BÆRINN MINN |
VERKEFNI FYRIR 5 ÁRA BÖRN Í LEIKSKÓLA
Til að hægt sé að vinna verkið þarf aðstoð fullorðina.
Verkefnið á að taka um 4 vikur.
Gögn.
Tölva, vefsíða, tölvupóstfang, myndavél, skanni, kort af Íslandi, blöð, býanta, liti og mjög frjótt ímyndunarafl.
Hvað skal gera?
Til að verkefnið gangi upp þarf að fá aðra leikskóla til að vinna að samskonar verkefni. Minnst 3 leikskólar vinni saman. Samskipti verða í formi tölvupósts og á heimasíðum leikskóanna. Þegar búið er að velja og hafa samband við leikskólanna sem valdir voru skal ákveða hvað daga hafa á samband. Tilgangurinn er að börnin verði meðvitaðri um umhverfið sitt og kynni sér aðra staði á landinu.
Verkefni
Börnin finni á kortinu hvar þau búa. Leit að öðrum þorpum /bæjum sem þau vildu hafa samband við leikskóla í helst í öðrum landshlutum.
Velja 2 bæi /þorp kanna hvort leikskólinn þar hafi vefsíðu og tölvupóstfang, leita þar til fundnir eru 2 leikskóla sem up fylla þessi skilyrði.
Hafa semband við leikskólanna segi frá hvar þau búa og grenslist fyrir um samstarf. Kynna hvernig verkefnið eigi að fara fram.
VIKA 1
Leikskólarnir taka saman efni um það sem þeim sjálfum finnst merkilegt við sinn leikskóla og "bæinn" sinn. Teikna myndir af viðfangsefnunum og setja á heimasíður og senda upplýsingar í tölvupósti til hinna leikskólanna
VIKA 2
Hver leikskóli kynni sér hina leiskólanna og svetarfélagið sem þeir eru í á heimasíðum þeirra á netinu. Finna þar eitthvað sem þeim finnst áhugavert við staðinn og vilja láta senda sér nánari upplýsinga um. Sendir síaðn póst um það til hinna leikskólnna.
VIKA 3
Leikskólarni fara á stúfanna (vettvangsransóknir)og finna meira efni um það sem hinir bentu á sem áhugavert. reyna að finna eitthvað sem ekki kemur fram í kynnigum á heimasíðum sveitarfélaganna í þeirra sveitarfélagi en börnunum finnst áhugvert að komi fram. Hér er notaðst við myndavél og stuttar frásagnir með myndunum. Efni sett á heimasíður og sent til hinn leikskólanna í tölvupósti.
VIKA 4
Börnunum skipt í hópa og láitn tjá sig um hvernig þau upplifðu verkefnið. Hvernig var að vinna í tölvunni, vera í samskiptum við aðra leikskóla, vettfangsrannsóknir, hvað var skemmtilegt hvað var leiðinlegt. Myndu þau vilja fleiri svona verkefni. Niðurstöður sendar hinum leikskólunum í tölvupósti.