Byggðasafn Húnvetninga
|
|
|
Á döfinni
|
Báturinn Björg frá Bergsstöðum á Vatnsnesi var smíðaður veturinn 1897 af Guðmundi Bárðarsyni (f.1844, d.1916), þá bóndi á Kollafjarðarnesi og síðar í Bæ við Hrútafjörð. Teitur Halldórsson á Bergstöðum á Vatnsnesi keypti bátinn og sótti hann að Kollafjarðarnesi vorið 1897 er hann flutti búferlum frá Skarði að Bergstöðum. Báturinn reyndist farsæll og færði sannarlega björg í bú Teits og Ingibjargar Árnadóttur, en börn þeirra voru 15. Pétur Teitsson gaf Þjóðminjasafni Íslands bátinn. Báturinn er feræringur í stærra lagi, stokkreistur, fremur kjölstuttur, mjög lotamikill og ákaflega mjór miðað við lengd. Þóftur eru þrjár og hvíla á dokkum. Ræði eru þrjú á borði og það aftasta fyrir framan bitaþóftu og verður ekki róið í því nema aftur á bak. Stelling er engin, en mastrið hefur staðið við andófsþóftu að aftan. Björg er eini varðveitti báturinn hér á landi sem er með trénegldum böndum.
1.
júní - 31. ág. er safnið opið 10:00-18:00 alla daga |
|
|
|
Byggðasafn
Húnvetninga og Strandamanna |
|