarlegar en hin Keflvíski. Svo fór eitthvað lið að slæðast inn, en vildi sko ekki borga, því það var að koma á "ball með Úlfunum..." Fljótlega fór þetta lið (um fimmtugt) að ókyrrast og gera hróp að hljómsveitinni. "Spiliði eitthvað kántrý!!! Eitthvað Íslenskt hérna!!! Spiliði eitthvað skemmtilegt! Enga helvítis harmónikkumúsík Hérna! Fariði að hætta, það á að vera ball!!!" Ég braut odd af oflæti mínu og hreytti ljótum ókvæðisorðum í eina kerlingu og kvað hana ekki hafa fengið í budduna árum saman og hún þyrfti ekki að eiga von á því í kvöld. Við lékum tvö lög til viðbótar en svo kom Vertinn ákveðinn á svip og sagði kominn tíma á ball.. Það var samt eitthvað fólk þarna sem var að fíla þetta allt í lagi, en þetta var held ég alveg koooolvitlaus staður til að spila á. Þetta var eins og að spila Slayer fyrir Bylgjulestina... En nú er stefnan tekin á Egilsstaði (Fellabæ) Þar sem Svart hvíta hetjan er áfangastaðurinn. Hlökkum til, en svo verður krúsað heim í góðu chilli. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 10 ] miðvikudagur, júní 07, 2006
Þvílíkt letdown...
"Djöfladagurinn" kom og fór og enginn kom djöfullinn eða eldglæringar á himnum... Eitthvað eldfjall í suðurhöfum hélt áfram að freta frekar lágstemmt, en það var allt... Ég sem var tilbúinn með skiltið... "Við bjóðum helvíska vini okkar velkomna..." á helstu tungumálum heims... "We welcome our hellish friends...", "Wilkommen, unsere teufeliche Freunde...", "Bienvenue, mon diabolique amants...", "Væk med skram og skid, skidte udlandere..." (Já... danir eiga erfitt með þetta...) Allir biðu í eftirvæntingu, en enginn skreið djöfullinn upp úr holu í jörðinni. Einn asni skreið að vísu niður í holu... En enga fann ég brennisteinslyktina... Bansett Jib... Sjötti sjötti tvöþúsund og sex indeed... Fussumsvei... Svavar Knútur [ 4 ] mánudagur, júní 05, 2006
T.I.M. í kvöld jei!
Aaahhh... T.I.M. projektið spilaði á A.Hansen í gær við góðar undirtektir og hér má sjá eina æðislega mynd sem var tekin. ![]() Hlakka til að sjá ykkur kl. 21.30 í kvöld... Ég opna prógrammið með rólegheitum og svo sjáum við hvernig gengur :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] sunnudagur, júní 04, 2006
Varðandi færsluna um "vænissýkina"
Ég hugsa að margir hafi einhvern tendens til að rugla saman frústrasjón og biturleika. Ég er t.d. stundum frústreraður yfir hversu rólega mér gengur, en það er líka bara eðlilegt í öllu starfi. En ég verð aldrei bitur yfir gangi mála eða eitthvað brjálað reiður eða vonsvikinn út í heiminn... Kommon! Ég er svo happí yfir því að fá að njóta þeirra forréttinda að spila fyrir fólk að ég er að springa :D Mmmm! :) Það má ekki rugla þessu saman. Pirringur yfir rólegri tíð og hægri velgengni er alls ekki biturleiki eða neitt svoleiðis... Bara pirringur :D Sjáumst í kvöld eða á morgun :D Bæbæ, Svabbi [ 2 ] laugardagur, júní 03, 2006
Gaman á Sólheimum
Oh! Það var endalaust gaman að opna listasumarið í Sólheimakirkju... Mér leið svo vel og þetta var svo skemmtileg reynsla! Og ofan á allt, þá fékk ég ekki blóm, heldur körfu með lífrænt ræktuðum ávöxtum... Það var geðveikt kúl og ég ætla að éta þetta allt! Takk þeir sem mættu, þetta var ógleymanlegt. Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] föstudagur, júní 02, 2006
Frústrasjónir og vænissýki...
