AðalbrautMótorhjólakennsla

Allir kennarar Aðalbrautar eru bifhjólamenn af lífi og sál. Sumir okkar hafa verið viðriðnir hjól í meira en aldarfjórðung. Þegar kemur að því að kenna á mótorhjól er nauðsynlegt að kennarinn hafi yfirgripsmikla reynslu af akstri og meðferð mótorhjóla til að geta miðlað til nemandans.

Nú er það þannig að mótorhjólaprófið er orðið tvískipt og fær maður fyrst réttidi á hjól upp að 35 hestöflum. Eftir að hafa haft próf á lítið bifhjól í tvö ár eða vera orðin 21 árs má viðkomandi taka próf á stórt bifhjól með ótakmörkuð réttindi. Þess vegna kennum við á hjól sem uppfylla skilyrði beggja flokkanna. Hjólin okkar eru:

Hjólin okkar

Lítið bifhjól.
Honda CB 250 Nighthawk 1991 árgerð (27 hestöfl)

Stórt bifhjól.
Yamaha XJ 600 N 1999 árgerð
(72 hestöfl)

 

Kennslan hjá okkur fer þannig fram að nemandinn er látinn öðlast góða reynslu á plani með æfingum áður en að hann fær að fara í götuakstur. Á planinu er farið í alla þætti er lúta að akstri hjóla og meðferð þeirra, ekið í keilum, auk þess sem að nemandanum lærist að þekkja takmörk sjálfs síns og hjólanna. Eftir u.þ.b. sex tíma fær hann að fara út í umferð og á þá að vera orðinn það góður að hægt er að einbeita sér að umferðarfræðinni.

 

Svigakstur Byrjað er á einfaldari æfingum sem lúta að því að ná valdi á stjórntækjum hjólsins og hvernig á að stýra því. Fyrsta prófæfingin sem neminn fer venjulega í er keilusvigið sem sést hér til hliðar. Í prófinu þarf nemandinn að geta farið í gegnum 10 hlið á 10 sekúndum sem er ekki eins auðvelt og það sýnist.

 

Nauðhemlun er sér kapítuli og þar lærir nemandinn hvernig hann notar frambremsu og afturbremsu, bæði saman og í sitt hvoru lagi. Nauðhemlun er prófæfing og þar þarf nemandinn að nauðhemla úr 40 km hraða þar til hann er stopp á innan við 6 metrum, án þess að læsa hjóli.

Nauðhemlun

Snigilakstur

Snigilakstur getur virst auðveldur við fyrstu sýn, en er það ekki. Að keyra mótorhjól hægt krefst nokkurrar leikni og góðu valdi á stjórntækjum. Í prófinu þarf nemandinn að sýna að hann haldi valdi á hjólinu á gönguhraða.

Mörgum finnst U-beygjan erfið og ekki af ástæðulausu. Þar þarf nemandinn að nýta sér vel alla þá þætti sem hann hefur lært fram að þessu. Ekki örvænta samt, í prófinu er U-beygjan sem þú þarft að ná 5 metrar á breidd.

U-beygja

Útsýni nemanda í götuakstri

Götuaksturinn fer mikið í það að kenna nemandanum umferðarreglurnar upp á nýtt. Það er svo margt sem hefur breyst og þess háttar. Einnig lærir hann hvernig á að bregðast við og hvernig er best að þekkja hætturnar, hvar hann staðsetur sig o.sv.frv.

Við hjá Aðalbraut látum ekki duga að kenna þér bara það sem þú þarft að læra fyrir prófið. Við vitum það af reynslu að það er margt sem að kemur upp á í akstri mótorhjóla og því förum við einnig með þig í akstur á möl, auk fleiri æfinga.

Æfingarakstur á möl

Nemandi í prófi

Þá er bara komið að því að fara í prófið. Það er tekið hjá Frumherja og skiptist akstursprófið í tvennt, keiluæfingar og akstur í umferð. Áður en að þú getur byrjað verður þú þó að svara nokkrum munnlegum spurningum um umhirðu hjólsins, en hafðu engar áhyggjur, við verðum búnir að fara vel yfir það með þér.

 

Þegar prófið er búið skaltu svo ekki halda að þú sért laus við okkur, við hjólum reglulega og vonumst til að sjá þig með okkur. Hjá okkur færðu líka meira en sjálft prófið. Ef þú ert að fara að kaupa mótorhjól bjóðumst við til að hjálpa þér við það. Við höfum langa reynslu af þeim markaði og getum ráðlagt þér heilmikið.