![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
mánudagur, ágúst 28, 2006
Í fúlustu alvöru...
Veit einhver hvern maður talar við til að fá djúsí og vel borgaða sumarvinnu á Svalbarða? Ég er að meina þetta. Mig langar að vinna á Svalbarða næsta sumar... Taka mér frí í vinnunni fyrir RVK og prófa að vinna á Svalbarða í tvo-þrjá mánuði... Kommon! Einhver? Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Besta Krádið jett...
Ahhh... kominn heim frá Egilsstöðum þar sem ég átti yndislega lífs- og spilunarreynslu... Lék m.a. á yndislegum minningartónleikum um Pétur nokkurn sem varð úti í vor... Heyrði þar í mjööög svo áhugaverðum tónlistarmönnum sem voru að skapa flotta hluti... Gisti á Seyðisfirði hjá Jóni og Nönnu. Þar var æðislegt. Morguninn eftir vaknaði ég, keyrði yfir heiðina og ákvað að hefja farandtrúbadoraatriði mitt með því að syngja fyrir kýrnar á Egilsstaðatúninu. Ég laumaðist inn fyrir rafmagnsgirðinguna... Kýrnar litu upp úr morgunmaulinu... Ég tók upp gítarinn... Kýrnar þustu að!!! "Hvað er að geeerast hérna?!?!?" Hnusuðu af söngvaskáldinu og bauluðu varlega, hæglátar og æðrulausar. Í augum þeirra býr viska aldanna... Sperrtu þær eyrun og hlustuðu á lag eftir lag... Migu, skitu og hoppuðu upp á hver aðra eins og yxna kúm er eðlilegt, en 90% áhorfenda voru sem dáleiddir... Hálftíma seinna pakkaði ég saman eftir að hafa spilað fyrir þakklátasta og skemmtilegasta krád allra tíma!!! Sjitt hvað þetta var skemmtilegt! Elsku kusurnar voru svo ánægðar að fá smá tónleika að þeim var alveg sama þó ég spilaði hvorki Bubba né eitthvað með Skítamóral. Svo var eitthvað sungið út um bæinn, m.a. við sundlaug Egilsstaða, í hátíðartjaldinu, fyrir utan verslunarkjarnann og svona, en líka í fínni Hreindýraveislu og svona... Svaka gaman og skemmtileg upplifun. :D Allavegana, dauðþreyttur í gær, en góður í dag. Hlakka til dagsins komandi. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] fimmtudagur, ágúst 24, 2006
lollypops sunshine and GGRRRRRR!!! Ég get ekki tekið þetta lag í kvöld... En þetta er aaaaaðeins of tóm snilld!!! [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 23, 2006
D-sus...
Er að spila á Hressó annað kvöld með kassagítar að vopni... Rosalega væri gaman að einhverjir vinir mættu svona upp úr hálftíu til að pikka upp sæti í kringum "sviðið" svo ég geti verið þokkalega laus við ruglað lið... :D Símtalið: Gaur: Er þetta Svavar? Svavar: Já... Gaur: Ertu að trúbbast eitthvað einn? Svavar: (Hugsar: "nei... ég "trúbbast" yfirleitt tveir...") Öööö... Ég á það til að syngja mín eigin lög fyrir fólk, en ég er ekki neitt í einhverju "stál og hnífur" kjaftæði sko... Ef trúbbast þýðir að vera mannlegur glymskratti, þá er ég ekki að trúbbast... Gaur: Já, ertu s.s. ekkert að halda uppi stuðinu? Svavar: ööö... Nei... Ég spila bara það sem ég fíla og nenni ekki að halda uppi stuði. Ég hef nóg annað við tíma minn að gera en að elta uppi lélegan tónlistarsmekk fulls fólks... Gaur: Já... hmmm... skoo... Værirðu samt til í að spila á fimmtudaginn eitthvað? Svavar: Ekkert mál, en ég tek fram að ég er ekki að fara að þóknast einum né neinum nema sjálfum mér. Ég er í ágætlega launaðri dagvinnu og þarf ekki að hórast í einhverjum gangandi djúkboxafílíng... Gaur: Ókei maður... Nú skulum við bara sjá hvort Hressó stendur við stóru orðin að Svavar megi spila angurværa og sorglega tóna allt kvöldið... ;) N.B. Orðum Gaurs er breytt frá samtalinu... Hann er ágætis gaur, en mér fannst miklu notalegara að hafa hann svona... Bestu Kveðjur... Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, ágúst 22, 2006
Aflýsing...
