Að tengja skrár við forrit

Flestir þekkja þetta. Þú hefur alla tíð getað tvísmellt á ákveðin skjöl og þá opnast þau með uppáhaldsforritinu þínu.

Þú er til dæmis vön/vanur að skoða JPEG myndir í iPhotoPlus forritinu þínu, þar opnast þær sjálfkrafa ef þú tvísmellir á þær í möppunni.

Einn daginn setur þú upp nýtt forrit fyrir afmarkaða vinnslu, en forritið stillir tölvuna þannig að myndirnar þínar opnast hér eftir í því.

Óþolandi.

Það er þó lítið mál að bregðast við þessu því við ráðum algerlega í hvaða forriti skrárnar okkar opnast og þurfum ekki að velja það sérstaklega í hvert skipti. Gildir þá einu hverslags skrá það er - en við verðum þó að gæta þess að tengja ekki skrár við forrit sem ekki er ætlað fyrir slíkar skrár

Dæmi:

Þegar ég tvísmelli á midi skrárnar mínar - opnast þær alltaf sjálfvirkt í forritinu Quicktime. Þetta forrit finnst mér afburða leiðinlegt og vill sem minnst af því vita. Ég nenni ekki að ,,öfugklikka" alltaf á skrárnar, gera ,,Open With" og velja forrit - ég vil að þetta opnist sjálfkrafa í WinAmp spilaranum þegar ég tvísmelli á þetta.

Svona fer ég að:

----------------------------------------------------------------

1. Opna einhverja möppu á harða drifinu. Fer í Tools og vel þar Folder Options (gulur rammi).

----------------------------------------------------------------

2. Þá kemur upp þessi gluggi. Ég fer á flipann File Types (blár rammi) og skruna svo niður þar til ég finn skráartegundina sem ég vil breyta, í þessu tilfelli Midi skrár (rauður rammi). Eins og sést er Windows stillt þannig að Midi skrár opnast sjálfkrafa í QuickTime. Ég ýti á Change takkann (grænn rammi).

----------------------------------------------------------------

3. Þá kemur upp Open With glugginn og ég vel forritið sem ég vil að sjái um Midi skrár. Í þessu tilfelli Winamp spilarann. Því næst ýti ég á OK.

----------------------------------------------------------------

4. Nú þegar ég vil hlusta á Midi skrárnar þarf ég ekki annað en að tvísmella á þær, þá birtast þær í forritinu sem ég vil að þær birtist í . (Athugið að í einstaka tilfellum þarf að endurræsa tölvuna til að breytingarnar smelli inn).

----------------------------------------------------------------

 

 

Fara á: Heimasíðu Baldurs / Námssíðu Baldurs / Tónlistarsíðu Baldurs

Senda ábendingu til Baldurs

© 2003 Baldur M. Rafnsson