Byggðasafn Húnvetninga
 og Strandamanna

- Reykjum í Hrútafirði -

Hákarlaskipið Ófeigur

 

      
Nýjustu fréttir

Á döfinni

Hákarlaveiða-
sýning

Byggðasafns-
sýning

Myndir

Gamall rokkur á safninu

Saga safnsins

Safnstarfið

Merkar minjar

Greinar

Aðalsíða

    
Austur-Húnavatnssýsla

Heimilisfólk og gestir á Hólabaki 1910 - úr myndasafni Byggðasafnsins

Austur-Húnavatnssýsla er um 4.920 ferkílómetrar að stærð. Að vestanverðu eru mörk sýslunnar á Gljúfurá, að austanverðu miðast mörkin við Skagatá. Að sunnan eru mörk sýslunnar á Kili og sem næst vatnaskilum á Arnarvatnsheiði. 

Upp af láglendinu ganga Vatnsdalur, Svínadalur og Langidalur en fram af honum er Blöndudalur og Svartárdalur til suðurs. Austan Langadals er hár fjallgarður út eftir Skaga og í honum nokkrir dalir, stærstur þeirra er Laxárdalur. 

Þéttbýlisstaðir eru tveir, Blönduós og Skagaströnd. Lax- og sílungsveiði er víða í ám og vötnum. Þekktustu laxveiðiárnar eru Blanda, Laxá á Ásum og Vatnsdalsá. 

Þingeyrarkirkja var reist á árunum 1864-1877

Bóka- og skjalasafn

Á Blönduósi eru héraðsbókasafn og héraðsskjalasafn sýslunnar. Í héraðsbókasafninu eru skráð um 20 þúsund bindi og árlega eru keyptir 400 bókatitlar. Safnið þjónar öllu héraðinu, en Blönduósbær, Engihlíðarhreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Torfalækjarhreppur og Áshreppur eru aðilar að rekstrinum.

Skjalasafn Austur-Húnvetninga er til húsa í sömu byggingu og héraðsbókasafnið og er það eitt af betri skjalasöfnum á landsbyggðinni. Starfsemin er vaxandi og safninu berst mikið af einka-, skjala- og bréfasöfnum. Öll sveitarfélögin í sýslunni standa að rekstri safnsins. 

Menningarvefir í Austur-Húnavatnssýslu: 

o    Northwest.is

o    Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu

o    Húnahornið

 

  
Sýslumerki Strandasýslu
Strandasýsla

 

Sýslumerki Vestur-Húnavatnssýslu 
Húnaþing
vestra
  

 

Sýslumerki Austur-Húnavatnssýslu
Austur-
Húnavatnssýsla
 

 

 

 

Gamli Ford

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Sími: 451-0040 og 863-4287 ¤ Netfang: byggdasafn@emax.is
© 2001 Vefsíðugerð: Sögusmiðjan  ¤ Umsjón: Byggðasafnið að Reykjum