![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
sunnudagur, desember 31, 2006
Gleðilegt ár...
Jæja kæru vinir... Langaði bara að segja gleðilegt ár. Fer inn í nýtt ár með haus og hjarta í tómu rugli. Kannski bara ágætt... Ætla að eyða gamlárskvöldi og nótt á Sólheimum í Grímsnesi, takandi því über rólega með Dagbjörtu dóttur. Kassagítar, bækur og rólegheit. Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir allt... Hlakka til að sjá ykkur öll á næsta ári, gerandi skemmtilega hluti, knúsandi, syngjandi, elskandi, drekkandi og dansandi. Vona að hlutirnir fari að horfa svolítið upp á við nú þegar maður er að komast á "fertugsaldurinn..." Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] föstudagur, desember 29, 2006
Viðbót við handverksmanninn
Ég held líka að það sem pirrar mig pínu sé eftirfarandi... Enginn myndi liggja manni sem hannar listræn húsgögn á hálsi fyrir að smíða stofuborð eða leggja panel á veggi fyrir fólk fyrir smá auka pening... Listmálari yrði seint dæmdur sellát fyrir að skreyta jólakort fyrir fólk eða jafnvel mála íbúð... Þá yrði skúlptúrlistamaður seint vændur um hórskap ef hann tæki að sér smá pípulagnir... Maður hefur hæfileika sem maður gæti nýtt sér til tekna, en af því þetta er hæfileiki sem snýr að persónulegri tjáningu, þá er eiginlega ómögulegt að nýta hann sér til tekna án þess að gera sig að tilfinningahóru... Erfitt... En hey! Njótiði jólaplötunnar okkar sem er ókeypis á netinu og endilega hringið í 907-2002 ef þið fílið hana. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 2 ] fimmtudagur, desember 28, 2006
Kreppa listamanns/Handverksmanns
Það er ekki tekið út með sældinni að vera með listamannsambisjónir... :-) Það er stanslaust verið að hringja í mann og biðja mann um að spila fyrir einhverju "hressu djammi". Og í hvert skipti hugsa ég: "Hvað segir það um mig sem listamann ef ég er bara alltaf að spila fyrir einhverju hressu djammi?" og svara svo hinum hringjandi manni: Hey, hérna... Ertu ekki til í að hringja bara í þennan gaur, hann er góður í þessu... Ég er nefnilega eiginlega bara að spila mitt eigið stöff þessa dagana... Og ég afþakka tugþúsundir á mánuði sem ég gæti verið að nota í að borga upp skuldir eða spara fyrir ferðalögum eða eitthvað... Andskotans meinlætahugsun... Skítblankur og stórskuldugur með ambisjónir fyrir listalífi og ferðalögum... Og fúlsa svo við tugþúsundum... Hvað er í gangi?!?! Ef ég hóraðist bara aðeins, þá væri ég án efa orðinn skuldlaus fyrir löngu... Ætti maður kannski bara að bíta í það súra epli að maður er ekki að verða mikið yngri eða þekktari og bara taka hressa káta trúbbapakkann á þetta? Neee... Ætli maður harki ekki aðeins lengur í því að spila sína eigin tónlist fyrir skít og kanel... Ég er þó allavegana á leiðinni til Ástralíu í ágúst með þetta blessaða stöff... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 3 ] mánudagur, desember 25, 2006
Bloggerinn búinn að vera að stríða...
Gleðileg jól elskurnar, sorrí... bloggerinn búinn að vera að stríða... En jólaplatan er komin út undir útgáfum á www.hraun.tk eða undir linknum hér að neðan. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 1 ] sunnudagur, desember 24, 2006
Gleðileg Jól elskurnar mínar
Hæ hæ, búið að vera of mikið að gera, svo ég kom ekki jólaplötunni til allra... En hún er komin upp á netið ef þið viljið :D Nýjustu jólaplötu Hrauns, Jólamolar, má því nálgast hér... Mæli sérstaklega með jólaópusnum: Heill þér Jesúbarn! Gleðileg jól elskurnar mínar. :D Takk fyrir allt! Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, desember 12, 2006
fimmtudagur, desember 07, 2006
Allir að kjósa í jólalagakeppninni!!!