Ég átti að vera með tónleika á Rósenberg á fimmtudaginn, en eitthvað vöskuðust þeir til. Ég verð því ekki að spila þá. Einhverjar uppástungur um gigg/uppákomu/skemmtilegheit á fimmtudagskvöldið? Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] sunnudagur, ágúst 20, 2006
Loksins búið að laga...
Lagaði loksins bæði þessa síðu og Hraun-síðuna... Tók tímann sinn að finna út hvað var að. Þetta voru einhverjar breytingar á PHP stöðlum... Fjandans kjaftæði... Annars er allt gott að frétta, fyrir utan smá kjánafiðring í maganum sem ég er með... Það lagast... :D Spiluðum á Egilsstöðum um helgina... Ég spila einn þar næstu helgi, trúbadorahressileiki, ólgandi... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] mánudagur, ágúst 14, 2006
Takk fyrir helgina og til hamingju með Gay Pride...
Voðalega eiga margir "kristnir" menn eitthvað erfitt með sig út af því að sumt fólk er bara þannig innréttað að það vill kyssa fólk af sama kyni... Segir síðan með Slippery slope rökum að næsta skref við að gifta tvo karlmenn sé að gifta mann sauðkind og svo bókahillu... Einmitt... Enginn eðlismunur þar á, bara stigsmunur... Sem betur fer er þessi þjóð þó svo sivíliseruð og steríl að ekkert ofbeldi brast á og hommar og lesbíur glöddust og restin af okkur samgladdist. Já, æðisleg helgi að baki hjá mér. Svo sannarlega! Átti tvö dýrðleg kvöld á Rósenberg þar sem ég spilaði í tæpa fimm tíma hvort kvöldið. Mein Gott hvað þetta var skemmtilegt. Óvenju mikil kæti í kallinum, þótt ég spilaði vissulega mikið af jarðbundnum lögum. En það var líka gay pride músík á ferðinni. Kylie, Baccara, Garland... Þetta var yndislegt! Áfram gleði og glaumur! :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, ágúst 11, 2006
Velmeinandi vitleysingar...
Þegar ég var í MH vann ég mér stundum inn aukapening með því að vinna á bókasafni skólans. Ég aðstoðaði fólk og setti bækurnar í hillur og svona. (höslaði líka nokkrar stelpur... með sæta bókavarðaraktinu...) En það gerðist endalaust oft að þegar maður var að raða í hillurnar rakst maður á sálfræðibækur innan um ensku skáldsögurnar, mannkynssögubækur í íslenskri málfræði og líffræðibækur innan um ljóðabækurnar. Velmeinandi vitleysingar voru þar á ferð. Kunnu ekki á Dewey kerfið og hentu bara bókunum inn einhvers staðar. (Mjög sniðugt... frábært fyrir skipulagið...) Oft þegar Hraun spilar á Rósenberg koma velmeinandi vitleysingar og hjálpa okkur að róta. Þannig rata oft snúrur og dót í snúrutöskuna mína sem ég á ekkert í og ég þarf að leita eigandann uppi. Þannig hefur einni dót í eigu Rósenbergs dottið ofan í töskuna fyrir hjálp velmeinandi vitleysinga og ég hef þurft að útskýra fyrir ótrúlega skilningsríkum Dodda vert hvernig ég fann dótið hans í töskunni okkar, eftir að hann hefur leitað að því í margar vikur. Núna var ég að finna í botninum á töskunni okkar rauðan míkrafón sem Doddi er búinn að leita að lengi. Ég er búinn að hitta hann nokkrum sinnum og einmitt segja honum að það sé nú ekki séns að við höfum tekið hann og bla... Doddi er held ég orðinn dálítið pirraður svo ég ætla að reyna að koma þessu hálf laumulega inn á barinn... Velmeinandi vitleysingar, viljið þið hætta að gera hluti sem þið hafið ekkert vit á, eins og að róta fyrir mig og raða hlutum í hillur sem þið skiljið ekki... Ég elska ykkur, en þið flækist bara fyrir í svona verkefnum... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 4 ] Yes sir, I can boogie - Baccara AAAAAAAHHHHH!!!! Þetta lag ætla ég að taka í kvöld og á morgun á Rósenberg!!!! [ 1 ]
Nýir vinir, góðar reynslur...
