In progress:
English

Radíó í ferðalögum


TF3KX
Radíó á ferðalögum

Annað

Nýtt efni:

Fyrsta útgáfa þessarar síðu.. 5. sept. 2004

Tæki og loftnet á ferðalögum

Radíóamatörar taka oft búnað sinn með á ferðalög. Algengt er að menn hafi tæki í bílum og noti bílaloftnet. Sjálfur ferðast ég einkum til útlanda, vegna vinnu, eða innanlands í sumarleyfum. Í þessi ferðalög hentar vel að taka léttan og búnað og í þeim tilgangi hef ég sett saman stöð sem byggir á SW20+ sendiviðtækinu (sjá kaflann um tæki og loftnet). Öll stöðin, að meðtöldum rafhlöðum og víraloftneti, kemst fyrir í litlu handveski. Í þessu veski er allur búnaður sem þarf til að hafa reglulega sambönd um þúsundir kílómetra.

Ferðir árið 2004

Í júní 2004 tók ég hluta sumarleyfisins og dvaldi á Akureyri með fjölskyldunni í viku. Úr orlofsíbúð (Stéttarfélags verkfræðinga) við Klettastíg strengdi ég loftnetsvírinn frá svölunum á annarri hæð út í tré í garðinum. Samtals hafði ég um 50 sambönd þaðan á 20 m tíðnisviðinu, með u.þ.b. 1 W sendiafl. Lengsta sambandið var til Haítí, samtals um 6.000 km. Vilhjálmur, TF3DX, var um svipað leyti á ferðalagi í Evrópu en mér tókst ekki að ná sambandi við hann þótt ég reyndi talsvert. Akureyrarferðinni lukum við með því að aka hringveginn austur fyrir, sjá framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og renndum svo heim í Hafnarfjörð daginn eftir forsetakosningarnar.

Ferðir árið 2003 og fyrr

(Í vinnslu).