Byggðasafn Húnvetninga
 og Strandamanna

- Reykjum í Hrútafirði -

Hákarlaskipið ÓfeigurSími: 451-0040 og 863-4287
Netfang: byggdasafn@emax.is

 

     
Nýjustu fréttir

Á döfinni

Hákarlaveiða-
sýning

Byggðasafns-
sýning

Myndir

Gamall rokkur á safninu

Saga safnsins

Safnstarfið

Merkar minjar

Greinar

Aðalsíða

     
Á döfinni  

Leshringur

Í haust var farið af stað með verkefnið Menningarhringurinn. Nokkrir aðilar starfa saman að því, Byggðasafnið, Grettistak, Selasetrið, Verslunarminjasafnið og SSNV - atvinnuþróun. Ætlunin er að kynnast sögun, stöðum og persónum frá héraðinu betur og reyna þannig að gera fólki kleift að þekkja söguna betur og geta miðlað þeirri þekkingu sinni til ferðamanna á svæðinu. Öll viljum við jú að þeir ferðamenn sem fara um héraðið stoppi oftar og lengur og þetta getur orðið liður í því að svo verði. Við viljum fá sem flesta með okkur í þetta verkefni, því þetta skiptir okkur öll máli. Því fleiri sem eru með, þeim mun fleiri hugmyndum er úr að moða. Við komum saman nokkrum sinnum á síðasta ári og nú erum við að fara af stað aftur af fullum krafti. Við viljum því hvetja fólk til að bregðast við auglýsingum frá okkur og mæta á leshringsfundi og koma með sínar hugmyndir og áhugamál.

31. JANÚAR 2008

Logo – samkeppni

Á næstunni verður farið í að hrinda af stað hönnunarsamkeppni – en kominn er tími á það að Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna eignist sitt eigið logo.

Nánari upplýsingar síðar.

30.8.2007

 

Sumaropnun

Eins og verið hefur undanfarin ár er 1. júní formlegur opnunardagur safnsins í ár. Safnið er opið alla daga frá klukkan 10:00 til 18:00 fram í ágústlok. Leiðsögn er á safninu alla daga. 

Utan hefðbundins opnunartíma þarf að hafa samband við safnvörð  í síma 451-0040 og 863 4287 eða á netfang byggdasafn@emax.is  Gott er að hafa samband í tíma þegar hópar hyggja á heimsókn í safnið. Þá er boðið upp á hákarl og harðfisk í tengslum við sýninguna um Ófeig og hákarlaveiðar við Húnaflóa.  



1. júní - 31. ág. er safnið opið 10:00-18:00 alla daga 
og eftir samkomulagi yfir veturinn
 

  
Sýslumerki Strandasýslu
Strandasýsla

  

Sýslumerki Vestur-Húnavatnssýslu 
Húnaþing
vestra
  

  

Sýslumerki Austur-Húnavatnssýslu
Austur-
Húnavatnssýsla
 

 

Gamli Ford

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Sími: 451-0040 og 863-4287 ¤ Netfang: byggdasafn@emax.is
© 2001 Vefsíðugerð: Sögusmiðjan  ¤ Umsjón: Byggðasafnið að Reykjum