Hróarskelda 22.6.2003 - 30.6.2003
Inngangur Hér á eftir gefur að líta smá ferðauppgjör yfir för minni til Danmerkur í sumar. Engum nöfnum hefur verið breytt en þeim er kanski sleppt úr á ýmsum stöðum af tillitsemi við einstaklingin sem gerði eitthvað markvert. Lýsingarnar og atburðirnir eru ekki endilega heldur 100% nákvæmir en samt nógu nálægt því til þess að engin þarf að kalla mig lygara. Heimildirnar koma allar frá lítilli stílabók sem var með mér allar stundir svo ég gat skráð þær í staðinn fyrir að reyna byggja alla sögunni eftir minni sem hefur tilhneygingju til að verða gloppótt eftir fimmtánda bjórinn. Ef þið hafið einhverjar aðrar minningar um vissa atburði þá segi ég kurteisislega: ,,So sorry, ég sá þig ekki skrifa þetta niður í stílabók þannig hvað mannst þú?". P.S. Afsakið alla sviganotkunina í skriftum
mínum (eins og núna) og stfsetningarvilur (innsláttarvillr) Fyrstu dagarnir Síðustu
dagarnir
|