Þankatankur Herra Muzak - Textar

 

Hlutverk tónlistarmannsins er að mínu mati tvíþætt og hvílir á hæfileikum hans. Annars vegar er hlutverk tónlistarmannsins að skemmta og gleðja fólk, auðvelda því að eiga örfáar áhyggjulausar gleðistundir. Það kann ég ágætlega við, og stunda stöku sinnum með ofurbandinu Moonboots.

Hitt hlutverk tónlistarmannsins er að vekja fólk af drunga hversdagsleikans og kveikja á einhverjum tilfinningum eða hugsunum hjá fólki. Til dæmis reyni ég að miðla speki minni í gegnum tónlistina, þ.e.a.s. gefa fólki nýja sýn á lífið. Einn af þeim mönnum sem ég kann vel við að vinna með í slíku starfi er Siggi Palli vinur minn, og störfum við saman sem Herra Muzak og Zato, öðru nafni hljómsveitin BaZúr!.

Ég vildi óska að ég væri afkastameira skáld. Það er margt sem brennur á manni, en stundum nennir maður einfaldlega ekki að hugsa... Það er fúlt, gerir mig pirraðan!

En hér má finna nokkra af þeim fjölmörgu textum sem ég hef verið að hlunka saman undanfarin ár, þegar ég gef mér tíma frá daglegu amstri til að hugsa. (þ.e.a.s. þegar ég geri eitthvað annað en að horfa á sjónvarp eða leika mér í tölvunni...

En, nú eru mínir textar ykkar textar, svo úðið þessu bara í ykkur...




Hlekkir
Hér má finna nokkra af mínum vinum og glæsimennum í Tónlistinni.

Teljari