![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, desember 19, 2008
þriðjudagur, desember 09, 2008
föstudagur, október 17, 2008
Sturlungaöldin hin nýja - Gamli sáttmáli hinn nýi?
Það er áhugavert að skoða atburði liðinna vikna og komandi í ljósi sögunnar... Ekki 20. aldar eða 19. aldar, heldur Sturlungaaldar. Fyrir Sturlungaöld höfðu Íslendingar byggt sér upp ákveðinn góðan orðstír sem byggði á verslunarhæfileikum, skáldskap, bókmenntum, dugnaði og fleiru. Nokkur auðæfi voru í landinu og gekk ágætlega hjá þjóðinni. Þá tóku nokkrir höfðingjar upp á því að fara að safna sífellt meiri völdum á færri hendur og sólunda auði landsins í stríð, stórveislur, geðþóttarugl og fleira. Þeir bárust mikið á, slógust mjög og gerðu mikinn óskunda. Völdin söfnuðust í stórar blokkir og venjulegir Íslendingar voru ráðalausir gagnvart þessum sómalausu höfðingjum sem riðu voldugir um sveitir en héldu ekki neinni sæmd. Svo reið drambið þeim að falli. Eins og títuprjónn væri borinn að blöðru lyppaðist veldi Sturlungaaldarhöfðingjanna niður og Noregskonungur sendi sinn mann til landsins til að hirða upp leifarnar og færa það sem eftir var af auðæfum uppreisnarseggjanna frá landnáms- og þjóðveldisöld úr landi. Það tók Íslendinga 700 ár að komast upp úr þessari efnahagskreppu. Nú stefnir í nýjan Gamla sáttmála. Íslendingar munu líklega missa gríðarleg auðæfi og völd úr landi og læra líklega ekkert af eigin heimsku. Húrra fyrir okkar yndislegu smákóngum... Ég ætla bara að gera eins og Snúður og flauta árstíðirnar. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 1 ] fimmtudagur, september 04, 2008
fimmtudagur, ágúst 28, 2008
laugardagur, ágúst 16, 2008
mánudagur, júlí 14, 2008
Virkjum Ísland! Brennum Kjarval!!!
Ég hef oft velt fyrir mér lógík virkjunarsinna og eitt af því sem truflar mig er að þeim finnst einhvern veginn verið að klípa spón úr aski þeirra ef þeir fá ekki að virkja gengdarlaust hverja einustu sprænu og hitasvæði á Íslandi. Þeim finnst það bara dæmalaus heimtufrekja af okkur verndunarsinnum að vilja bíða með frekari framkvæmdir á hálendinu og fleiri álver, sem eru þó nú þegar orðin fleiri á mann en í nokkru öðru siðmenntuðu landi. Það er engu líkara en að maður sé að biðja um hjarta og lifur frumburðar sjálfstæðismanna þegar maður gefur í skyn að okkur þætti vænt um að fá að halda ám eins og Skjálfanda og Jökulsánum í Skagafirði ósnertum og jafnvel prófa aðrar leiðir til að bæta hag landsbyggðarinnar eins og aukna fjármuni til ýmiss konar símenntunar, endurmenntunar, frumkvöðlamenntunar ofl. Ástandið núna er dálítið eins og ef í landi, fullu af eldiviði, fólk sæi það sem eina raunhæfa kostinn til kyndingar að kveikja í málverkum og bókmenntum. Mér finnst það sorglegt. Og mér finnst fáránlegt að fólkið sem vill ekki láta kveikja í málverkum og bókmenntum sé einhvern veginn gert að vondu köllunum í málinu. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ hide comments ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||