Svavar Knútur Kristinsson - Ferilsskrá
 
  MENNTUN

· Janúar 2006 til þessa tíma - Nemi við Söngskólann í Reykjavík.
· September 2002 - maí 2003- Lagði stund á meistaranám í Umhverfisfræðum við Háskóla Íslands - hálfnaður.
· Júní 2001 Útskrifaðist frá Háskóla Íslands með B.A. gráðu í heimspeki með mannfræði sem aukagrein. Aðaleinkunn 8 og einkunnin 9 fyrir B.A. verkefni um náttúrusiðfræði með sérstöku tilliti til orðræðu.
· Janúar 2000 Útskrifaðist sem kerfisfræðingur frá Rafiðnaðarskólanum. Einkunn 8,5.
· Desember 1996 Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Einkunn 8,4.

STARFSREYNSLA
· Júní 2006 til þessa dags: Frístunda- og félagsauðsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg
· Júní 2003 til júní 2006 Blaðamaður hjá Morgunblaðinu
· September 2002 og enn í dag: Ritstjóri Kríunnar - Rits um náttúru og umhverfi.
· Nóvember 2001 til September 2002 Vefstjóri og markaðsdeildarfulltrúi hjá Nýherja hf.
· Sumarið 2001 Blaðamaður hjá Morgunblaðinu.
· Sumarið 2000 Vörustýring og vefforritun hjá Oz.com
· Sumarið 1999 Hugbúnaðarþróun hjá Origo hf.
· Sumarið 1998 Tómstundaleiðbeinandi hjá ÍTR.
· Sumarið 1997 Fóstri á leikskólanum Sólborg.
· Frá 1997 til þessa tíma hef ég starfað sem tónlistarmaður og flutt tónlist við ýmis tækifæri.

Hef einnig unnið við vefsmíði og forritun í lausamennsku.
Önnur störf sem nefna má eru störf við fiskvinnslu, sjómennsku og timbursölu.

MEÐMÆLENDUR
Hafið samband við mig til að fá nöfn og númer meðmælenda.


TUNGUMÁLAKUNNÁTTA
Íslensku- og enskukunnátta eru til fyrirmyndar. Danska mín er ágæt, og ég get lesið og tjáð mig naumlega á hinum norðurlandamálunum auk þýsku.

TÖLVUKUNNÁTTA
Bý yfir breiðri tölvukunnáttu. Hef mikla reynslu af tölvum almennt og er fljótur að vinna almenna tölvuvinnu auk þess sem ég get leyst flest tölvuvandamál sem upp koma í skrifstofuvinnu.
Hef þekkingu og reynslu á Windows 95/98/NT/2000 stýrikerfum og netkerfum. Einnig hef ég grundvallarþekkingu á Unix kerfum en fýsir að læra meira.
Ef þörf kræfi gæti ég líklega pantað kaffi og með því á eftirfarandi tölvumálum: c, c++, perl, php, Visual c++ og Visual Basic. Einnig hef ég grundvallarskilning á Java og Delphi. Ég get einnig unnið í helstu grunnatriðum vefforritunar. Því tel ég mig kunnugan forritun og vefvinnu, þó ég sé enn frekar reynslulítill.

FÉLAGSSTÖRF
Hef verið afar virkur við félagsstörf, bæði í skóla og vinnu. Var formaður Yggdrasils, félags Umhverfisfræðinema, var formaður Soffíu, félags heimspekinema við Háskóla Íslands auk þess sem ég hef setið í stjórnum bæði heimspeki- og mannfræðiskorar sem fulltrúi nemenda. Ritstýrði Tjörupóstinum, árshátíðarblaði Morgunblaðsins árið 2004. Hef starfað að jafnréttismálum og tek virkan þátt í baráttunni gegn kynþáttafordómum.
Ég hef einnig mjög gaman að tónlist og syng og spila á allnokkur hljóðfæri. Stunda útgáfu á tónlist minni á netinu í tilraunaskyni.
Einnig hef ég starfað með áhugaleikhúsum og samið og flutt tónlist í fjórum leikritum.

FJÖLSKYLDUHAGIR
Á eina dóttur, Dagbjörtu Lilju, fædda 1998. Hef í fóstri litla læðu sem heitir Pönnukaka.

ÁHUGAMÁL
Til áhugasviða minna má nefna umhverfismál, heimspeki, tónlist, stjórnmál, þjóðfélagsumræðu, blaðamennsku, internetið, vefforritun og fleira.

ANNAÐ
Þrátt fyrir "ungan" aldur tel ég að menntun mín og víðtæk reynsla séu umtalsverð. Ég er bjartsýnn og glaðlegur maður og reyni ætíð að halda uppi andanum þar sem ég vinn. Einnig hef ég brennandi áhuga á öllu sem ég tek mér fyrir hendur.
Ég neyti ekki áfengis reglulega en hreyfi þó litlum mótbárum sé tilefni til glaðnings. Er reyklaus, en hef þó ekkert á móti því að reykt sé í kringum mig, þvert á móti hef ég ágætlega gaman af góðu reykingaspjalli, því reynslan hefur kennt mér að oft megi finna stórgóðar upplýsingaveitur í slíkum spjallhringum.