Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
mánudagur, september 25, 2006
  Fín helgi að baki...
Hraun átti virkilega góða tónleika á Stúdentakjallaranum á föstudagskvöldið. Fullt hús og góður fílíngur... Virkilega góður fílíngur.
Merkilegt að fólk nenni að sitja í tvo og hálfan tíma undir frumsömdu efni...
verðlaunuðum þolinmæðina með smá Partý í endann... Mig langaði að taka Jimi Tenor fyrir liðið, en einhvern veginn gleymdi ég því... Nikkan var samt með og gekk vel að nýta hana... Er að hugsa um að fá mér pikköpp á hana einhvern tíma...

Á leiðinni heim eftir smá næsturlíf á laugardagskvöldið heyrði ég ámátlegt mjálm inni í runna rétt hjá Hringbrautinni. Var þar kominn lítill kettlingur ómerktur og vesæll. Ég greip greyið og tók hann með heim þar sem hann fékk smá mjólk...
Launaði læðan gæskuna með því að skíta í sófann um nóttina.
Ég keypti kattasand og smá blautmat í dag og setti svo upp auglýsingu í kjörbúðina. Vona að eigendur sjái þetta...

Annars er þetta svona tveggja til þriggja mánaða gömul læða... Svört með hvíta snoppu og loppur. Hún liggur nú á öxlinni á mér á meðan ég skrifa og malar... Mjög notalegt...

Kannist þið við það þegar sagt er að hlutirnir eigi eftir að versna áður en þeir batna?

Amm...

Annars gengur lífið ágætlega þessa dagana. Vinnan mín er stórskemmtileg og ég kem brosandi heim á hverjum degi...

Áhugaverð niðurstaða smá rannsóknar sem var gerð á samgönguháttum í borginni.
Þrír menn lögðu af stað kl. 8 á miðvikudagsmorgun frá Vogaskóla og var áfangastaður þeirra aðaldyr aðalbyggingar HÍ.
Einn hjólaði, annar tók strætó og þriðji fór á einkabíl.
Í stuttu máli fóru leikar svo:
Hjólandi vegfarandi: 16 mín.
Akandi vegfarandi: 20 mín.
strætóandi vegfarandi: 22 mínútur.

Vá... Maður græðir alveg 2 mínútur á því að keyra á einkabílnum fram yfir strætóinn.
Og maður græðir alveg... nei, hey, maður er sneggri á hjóli???
Í alvörunni?!?!?

hahahaha

Nú er ég búinn að hjóla í vinnuna í fjóra mánuði og það er það besta sem hefur komið fyrir mig gott fólk... Bara svona að láta vita.
Þvílíkur sparnaður og þvílík líkamsrækt á hverjum degi.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 9 ]
föstudagur, september 22, 2006
  Stúdentakjallarinn í kvöld... Student Basement tonight!
Klukkan 22.09 í kvöld, föstudagskvöldið 22.09, mun Hljómsveitin Hraun stíga á stokk og flytja lög af þremur óútkomnum plötum og einni útkominni.
Mætið tímanlega eða deyið...
Athugið að hér er aðeins um að ræða tónleika.
Vinsamlegast ekki koma með neinar væntingar um partý...
En ef við erum í rosalega góðu skapi, þá færum við okkur yfir í partýgírinn...
Og þá verður rosalega gaman!!!
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 1 ]
  Lifðu hægt...
Sætt að heyra Hildi Völu syngja lagið mitt í úpartinu... :D
Hægt að dánlóda því á tónlist.is
:)
Mér sýnist hinn orðheppni Karl Ágúst Úlfsson hafa þýtt textann minn af sinni alkunnu snilld nokkuð nákvæmlega... :D

Furðulegt samt að heyra hvað er hægt að gera eitthvað sem maður heyrir í hjartanu á sér á einn hátt allt öðruvísi...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 7 ]
fimmtudagur, september 21, 2006
  Smá pæling...
Ef fólki finnst umhverfisverndarsinnar óhæfir til að fjalla um umhverfismál...