Hmmm... Ég hef verið að pæla í mörgum hlutum fram og til baka undanfarið... Einn af þeim er hin ævarandi frústrasjón mín yfir skorti á break through... (Ég er alltaf að reyna... þú veist hvað ég meina...) :) Jújú... vissulega langar alla til að njóta viðurkenningar og maður hefur oft frústrerað sig yfir því að Hrauni eða manni sjálfum er ekki boðið að vera með á ýmiss konar tónleikum. Er það ekki bara sííígild frústrasjón allra listamanna? Um daginn sagði vinur minn við mig að "þetta er ekki af því að þessu fólki sé eitthvað illa við þig, þetta er af því að það bara hreinlega registerar þig ekki..." Ég fann að eitthvað í þessu sló mig... Og ég hugsaði í smá tíma... Og áttaði mig síðan á því sem hann var að segja... Heldur vinur minn virkilega að ég sé svo vænissjúkur að halda að fólki sé illa við mig? Er það í alvöru eitthvað sem fólk myndi halda? Auðvitað veit ég vel að fólki er ekkert illa við mig, ég þyrfti að vera mjööög geðveikur til að halda það. Það sem pirrar mig er einmitt að þrátt fyrir mikla og ærna fyrirhöfn virðist það tefjast að registerast sem stærð í tónlistarlífinu. Hvers konar misskilningur er þetta eiginlega hjá vini mínum og hvað hef ég gert til að valda honum? Það er rosalega sláandi að uppgötva að vinur manns upplifir mann sem vænissjúkan (algjörlega óverðskuldað). Nú er ég alls ekki vanþakklátur þeim mikla fjölda fólks sem kann að meta Hraun og allt sem maður er að gera. En það er bara stundum eins og það vanti herslumuninn... Kannski er músíkin ekki nógu góð, kannski hreyfist maður ekki í réttum samfélagskimum og minglar ekki við rétta fólkið. Sama hver ástæðan er... Þetta er bara pirrandi ástand fyrir hvaða listamann sem er, að vera núllstærð í listaheiminum. En að halda að maður sé eitthvað vænissjúkur er náttúrulega bara rugl. Djísuss... Svo fór ég að hugsa... Ég vona að þessi vinur minn sé sá eini sem heldur þetta... Annars er eitthvað fólk úti í bæ með alveg fáránlegar hugmyndir um mín lífsviðhorf. Þetta er allt að koma... Ég finn það. Fólk er smám saman að byrja að registera okkur Hraunara og fólk mætir og helst á trúbadoratónleikunum mínum... Sem er æði :) Ef maður bara fer eigin leiðir og spilar eigin tónlist af hógværð og ást, þá hlýtur þetta að koma. Við verðum kannski aldrei bragð mánaðarins, en við verðum allavegana einhvers bragð, sem er gott... Mér þykir vænt um hvern einasta einstakling sem skráir sig á Póstlistann eða sendir hljómsveitinni póst eða bloggar um Hraun eða mig. Mér finnst það bara æði að fólk kunni að meta það sem maður hefur fram að færa. Það er svo mikilvægt að finna fyrir því að fólk sé að registera það sem maður er að gera. En vá... Vinur minn sem sagði þetta við mig má svo sannarlega endurskoða hugarheim sinn. Ég er ekki svo paranoid að ég trúi því að einhverjum sé illa við mína persónu, enda er ég bara virkilega ljúfur og elskulegur gæi sem langflestir fíla sem kynnast... Held ég... Hlakka til að sjá ykkur í kvöld á Rósenberg, eða á morgun á Sólheimum... Eða annað kvöld á Rósenberg... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 5 ]
Gaman að þessu... :D
Hraun í sex til sjö um daginn... Við erum svona hálfa leið inn í þáttinn... Hraun í Sex til sjö... weee... Annar dagurinn í nýju vinnunni gengur vel... ég er kominn langt á leið með að fylla borðið mitt af drasli og kaffibollum... Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ]
Ærin verkefni framundan...
Hey gang... Má ég rekja fyrir ykkur prógramm komandi daga? Í kvöld, föstudag kl. 22.30: Rósenberg - einn að trúbadorast með þunglynda músík veeei... :) Á morgun, laugardag kl. 13.30: Sólheimakirkja - Einn að trúbadorast unplugged... Á morgun, laugardag kl. 22.30: Rósenberg - Einn að trúbadorast enn á ný... Síðan fara leikar að verða sprækari, því á sunnudag tekur við projektið T.I.M. sem felst í því að Svavar Knútur, Misery Loves Company og Mogadon leika allir sitt í hvoru lagi frumsamið efni en sameinast svo í drungablús- og djöflakántrýsveitinni T.I.M., þar sem undirritaður leikur á harmónikku, trommur, munnhörpu og fleira. Sunnudagur kl. 00.00 A-Hansen í Hfj.: T.I.M. Mánudagur kl. 21.00 Rósenberg: T.I.M. Miðvikudagur kl. 21.00 Paddy's Keflavík: T.I.M. Fimmtudagur kl. 21.00 Húsavík: T.I.M. Föstudagur kl. 22.00 Akureyri: T.I.M. Laugardagur kl. 22.00 Egilsstaðir/Fellabær - Svart Hvíta hetjan: T.I.M. Yihaaa!!! Níu tónleikar á níu dögum og geri ég betur :D [ 1 ] fimmtudagur, júní 01, 2006
Er það samt ekki dæmigert...
...fyrir Valgerði Sverrisdóttur að fá móðursýkiskast yfir einhverju mótmælaslagorði og nota það til að gera alla náttúruverndarsinna tortryggilega... Djöfull er það dæmigert... Að nota eitt svona smáatriði til að taka allt málið úr samhengi. Smekklaust: Vissulega... Vanhugsað: Þokkalega... Morðhótun: Aldrei Alhæfanlegt: Ertu álviti? (úbbs... sjáðu hvern ég spyr...) Hin fullkomna leið til að draga athygli fólks frá alvöru málsins að einhverju hálfvitalegu smáatriði: ALGERLEGA! Valgerður Sverrisdóttir ætti að biðjast afsökunar á því að breyta löglegum rétti fólks til að mótmæla og tjá skoðanir sínar í farsa. Þetta er dæmigert fyrir þessa manneskju og hennar lágkúrulegu og ómálefnalegu taktík í umræðu. Skemmst er að minnast þess að hún líkti mótmælendum við landráðamenn af því þeir börðust gegn virkjuninni á alþjóðlegum grunni. Þvílík víðsýni hjá Minkabóndanum. Eða er hún refabóndi? Anyway, önnur hvor patentlausnin. Bestu kveðjur, Svavar [ 3 ]
Byrjaður í nýju vinnunni... trallalla...
Jæja... kominn inn á þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis... Farinn að starfa við nýja djobbið, sem verður ótrúlega skemmtilegt :D Hlakka svo til að takast á við þetta ;D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 4 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||