Byggðasafn Húnvetninga
 og Strandamanna

- Reykjum í Hrútafirði -

Hákarlaskipið Ófeigur

 

      
Nýjustu fréttir

Á döfinni

Hákarlaveiða-
sýning

Byggðasafns-
sýning

Myndir

Gamall rokkur á safninu

Saga safnsins

Safnstarfið

Merkar minjar

Greinar

Aðalsíða

    
Strandir

Borðeyri við Hrútafjörð 1895 - úr myndasafni Byggðasafnsins

Strandasýsla heitir eftir hinni miklu strandlengju frá Hrútafirði og norður að Geirólfsgnúpi. Víða við ströndina liggur rekaviður í hrúgum í fjörunni, en hann berst með hafstraumum frá ströndum Síberíu. Rekaviðurinn hefur ávallt verið ein mestu hlunnindi Strandamanna. 

Í hugum fólks hafa Strandir á sér dulúðugan blæ. Strandamenn voru taldir að búa yfir kunnáttu til að beisla náttúruöflin sér til hagsbóta og landslagið allt gerir ferðamönnum auðveldara að setja sig inn í heim þjóðsagna, jafnvel trúa á tilvist álfa, trölla og annarra yfirnáttúrulegra vera

Drangavík og Drangaskörð - ljósmynd frá Svaðilfara við Djúp

Í Strandasýslu eru fimm sveitarfélög, öll fremur fámenn, en í Strandasýslu allri búa rúmlega 800 manns. Bæjarhreppur er syðstur og nær frá miðri Holtavörðuheiði að Stikuhálsi milli Hrútafjarðar og Bitrufjarðar. Þá tekur við Broddaneshreppur sem nær yfir Bitrufjörð og Kollafjörð. Hólmavíkurhreppur nær frá Kollafjarðarnesi með suðurströnd Steingrímsfjarðar að Selárdal í Steingrímsfirði og í botn Ísafjarðar og að Kaldalóni við Djúp í vestri. Norðurströnd Steingrímsfjarðar tilheyrir Kaldrananeshreppi ásamt Bjarnarfirði. Hreppamörk Kaldrananeshrepps og Árneshrepps, nyrstu byggðar á Ströndum, eru við norðanverða Kaldbaksvík við svonefndan Spena. Þaðan teygir Árneshreppur sig allt norður að Geirólfsgnúpi.
 

Þéttbýliskjarnar á Ströndum

Borðeyri stendur við Hrútafjörð og er eitt fámennasta þorp landsins með u.þ.b. 20 íbúa. Fornar heimildir sýna að eyrin hefur verið í tölu meiriháttar siglinga- og kauphafna allt frá fyrstu tíð. Nafn eyrarinnar er dregið af því að þegar Ingimundur gamli fór í landaleit, sumarið eftir að hann kom til Íslands, fann hann þar nýrekið viðarborð og nefndi eyrina Borðeyri eftir því. Frá þeim atburðum segir í Vatnsdælasögu.

Hólmavík við Steingrímsfjörð sunnanverðan er stærsta kauptún á Ströndum, með rúmlega 400 íbúa. Helsti atvinnuvegurinn er sjávarútvegur og á staðnum er starfrækt fullkomin rækjuverksmiðja. Hafnarskilyrði eru góð. Margvísleg þjónusta og verslun skiptir þó einnig miklu og vaxandi máli í atvinnulífinu, en á Hólmavík er eitt elsta kaupfélag landsins, stofnað 1898.

Drangsnes stendur við norðanverðan Steingrímsfjörð, í mynni fjarðarins, og dregur nafn sitt af miklum steindrangi í þorpinu sem kallast Kerling. Sagan segir að drangurinn sé eitt þeirra trölla sem ætluðu að grafa Vestfirðingafjórðung frá meginlandinu og stofna tröllaríki. Úti fyrir Drangsnesi liggur Grímsey, sem er stærsta eyja fyrir Ströndum. Þangað er ekki nema 10 mínútna sigling í fjölbreytt fuglalíf og gróðursæld.
 

Menningar- og upplýsingavefir á Ströndum: 

·         Strandir.is

·         Sauðfjársetur á Ströndum

·         Galdrasýning á Ströndum

·         Hólmavíkurhreppur

·         Leikfélag Hólmavíkur

·         Sögusmiðjan

  
Sýslumerki Strandasýslu
Strandasýsla

 

Sýslumerki Vestur-Húnavatnssýslu 
Húnaþing
vestra
  

 

Sýslumerki Austur-Húnavatnssýslu
Austur-
Húnavatnssýsla
 

 

 

 

Gamli Ford

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Sími: 451-0040 og 863-4287 ¤ Netfang: byggdasafn@emax.is
© 2001 Vefsíðugerð: Sögusmiðjan  ¤ Umsjón: Byggðasafnið að Reykjum