Eru þá ekki kapítalistar óhæfir til að fjalla um efnahagsmál?
Eru konur óhæfar til að fjalla um jafnréttismál?
Eru félagsráðgjafar óhæfir til að fjalla um fátækt og velferðarmál?
Fólk sem á bíla óhæft til að fjalla um málefni umferðar?
Foreldrar óhæfir til að fjalla um málefni barna?

Eða hvað?

Bara svona vangaveltur...

Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 2 ]
 
Switzerland 1979

Baaara súrt...


[ 2 ]
mánudagur, september 18, 2006
  Húrra fyrir tryggingafélögunum...
Hringdi í Vís í dag út af stolna hjólinu mínu...
Hún kynnti mig fyrir tveimur lykilhugtökum:
Eigin ábyrgð...
og tjónleysisafsláttur...
Sem þýðir að ef ég myndi vilja fá hjólið mitt bætt, þá þýddi það í raun að ég myndi tapa nákvæmlega eitt þúsund krónum í stað þess að fá 20.000 krónur.

Tvær lexíur lærði ég af samtali mínu við þjónustufulltrúa Vís í dag...
Það er dýrt að vera blankur og kaupa ódýra hluti...
Og Tryggingafélög eru tryggð fyrir svona gaurum eins og mér...
Ég mun líklega aldrei fá krónu til baka af þessum milljónum sem ég mun borga í tryggingar á ævinni...

Helvítis framsóknarmenn...
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
föstudagur, september 15, 2006
  Næstum dauður...
Ég var að hjóla áðan... Kom meðfram Hringbrautinni og var að koma að ljósunum við stúdentaheimilið þegar í gegnum hausinn á mér flugu orðin: "Afsakið, ég hlýt að hafa verið sofandi þegar þeir breyttu umferðarlögunum þannig að rautt ljós þýðir: Áfram áfram..."
Og sem ég hugsaði þetta sá ég að umferðarljósin við Stúdentaheimilið voru að breytast í rauð fyrir komandi umferð og ákvað að nýta mér tækifærið og fara yfir Hringbrautina. Ég beið samviskulega eftir því að ljósin yrðu rauð (1 sek.) og hjólaði svo áleiðis yfir götuna...
Og sem ég var rétt að koma inn á götuna kom aðvífandi á fullri ferð bíll með tveimur stelpum í... svona helvíti hressum bara að láta vaða yfir á rauðu beint á hjólreiðamanninn... Ef ég hefði ekki stoppað á punktinum, þá væri ég brotinn og beyglaður og jafnvel dauður núna. Helvítis hálfvitar!!!
Djöfull varð ég reiður! Sendi gríðarljótar bendingar í áttina að stúlkunum umferðarregluheftu...
En... Ég er fyrirgefandi maður...
Þær eiga ekki skilið neina kergju frá mér bara þótt þær séu vitleysingar...

En nóg um það... Gengur svaka vel, tónleikar á Stúdentakjallaranum með Hraun 22.09. nk. kl. 22.09.
Við ætlum að rukka 500 kr. inn...
Ef fólk mætir snemma, stemmningin verður góð og mikið af fólki í salnum, þá munum við jafnvel skella þessu í Partý, annars verður þetta bara straight hress tónleikastemmning.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Og þeir sem kaupa sér/mæta í hraun bol eða rebel bol á svæðið fá frítt inn jei :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
sunnudagur, september 10, 2006
  Tveir trúbadórar á leið til landsins...
Hey, mig langaði bara að láta ykkur vita, að miklar líkur eru á að þessir tveir gæjar: Owls of the swamp og Torben Stock séu að koma til landsins seint í október til að fara í smá ferðalag um landið með mér og halda tónleika allir saman.
Hraun mun líka að öllum líkindum spila á Stúdentakjallaranum þ. 22. sept. næstkomandi, ef guð lofar...

Líður mjög vel þessa dagana... Hraun að blómstra... Ég að blómstra... :-D Vinnan mín nýja er endalaust skemmtileg...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
laugardagur, september 09, 2006
  Vonbrigði...
Vá hvað ég var að lenda í miklum vonbrigðum... :-/
Ég hélt að ég væri góður mannþekkjari, en ég var greinilega búinn að meta ákveðna manneskju alveg þveröfugt...

