






 |
Nokkrir kaffistofubrandarar:

*

Ein létt gáta:
Ég var úti að ganga í
gær og hitti tengdamömmu einu dóttur tengdaföður míns.
Hvað kallaði ég hana?
Þið sem hafið gaman af mannanafnagátum...hér er ein fyrir ykkur
12 nöfn, eitt fyrir hverja línu:
Einn í dufti ávallt skríður
annar skort á mörgu líður
Oft hinn þriðja eykir draga
auga úr kind vill fjórði naga
Er sá fimmti aðkomandi
ætla ég sjötti í veggjum standi
Sjöundi gamall alltaf er
áttundi á hverri nál þú sér
Níundi múgur nefnist manns
nafn ber tíundi skaparans
Ellefti verður aldrei beinn
á þeim tólfa er saur ei neinn.
Og hér er önnur, nú þarftu að finna nafn, föðurnafn og bæjarnafn
(þar sem viðkomandi fæddist):
Lífið skilur seint við sál,
sjá þar nafn í felum.
Faðirinn heitir fremst á nál,
fæddur í tveimur pelum.

Þið eruð ekkert komin á ævisögualdurinn,
er það............?

*

Olli fer á Ólympíuleika :)
*
Hann var orðinn gamall og dó. Þegar hann kom "yfirum" sá hann
hvar voru tvö skilti sem
vísuðu leið. Á öðru skiltanna stóð: Fyrir karlmenn sem hafa látið
konur stjórna sér."
Á hinu stóð:" Fyrir karlmenn sem EKKI hafa látið konur stjórna sér."
Við fyrra skiltið (Fyrir karlmenn sem hafa látið konur stjórna sér)
var fjöldi karlmanna í langri
biðröð. Við hitt (Fyrir karlmenn sem EKKI hafa látið konur stjórna
sér) stóð aðeins
einn maður, og var fremur hnípinn. Gamli maðurinn gekk til hans og
spyr hvernig standi á því
að hann standi þarna aleinn. Hinn svarar: "Ég veit það ekki, konan
mín sagði mér bara að
gera það!"

Hann hafði lifað göfugu lífi og aldrei gert flugu mein. Hann
var því nokkuð viss um að fara
"upp" en ekki "niður" og hafði því engar áhyggjur þegar stundin nálgaðis.
Svo rennur stóra
stundin upp og hann kveður þetta jarðlíf. Spenntur og jákvæður leggur
hann í sína hinstu för
og samkvæmt því sem hann bjóst við, lá leiðin heldur uppávið. Þegar
að leiðarlokum er komið
furðar hann sig á því að Gullna hliðið skuli ekki vera glæsilegra,
þarna er hálf subbulegt og
margs konar drasl að sjá í kring. Hann ber þó á dyrnar.... og viti
menn, sá gamli í því neðra
kemur til dyra. Gestinn rekur í rogastans og getur ekki leynt undrun
sinni. "Hvað er þetta"
segir sá gamli, "hefurðu ekki heyrt um sameiningu?"

Guð hafði puðað mikið og lengi við að skapa manninn. Að
verkinu loknu hallaði hann undir
flatt og horfði á sköpunarverkið hugsi:"Æ, ég hlýt að að geta betur
en þetta!!
Svo skapaði guð konuna!!!

Hefurðu heyrt um útsöluna á heilum? Jú,jú það var útsala á heilum,
og eins og við var
að búast voru karlmannsheilarnir mun dýrari en kvenmannsheilarnir. Raunar var
nánast
ekkert slegið af karlmannsheilunum!!
Ástæðan?? Sko, hún er augljós, karlmannsheilarnir voru ónotaðir en
kvenmannsheilarnir
höfðu að sjálfsögðu verið notaðir töluvert og þess vegna ekki hægt að selja þá
jafn dýrt!!!

Maður og kona sem höfðu aldrei hist áður, en voru bæði gift öðrum
aðilum, höfðu verið
bókuð í sama lestarklefann á ferðalagi.
Eftir frekar vandræðalega stund og óþægilegar mínútur yfir því að þurfa að deila
klefa, voru
þau bæði orðin mjög þreytt og sofnuðu fljótlega.
Hann í efri koju og hún í neðri kojunni. Um kl. 1:00 um nóttina hallaði maðurinn
sér yfir kojuna
og vakti konuna blíðleg. Pst..pst....sagði hann. "Fyrirgefðu frú að ég sé að trufla
þig, en viltu vera svo væn að opna skápinn fyrir mig og rétta mér annað teppi, mér
er svo kalt."
"Ég hef betri hugmynd," sagði hún.
"Hvernig líst þér á að við látum eins og við séum gift-bara í nótt?"
"VVVáá-það er frábær hugmynd!" svaraði hann.
"Gott" sagði hún, "FARÐU ÞÁ OG NÁÐU Í ÞITT
ANDSKOTANS TEPPI SJÁLFUR!!"
&%$&%#%#&
Eftir augnabliksþögn ......þá rak hann við!

Tveir ljóshærðir menn leigðu saman litla íbúð. Eldur braust út í íbúðinni eina
nóttina og þeir hlupu út á svalir . "Hjálp hjálp" kallaði annar
þeirra.
"Kannski það hjálpaði ef við kölluðum saman!" sagði hinn.
"Góð hugmynd," sagði sá fyrri og þeir kölluðu í kór:
"SAMAN, SAMAN...."