Þetta eru nú meiri ævintýradagarnir. Á fimmtudaginn sem leið kynntist ég Pete Uhlenbruch á Rósenberg. Hann spilaði nokkur lög þar ásamt Mike Pollock. Mér fannst tíu dagar á Íslandi vera langur tími til að syngja bara eina tónleika, svo við bókuðum saman tónleika á Kaffi Hljómalind, sem var æðislegt venjú... Við spiluðum þar fyrir fullu húsi á miðvikudagskvöldið og það var svo gaman að við vorum í skýjunum... :D Skutlaði Pete á flugvöllinn í gærmorgun og hlakka til að fá hann aftur til landsins. Okkur langar að fara í ferð um Vestfirði og spila trúbadoragigg í krummaskuðunum. :-D Pete hlakkar til að fá að upplifa "The death defying stunt driving on the winter westfjord roads in Svavar's Saab..." ;-) Þreyttur, villtur, týndur, fundinn, ánægður. :-D Gengur vel með hausalinginn... Evrópuferðin hefur sett mig í einhvers konar gír... Ég er opnari og ánægðari með lífið en nokkurn tíma áður... :) Trallalla... Ég hvet ykkur til að tékka á Pete. Hann er á www.myspace.com/owlsoftheswamp Bestu kveðjur kæru vinir, Svavar Knútur Kristinsson [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 09, 2006
Tónleikar í kvöld
Úbbs... Tónleikarnir með mér og Owls of the swamp á Kaffi Hljómalind hefjast kl. 20 í kvöld. Endilega kíkið. Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] þriðjudagur, ágúst 08, 2006
Nóg að gera framundan...
Hæ lið... Hælið? Þrennir tónleikar framundan, en á morgun verður pínu spes. Ég spila á Kaffi Hljómalind kl. 20 ásamt ástralska trúbadornum "Owls of the swamp", sem er mikill snillingur og hlakkar til að spila fyrir ykkur. Endilega kíkið ef þið viljið :-D Annars verð ég á Rósenberg um helgina í forfallaspilamennsku, enda er ég forfallinn tónlistarmaður ;D ohohoho... Týndur eins og alltaf. Efast um að nokkuð græðist á því að finnast. :D Heyriði, ég er farinn heim úr vinnunni, hlæið að þessum æðislega vídeófæl hér að neðan. Guð minn góður hvað mér finnst hann fyndinn! :D sérstaklega mmmmmmið í Legolasi og Yeaaaaaa-ið í Aragorn... :D Þetta var líka gayasta atriði myndarinnar... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] LOTR HAHAHAHAHA Þetta er eitthvað svo dead on... :-D ég gersamlega spring úr hlátri þegar Legolas gerir mmmmmm hljóðið og Aragorn segir Yeaahhh... [ 0 ] föstudagur, ágúst 04, 2006
Mótmælarétturinn...
Ókei... Við bönnum ekki fólki að keyra þótt einhverjir aki fullir eða of hratt eða jafnvel móti rauðu ljósi. Við bönnum fólki ekki að drekka þótt sumir kýli hvern annan og jafnvel fremji aðra ofbeldisglæpi í ölvímu. Við bönnum ekki fólki að safnast saman í miðbænum, þótt stundum verði þar skandalar og rusli sé hent. En við bönnum fólki að koma saman og vekja athygli á málstað vegna þess að meðal þeira gætu leynst "ófriðarseggir"... Er þetta að meika sens fyrir ykkur? Hvers konar lögregluríki er þetta?!?! [ 0 ]
Af hverju ætli...
