Byggðasafn Húnvetninga
 og Strandamanna

- Reykjum í Hrútafirði -

Sími: 451-0040 og 862-4287
Hákarlaskipið ÓfeigurNetfang: byggdasafn@emax.is

 

     
Nýjustu fréttir

Á döfinni

Hákarlaveiða-
sýning

Byggðasafns-
sýning

Myndir

Gamall rokkur á safninu

Saga safnsins

Safnstarfið

Merkar minjar

Greinar

Aðalsíða

    
Fréttir af starfsemi safnsins

Hákarlinn - Ljós og lyf

Sýning í samvinnu við Sjóminjasafnið Víkina Grandagarði 8 Reykjavík.

31. maí næst komandi mun verða opnuð sýning á hákarlaveiðum og útflutningi afurða veiðanna, lýsinu. Þessi sýning verður ein af fimm sýningum sem opna í nýuppgerðu Sjóminjasafni á Grandanum og í samstarfi við Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna.

Þó nokkrir munir voru lánaðir af Byggðasafninu að Reykjum á þessa sýningu, sömuleiðis fengust munir annars staðar frá líka. Á sýningunni verður gerð grein fyrir hákarlaveiðum við Húnaflóa og hversu mikilvægar þessar veiðar voru bændum. Farið verður yfir ferlið við bræðslu lifrarinnar og farið eilítið yfir hollustu hákarlsins og gömul og skemmtilega húsráð við mörgum kvillum skoðuð.

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson mun opna sýninguna, sem er ein af fimm nýjum sýningum sem verða opnaðar í Víkinni þennan dag.

Byggðasafnið fékk styrk að upphæð 250.000 til notkunnar til uppsetningar þessarar sýningar frá Menningarráði Norðurlands vestra.

26. maí 2008

Leshringur

Í haust var farið af stað með verkefnið Menningarhringurinn. Nokkrir aðilar starfa saman að því, Byggðasafnið, Grettistak, Selasetrið, Verslunarminjasafnið og SSNV - atvinnuþróun. Ætlunin er að kynnast sögun, stöðum og persónum frá héraðinu betur og reyna þannig að gera fólki kleift að þekkja söguna betur og geta miðlað þeirri þekkingu sinni til ferðamanna á svæðinu. Öll viljum við jú að þeir ferðamenn sem fara um héraðið stoppi oftar og lengur og þetta getur orðið liður í því að svo verði. Við viljum fá sem flesta með okkur í þetta verkefni, því þetta skiptir okkur öll máli. Því fleiri sem eru með, þeim mun fleiri hugmyndum er úr að moða. Við komum saman nokkrum sinnum á síðasta ári og nú erum við að fara af stað aftur af fullum krafti. Við viljum því hvetja fólk til að bregðast við auglýsingum frá okkur og mæta á leshringsfundi og koma með sínar hugmyndir og áhugamál.

     27.janúar 2008

Austurrískir sjónvarpsmenn á ferð

Nýlega var kvikmyndatökulið frá Austurríki á ferð hér í V-Húnaþingi. Er lið þetta að framleiða mynd um Gretti Ásmundarson og bardaga hans við drauginn Glám. Kvikmyndatökulið þetta kom meðal annars við hér á safninu og skoðaði aðstæður í baðstofunni. Því miður varð ekkert úr því að baðstofan að Syðsta-Hvammi fengi tækifæri til að slá í gegn í Austurríki.

29.8.2007

 

Safnadagurinn 8. júli 2007

Hinn árlegi safnadagur var haldinn hátíðlegur þann 8. júli síðastliðinn. Að Reykjum var boðið upp á þjóðsögur í baðstofu Syðstahvamms svo og leiðsögn um Ófeigsskála. Þá var aðgangur ókeypis. Mikið fjölmenni var og var dagurinn vel heppnaður í alla staði.

9.7.2007

 

Kvennréttindadagurinn

Kvennréttindadagurinn var haldinn hátíðlegur á safninu þann 19. júni. Var frítt inn fyrir konur auk þess sem sem öllum konum var færð smá gjöf að tilefni dagsins.

Heppnaðist dagurinn mjög vel og voru gestir svo og starfsmenn það ánægðir með þetta að eitthvað verður örugglega gert að ári.

 

27.6.2007

 

Safnadagurinn
Hinn árlegi safnadagur var haldinn hátíðlegur um allt land þann 14. júlí síðastliðinn. Að Reykjum var ýmislegt gert til skemmtunar. Hey var slegið með orf og ljá, sett í rifgarða og bundið upp á hest. Hestakerra safnsins var tekin fram og fenginn hestur sem dró hana um svæðið. Hey var flutt í kerrunni og börn fengu far með henni. Hestar voru á svæðinu og teymt var undir börnum. Innandyra var ull kemd og spunnið á rokk og snældu. Boðið var upp á hákarl og harðfisk í Ófeigsskála. 

Sumaropnun
Safnið opnaði formlega í ár þann 1. júní og er opið í allt sumar til 31. ágúst.  Opið er daglega frá kl. 10:00-18:00 og jafnvel lengur ef þess er óskað. Fyrir hópa er gott að hafa samband þegar ferð á safnið er fyrirhuguð. Leiðsögn er á safninu alla daga. Fyrir hópa er boðið uppá hákarl og harðfisk í tengslum við sýninguna um Ófeig og Hákarlaveiðar.  

Skólaheimsóknir
Þrátt fyrir að ekki sé formlega opið við safnið fyrr en í júní eru annir við safnið í maí. Undirbúningur fyrir sumaropnunina í fullum gangi. En einnig ýmsir skólar af svæðinu með börn á safnið til að fræðast um gamla tíma og skoða munina af svæðinu. M.a. hafa komið börn frá Varmahlíð, Húnavallaskóla og Broddanesskóla í vor. 

Skólabúðir
Í byrjum september hófust Skólabúðir að Reykjaskóla. Hingað koma börn af öllu landinu og dvelja á svæðinu frá mánudegi til föstudags við nám og leik. Í hverri viku 80-90 börn. M.a. fá þau öll kennslu á safninu. Þar eru þau frædd um útræði og hákarlaveiðar til forna. Þau smakka á hákarl og vinna verkefni um efnið. Einnig læra þau um forna matarmenningu, súrmat, soðkökur, mysu og ýmsar geymsluaðferðir. Tóvinna er einnig rædd og hversu mikilvægur þáttur ullin var í lífi landsbúa hér á öldum áður. Þau æfa sig í að kemba ull og vinna síðan verkefni um kennsluefnið í lokin. Óhætt er að segja að öll eru börnin mjög áhugasöm um efnið og spyrja ólíklegustu spurninga. Það er sannarlega mikilvægur þáttur í starfi safnsins að taka á móti öllum þessum börnum sem eru á þriðja þúsund á ári. 

  

  

Strandasýsla

  

 
Húnaþing
vestra
  

  


Austur-
Húnavatnssýsla
 

 

Gamli Ford

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Símar: 451-0040 og 863-4287 ¤ Netfang: byggdasafn@emax.is
1. júní - 31. ág. er opið 10:00-18:00 alla daga 
og eftir samkomulagi yfir veturinn
© 2001 Vefsíðugerð: Sögusmiðjan  ¤ Umsjón: Byggðasafnið að Reykjum