Guðmundur var að spjalla við Tom, kunningja sinn í Kaliforníu.
"Ég er að fara til La Jolla í næstu viku" sagði Guðmundur.
"Þú átt að segja La 'Hoj-a' " greip Tom fram í.
"Ó, ég skil, við hjónin ætlum að dvelja á El Cajón hótelinu."
"Þú meinar El Ca'Hóne' hótelinu!" leiðrétti Tom.
"Úps, ég skil!"
"Hvenær ferðu svo aftur til Íslands?" spurði Tom.
Guðmundur hugsaði sig um smástund og sagði svo varfærnislega:
"Veit ekki, annaðhvort í húní eða húlí!"
(Þessi er nú bara 5 aura og því með mjög smáu letri!!!)
Þjónninn: Jæja, í dag er ég með
reykta tungu, steikta lifur, nýru í kássu og grísalappir.
Gestur: Ég var ekki að spyrja um heilsufar þitt.

Hafnfirðingur tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar.
Leigubílstjórinn reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki
bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?"
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!" skríkti leigubílstjórinn og Hafnfirðingurinn kinkaði
kolli og klóraði sér.
Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn
foreldra minna?"
,,Nei, Siddi, vinur. Það veit ég ekki, hver er það?" svaraði eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík," sagði þá Hafnfirðingurinn, kinkaði
kolli og klóraði sér!

Kurteisa starfsfólkið í Hagkaupum:
Mjög hávær, óaðlaðandi og hreinlega brussuleg kona kom inn í Hagkaup einn daginn með
börnin sín tvö, dró þau sitt í hvorri hönd, skammaðist í þeim og var hin versta um
leið og hún gekk inn ganginn.
Strákur í kerrunum sá hana og heilsaði:
"Góðan daginn frú og velkomin í Hagkaup. En yndisleg börn sem þú átt. Eru þetta
tvíburar?"
Forljóta konan hætti að öskra á börnin og sagði við strákinn:
" Held nú síður. Sá eldri er 9 ára og hitt er að verða 7. Hvers vegna
í fjandanum heldurðu það. Ertu blindur eða bara svona heimskur!?"
"Ég er nú hvorugt, frú mín." Segir strákurinn. " Ég get bara ekki ímyndað mér að
þú hafir fengið að sofa hjá tvisvar!! Hafðu það gott í dag og takk fyrir að versla í
Hagkaup"

Snarvitlaus maður með nýsteikt lambalæri í hendinni vindur sér inn í
Nóatúnsverslun og beint að kjötborðinu og segir við unga afgreiðslumanninn:
ÉG VAR AÐ STEIKJA ÞETTA LÆRI SEM ÉG KEYPTI HÉR Í DAG OG ÞAÐ VARÐ EKKI AÐ NEINU,
ÉG ER MEÐ MATARBOÐ OG ÞETTA DUGAR EKKI : !
( ÞRUMAÐI HANN ÚT ÚR SÉR)
Afgreiðslumaðurinn ungi horfði skelkaður á þann reiða og sagði svo:
Jáá , veistu hvað ? ég keypti mér lopapeysu um daginn, svo varð hún skítug,
ég henti henni í þvottavél og síðan í þurrkara og hún bara hvarf !!
...bætti svo við , heldur þú að þetta sé af sömu rollunni ??

Einu sinni var Hafnfirskur vísindamaður að gera eldflaug til að senda til
sólarinnar. Þegar annar vísindamaður gekk framhjá sagði hann: Þú getur ekki sent
þetta til sólarinnar, það brennur til agna í hitanum.
-Ofsalega geturðu verið vitlaus. sagði Hafnfirðingurinn.- ég sendi hana auðvitað
um nóttu.

Ljóskan: Hún sat og reyndi að raða saman púsluspili, var orðin hundpirruð
og ákvað að hringja í manninn sinn og fá hjálp : "Heyrðu, geturðu ekki komið og
hjálpað mér með
þetta fjandans púsluspil, ég veit ekki einusinni hvar ég á að byrja!" sagði hún
ergileg.
"Af hverju er myndin utan á pakkanum?" spurði maðurinn í mæðutón.
"Það er einhvað dýralífseitthvað, hani eða hæna," sagði ljóskan og bætti við."
Það eru öll fjandans stykkin eins!"
"Það getur ekki verið" sagði maðurinn, "ég skal koma."
Eftir örstutta stund rennir hann í hlað og kemur að konu sinni sitjandi við
eldhúsborðið, hann stynur þungan og segir:
"Sópaðu kornfleksinu aftur í pakkann kona og hættu þessu rugli!!"

Fleiri fúlir brandarar!!

|
Rafmagnsverk-stæðið Neistinn ehf er í
Félagi löggiltra rafverktaka og SART, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvu-iðnaði.
Markmið aðildarfyrirtækja SART er að veita á hverjum tíma bestu þjónustu sem völ er
á. Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og engum öðrum en félagsmönnum er heimil
notkun þeirra.
Tenglar:
Íris ehf
Mogginn
Skaggar
Samstaða
Húnahornið
Belgingur
Mclaren

|