|
In progress: English |
TF-TF |
||||||||||
|
TF3KX Annað
|
Nýtt efni:Setjum kraft í fjarskiptin milli TF stöðva í vetur. Innanlandstíðnin er 3633 KHz og þar er tilvalið að hittast á kvöldin, t.d. á heilu tímunum frá og með kl. 22. Öll sambönd sem fara fram frá og með 1. október 2004 verða gild fyrir TF-TF viðurkenningarnar. Fyrstu viðurkenningarnar verða veittar eftir áramót, fyrir tímabilið okt-nóv-des. Hverjir hljóta fyrstu TF-TF viðurkenningarnar? Um TF-TF viðurkenningarnarTF-TF viðurkenningar eru veittar radíóamatörum með íslenzk kallmerki fyrir árangur við að hafa samband við aðrar íslenzkar stöðvar. Í þessu felst hvatning til amatöra til að hafa sambönd innanlands, ferðast með tæki sín og prófa fjarskiptaskilyrði sín á milli. Viðurkenningar eru veittar fjórum sinnum á ári og að auki sérstaklega fyrir árangur ársins. Í meginatriðum eru gefin stig sem hér segir Punktar fyrir hvert samband við aðra stöð:
Margfaldarar fyrir fyrsta samband við hverja stöð:
Punktar og margfaldarar safnast sérstaklega upp á hverju tíðnisviði (bandi) og einnig fyrir hvert kallmerki sem þátttakandi notar. Heildarstig þátttakanda eru reiknuð:
Ekki er nauðsynlegt að skila inn radíódagbók fyrir viðurkenningar, heldur dugir að telja saman sambönd úr bókinni og taka saman á umsóknarblaði. Nánari upplýsingar eru í reglum fyrir TF-TF viðurkenningarnar.
Umsjón hefur með TF-TF viðurkenningunum og upplýsingar veitir: Kristinn
Andersen, TF3KX
|
||||||||||