Byggðasafn Húnvetninga
 og Strandamanna

- Reykjum í Hrútafirði -

Hákarlaskipið Ófeigur

 

     
Nýjustu fréttir

Á döfinni

Hákarlaveiða-
sýning

Byggðasafns-
sýning

Myndir

Gamall rokkur á safninu

Saga safnsins

Safnstarfið

Merkar minjar

Greinar

Aðalsíða

    
Húnaþing vestra

Myndin er tekin í Andrésarvík við Hvammstanga og varðveitt á Byggðasafninu

Húnaþing vestra eða Vestur-Húnavatnssýsla eins og landsvæðið hét fyrir sameiningu sveitarfélaga á svæðinu er 2580 ferkílómetrar að stærð. Mörk þess til vestur er Hrútafjörður og Hrútafjarðará á Holtavörðuheiði, til suðurs eru mörk sýslunar nálægt vatnaskilum á Arnarvatnsheiði og síðan skiptir Gljúfurá á milli við Austur-Húnavatnssýslu. 

Húnaþing vestra liggur upp frá Húnaflóa og ganga inn úr honum firðirnir Hrútafjörður, Miðfjörður og Húnafjörður. Milli Hrútafjarðar og Miðfjarðar er Heggstaðanes en Vatnsnes milli Miðfjarðar og Húnafjarðar. 

Þrjú stór vötn setja svip sinn á svæðið; Sigríðarstaðavatn, Vesturhópsvatn og síðan Hópið sem nær að hluta til inn á svæðið. Silungsveiði er í öllum þessum vötnum. Einnig er lax- og silungsveiði í þekktum laxveiðiám á svæðinu, helstar eru Miðfjarðará og Víðidalsá, einnig má nefna Hrútafjarðará og Tjarnará á Vatnsnesi.

Meðal merkra staða á svæðinu má nefna Borgarvirki er rís upp af ásunum milli Vesturhóps og Víðidals. Borgin er úr stuðlabergi 10-15 metra háu. Ofan í hana er dæld, kringlótt að mestu og 5-6 m. djúp. Inn í virkinu eru rústir af tveimur skálum. Nokkrar munnmælasögur eru um virkið. Ein segir að þar hafi Barði Guðmundarson í Ásbjarnarnesi varist óvinum sínum. Einnig hefur sú tilgáta verið sett fram að Borgarvirki sé héraðsvígi frá landnámsöld. 

Hvítserkur er um 15 metra hár klettadrangur er stendur við botn Húnafjarðar í landi Súluvalla. Gömul þjóðsaga segir að Hvítserkur hafi verið tröll er bjó norður á Ströndum og hafi ætlað að mölva klukku á Þingeyrum sem fór í taugarnar á honum, en hafi dagað þarna uppi í flæðarmálinu. 
 

Menningar- og upplýsingavefir í Húnaþingi vestra: 

·         Northwest.is

·         Grettistak 

·         Forsvar

·         Ungmennasamband V.-Hún.

·         Húnaþing vestra

 

  
Sýslumerki Strandasýslu
Strandasýsla

 

Sýslumerki Vestur-Húnavatnssýslu 
Húnaþing
vestra
  

 

Sýslumerki Austur-Húnavatnssýslu
Austur-
Húnavatnssýsla
 

 

 

 

Gamli Ford

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Sími: 451-0040 og 863-4287 ¤ Netfang: byggdasafn@emax.is
© 2001 Vefsíðugerð: Sögusmiðjan  ¤ Umsjón: Byggðasafnið að Reykjum