Hæ! Lagið okkar, Höldum jól, komst áfram í tíu laga úrslit jólalagakeppninnar á Rás 2. Ef þið viljið vera über nice, þá væri frábært ef þið kíktuð á www.ruv.is/poppland, seinna í dag og athuguðuð hvort þið gætuð kosið lagið, þ.e.a.s. bara ef ykkur finnst það best... Bara til að þið getið hlustað á það einu sinni, þá getið þið smellt á þennan stað hér, en eins og allir vita er hægt að niðurhala öllum plötum Hrauns hingað til á slóðinni http://www.simnet.is/muzak/LAVA/indexisl.php?i=5 Ég er rosalega stoltur af þessu jólalagi og mér þykir vænt um textann... Rosalega vænt... Ég samdi þetta jólalag með Dagbjörtu dóttur og var að semja það þegar hún sofnaði í rauða sófanum heima. Demóið tók ég upp með hana sofandi í sófanum... :) Minningar, minningar... Textinn: Vers 1: Glatt er geð í desember Gnægtaborðin svigna Njótum við þá nálgast fer Nóttin ljúfa og lygna Viðlag: Enginn grætur, allt er hljótt Yndislega jólanótt Ljúfu börnin liggja í sæng Lúra undir móðurvæng Vers 2:Höldum jól með hreinni sál Hjálpum þeim sem líða Kveður heimsins kuldabál kærleikshöndin blíða [ 6 ] þriðjudagur, desember 05, 2006
Daginn í dag... Daginn í dag...
...Gerði Drottinn Guð... Gerði Drottinn Guð... Fór á útgáfutónleika Lay Low um daginn. Skelfing er Lovísa góður performer, söngvari og hljóðfæraleikari. Bara stórt Kudos á stelpuna. (Ég lánaði þeim Rhodesinn minn fyrir upptökurnar á plötunni... weee...) Vildi stundum óska að það væri ekki svona veðrasamt í tilfinningalífinu... Að veðurfarið væri örlítið mildara og léttara... Bara örlítinn andvara eða kul fram eftir degi með ljúfri sjávargolu þegar kvöldaði. En það er umhleypingasamt á norðurhjara sálar minnar og ólíklegt að það breytist. :-) Best að lifa með því og gera það besta úr stöðunni... En nema hvað... Þarna var ég með bilaða hjólið mitt... Var að reyna að laga það úti á auðri og mannlausri götu um miðja nótt þegar á mig ræðst leigubílstjóri... "HVERN ANDSKOTANN ERTU AÐ GERA Á GÖTUNNI?!?!?" öskrar hann... Ég segi honum að það sé engin umferð fyrir utan hann og hann hafi komið úr öfugri átt. Ég sé nú alveg að fylgjast með. Hann heldur áfram að öskra og öskra og röfla og væla og ég enda á að færa mig, eftir að segja honum að þegja, þetta komi honum ekkert við, hjólið mitt hafi bara bilað þarna og ég hafi aðeins þurft að laga það. "ER ÖLL ÞJÓÐIN AÐ VERÐA SVONA??? HVAÐ ER AÐ GERAST Í ÞESSU SAMFÉLAGI?!?!?" Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum! MEIN GOTT?!? Sagði maðurinn virkilega þessi orð? Og það út af gaur sem var að laga hjólið sitt um miðja nótt? Vá... [ 4 ] mánudagur, desember 04, 2006
Vá hvað ég er búinn að vera ónýtur!!!
Úff... Nóg að gera þessa dagana... jólaplötuæfingar komnar í gang. Hraun að semja lítinn jólaópus. Verður gaman. Tilfinningalífið alltaf eins og rússíbani, en sem betur fer er þessi rússíbani á góðum teinum og vel smurður, svo allt bara fer sína leið nokkuð greiðlega og fallega... Við Hjalti fórum á Skriðuklaustur um helgina... Spiluðum okkar eigin lög og jólalög í bland fyrir gesti á Jólahlaðborði á laugardagskvöldi og síðan sprelluðum við og sungum grýlulög fyrir börn á Sunnudag. Það var Kjöt í öll mál frá fimmtudagskvöldi til sunnudagskvölds... Úff... Hraun Platan loksins að komast á lokastig... Mjög næs. Jólatónleikar Hrauns verða 22. des. Við byrjum snemma, enda yfir mikið efni að fara orðið... ;) Jæja... Vinna meira, tala minna. Bestu kveðjur, Svavar [ 2 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||