...fólk sé farið að pirra sig á ofurlaununum? Ætli það sé vegna þess að við búum í sæmilega vel menntuðu og jafnaðarsinnuðu samfélagi þar sem fólk er upplýst um framlag sitt og verðskuldun og eigið verðmæti? Ætli það sé vegna þess að við búum ekki í þriðjaheimsríki þar sem enginn vissa eða stöðugleiki er um vinnu og atvinnurekendur ráða öllu um líf fólks? Ætli það sé vegna þess að þróunin undanfarið hefur keyrt um þverbak og misboðið sómatilfinningu almennings æ ofan í æ? Getur það verið? Sko... ég er enginn kommi, en það segir mér enginn að bara af því einhver gaur veltir peningum fram og til baka eigi hann skilið 400 sinnum hærri laun en ég og þá væntanlega 8-900 sinnum hærri laun en fólk í umönnunarstörfum. Sorrí, það bara meikar ekki sens og sama hvað frjálshyggjulúðarnir reyna að blaðra um frelsi og markað og blabla, þá er eina ástæðan fyrir þessum launum sú að þeir komast upp með þetta á meðan fólk trúir kjaftæðinu í þeim. Þetta er bara rugl! Og svo er ótrúlegt að fylgjast með ástandinu á Kárahnjúkum. Þessi ríkisstjórn er gersamlega að kúka yfir mannréttindi fólks, réttinn til mótmæla, réttinn til ferða um landið og fleira. Og svo stendur þessi xenófóbíski lögreglustjóri Óskar Bjartmarz og blaðrar um að "einhverjir útlendingar" séu að sóa skattpeningunum mínum og þínum með því að mótmæla! HALLÓ! ER EKKI ALLT Í LAGI HEIMA HJÁ FÓLKI?!?! Það flæðir kókaín í bílförmum inn í landið og við erum með 20 manna lögguvakt yfir einhverjum grasahippum? KOMMON!!! Þetta er 200.000.000.000 króna aðgerð og menn væla yfir mótmælendum sem gera smá læti! Ekkert perspektív í gangi hér. Ég lýsi hér með eftir hugrökkum flugmanni sem er til í að brjóta upp einangrun fólksins í mótmælabúðunum með því að varpa niður matarpökkum til þeirra. Þetta er orðið súrrealískt og viðbjóðslegt og mig langar til að öskra þegar ég horfi upp á þetta. SÍÐAN HVENÆR ER "BANNAÐ AÐ MÓTMÆLA" Á ÍSLANDI?!?!? Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 2 ] fimmtudagur, ágúst 03, 2006
...andvarp...
Það er einhver notalegur tregi í mér... Ég elska þetta veður... Ég er dálítið týndur þessa dagana, en það er einmitt þá sem maður ku finna skemmtilegustu nýju staðina... þegar maður villist... Ég sakna dálítið í dag, en um leið er ég óskaplega ánægður með lífið. Mér finnst það vera skemmtilegt, þó það geti stundum strítt manni... Mér finnst eins og hjartað á mér gæti brostið á hverri mínútu, en um leið, í sínu veikburða og viðkvæma ástandi, er það næmara fyrir heiminum en nokkru sinni áður. Ég elska þetta líf. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 02, 2006
Hef ég sagt ykkur...
...að mér finnst kókaín það hallærislegasta sem til er? Mér finnst nákvæmlega ekkert hallærislegra en sá lífsstíll sem felst í því að fara í partý og á djammið og dusta nasirnar á sér til að líða betur með sjálfan sig. Vitiði... Mér finnst bara fínt að efast stundum um sjálfan mig og vera ekki 100%. Ég er þó allavegana real. Mér finnst gersamlega glatað að falsa sjálfsmynd sína með tuttugu mínútna skömmtum af dufti. Það er ekki verið að gera neitt annað en að ganga á höfuðstól sömu sjálfsmyndar og týna sjálfum sér. Svo ekki sé talað um helvítis hrokann sem þetta lyf veldur. Fólk kemur fram við annað fólk eins og skít. Eða kannski dregur það bara fram það sem fyrir er og magnar það aðeins... Anyways. Ég bara skil ekki að fólki finnist þetta eitthvað kúl. En kannski er ég bara svona mikið náttúrubarn að ég nenni ekki að djamma lengur en þar til mig langar heim að sofa/ríða/chilla og þarf ekkert duft til að framlengja djammið mitt... Ef ég vil djamma lengur, þá djamma ég lengur og ég er bara alltaf í fínu stuði þangað til mig langar heim. Rugl! Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||