Mengum Ísland
The creeps that want to fill Iceland with pollution and aluminium plants...
Ein er ey í norðurhöfum,
sem er fögur björt og hrein.
Og fólkið þar er fallegt,
fuglar gleðja mey og svein.
En nú dugar ekki lengur að berja höfðinu við
stein.
Mengum Ísland
Þegar Naprir vindar blása,
kuldinn nístir merg og bein,
Af fátækt fólkið stynur,
sífellt hljóma harmakvein.
En út úr okkar kreppu liggur leiðin greið og bein.
Mengum Ísland
Við viljum ekki lengur
vatnið tært og hreint.
Í askana okkar landslagið
látið verður seint.
Við lifum ekki á loftinu,
þó það lykti ósköp vel.
Og Landsmenn liggja í vosbúð
og dauðann lepja úr skel.
Mengum Ísland,
Svo loftin verði ekki lengur tær.
Mengum Ísland,
Svo grábrúnn verði okkar sær.
Hér er mengunarsneyð,
hér býr fólk í sárri neyð.
Mengum Ísland, Mengum Ísland.
Fyllum dalina af drullu,
drekkum vatni blandað blý.
setjum álver í alla firði,
látum byggðir blómstra á ný.
Síðan gróðurhúsaáhrifin
gera sumrin björt og hlý.
Mengum Ísland.
Við viljum ekki lengur
vatnið tært og hreint.
Í askana okkar landslagið
látið verður seint.
Við lifum ekki á loftinu,
þó það lykti ósköp vel.
Og Landsmenn liggja í vosbúð
og dauðann lepja úr skel.
Mengum Ísland,
Svo loftin verði ekki lengur tær.
Mengum Ísland,
Svo grábrúnn verði okkar sær.
Hér er mengunarsneyð,
hér býr fólk í sárri neyð.
Mengum Ísland, Mengum Ísland.
|