Hrafnkelsdalur gengur suður úr Jökuldal, gegnt bænum Brú. Dalurinn er allvel gróinn og þar er talsvert birkikjarr og víðirunnar.

Bærinn Aðalból í Hrafnkelsdal stendur í 390 metra hæð yfir sjávarmáli og er meðal þeirra bæja sem lengst eru frá sjó á Íslandi. Bærinn er þekktur úr Hrafnkelssögu Freysgoða en þar reisti Hrafnkell Hallfreðarson bú. Mörg örnefni í landi Aðalbóls minna á söguna. Útibúr Hrafnkels goða er þar í túni en Faxamýrar og Faxagil eru alllangt fyrir innan bæinn og þar eru einnig Faxahús.

Á Aðalbóli er rekin ferðaþjónusta í nafni Sáms bónda ehf. Þar stendur til boða:

  • Gisting með eða án morgunverðar, svefnpokapláss eða uppbúin rúm.
  • Bensínstöð, söluskáli.
  • Tjaldstæði.
  • Leiðsögn um söguslóðir Hrafnkels Freysgoða.
  • Skotveiðiferðir á rjúpu, heiðagæs og leiðsögn með hreindýraveiðum.

Verðlisti

Leitið nánari upplýsinga.
Sámur bóndi ehf.
Aðalból 2
701 Egilsstaðir
Sími:471-2788
Fax:471-2789

Email
English
Deutsch