Vá...

Ég er eiginlega bara stórsvekktur...

En nóg um það.
Það var svakalega gaman að spila á Hverfishátíð Hlíða og miðbæjar. Og svo hékk ég í dásamlegu kaffi/bjórspjalli með góðum vinum eptir á. :D

Vonbrigði verða bara að fá að eiga sér stað og maður lifir og lærir :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
föstudagur, september 08, 2006
  Stíflubrestir
Nú eru andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar duglegir við að hamra á sprungum og illa hönnuðum sprungum og blablabla...
Mér finnst það ekki uppbyggileg umræða persónulega.
Ég er á móti stóriðjunni, stíflunum og þessari virkjun almennt, en mér finnst svona pælingar örlítið örvæntingarfullar.
Sorrí. Það er nóg að tala um þó menn fari ekki að búa til óþarfa ótta.
Ef stíflan brestur er það ekki vegna skorts á verkfræðikunnáttu. Bergið mun kannski leka og afköst virkjunarinnar verða mun minni en ella, en það er ekki að fara að flæða yfir Hérað.

Það er sorg í hjarta mínu yfir þessari virkjun og ég segi eins og er: Það að henda meir en hundrað milljörðum á fimm ára tímabili á austfirði í eitt prójekt er eins og að tæma heila 10 lítra fötu í mjólkurglas, fimm sinnum í röð. Kannski helst samtals einn líter af mjólk í glösunum, en 49 lítrar fara til spillis, beint út úr samfélaginu.
Hefði ekki verið betra að fjárfesta minna til lengri tíma í samfélagsverkefnum, samgöngubótum og menntunaraukningu á svæðinu? Og sér ekki efnahagslífið beisikallí um sig sjálft þessa dagana. Eru ekki Íslendingar fullfærir um að skapa verðmætin sé þeim treyst fyrir því?

Ein stífla hefur þó brostið undanfarið, en það er stíflan í hjarta mínu og nú virðast hlutirnir flæða mjög fallega um mitt tilfinningalega æðakerfi. Taóískur agnostisismi er eitthvað sem er að virka vel fyrir mig... :)
Ég verð að spila á Klambratúni um hálfþrjúleytið á morgun :D Hverfishátíð Hlíðahverfis og Miðbæjar.
Bestu Kveðjur...
Svavar Knútur


[ 0 ]
miðvikudagur, september 06, 2006
  Nýir Hraun-bolir komnir...
Hey krakkar...
Nú geta allir farið og betlað pening af pabba og mömmu til að kaupa nýju flottu Hraun-bolina sem eru komnir.
Myndir koma á föstudaginn beibís. Hlakka til að sýna ykkur.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
mánudagur, september 04, 2006
  Myndi maður...
...Veita manni uppreisn æru sem var dæmdur fyrir nauðgun á mjög traustum grunni, en heldur því statt og stöðugt fram að málið allt sé samsæri illviljaðra fjölmiðlamanna gegn honum og gellan hafi aukinheldur átt það skilið að láta nauðga sér, hún hafi verið svo mikil glyðra? Manni sem aldrei hefur sýnt nein merki iðrunar eða viðurkenningar á glæp sínum, sem hann reyndi þó að hylma yfir á sínum tíma... Talaði svo um að hann hefði "lent" í þessu nauðgunarmáli.
...Og svo bjóða honum að fara aftur að vinna á móttöku fyrir unglingsstúlkur í neyð?

...En myndi maður veita manni uppreisn æru sem hefði verið dæmdur fyrir dreifingu og sölu á kókaíni og amfetamíni til skólabarna, neitaði alltaf sök en bætti síðan við að þetta væri "náttúrulega bara spurning um framboð og eftirspurn"? Og bjóða honum svo aftur gamla starfið hans við forvarnir?

Bara svona að velta því fyrir mér...
Kveldúlfs saga Kjörbúðar er víða...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???