Mýrdalssandur ehf

Sandur er okkar fag

 

Mýrdalssandur ehf

var stofnað um mitt ár 2008 með aðsetur í Vík í Mýrdal. Markmið fyrirtækisins er að framleiða sandblásturssand og fleiri afurðir unnar úr sandnámu skammt austan Víkur,  bæði fyrir innlendan og erlendamarkaði.  Okkar helsta markmið er að nýta þær auðlindir sem á svæðinu eru og framleiða hágæða sandblásturssand og skapa um leið aukin atvinnutækifæri í Mýrdalnum.

Námusæðið

okkar er einungis um 3km frá vinnslulínunni.   Sandinum er ekið að vinnslustöð þar sem hann er þurrkaður og flokkaður í kornastærðir allt eftir óskum kaupanda.  Sandinum er pakkað í stórsekki fyrst um sinn en hugmyndin er að bjóða einnig upp á minni einingar í framtíðinni .  Frá vinnslustöð er sandinum svo ekið hvert á land  sem er eða seldur erlendis.