Lög Skáksambands Austurlands


1. gr.

Skáksamband Austurlands er svæðissamband skákfélaga á Austurlandi. Skáksamband Austurlands skal vera meðlimur í Skáksambandi Íslands fyrir hönd sinna aðildarfélaga.
2. gr.
Markmið Skáksambands Austurlands er: að vera miðstjórn allra skákfélaga á félagssvæðinu og hagsmunasamtök þeirra, að standa fyrir meistaramóti og öðrum mótum á Austurlandi svo og þeim mótum sem Skáksamband Íslands kann að fela því.
3. gr.

Stjórn sambandsins skipa 3 menn, formaður, ritari og gjaldkeri. Varastjórn skal skipuð 2 mönnum.

Stjórnin er kosin á aðalfundi, þannig að fyrst er kosinn formaður, síðan tveir meðstjórnendur í einu lagi og loks tveir til vara. Stjórnin skiptir með sér verkum.

4. gr.

Stjórnin ræður málefnum sambandsins öðrum en þeim sem aðalfundur ákveður. Á stjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum.

5. gr.
Formaður kveður til stjórnarfunda og stjórnar þeim. Fundur er lögmætur ef 3 stjórnarmenn eða varamenn sitja hann.
6. gr.
Stjórn sambandsins veitir félögum upptöku en þær upptökur skulu staðfestar á næsta aðalfundi til að öðlast varanlegt gildi.
7. gr.
Félagsgjöld af hverjum einstakling skákfélaganna ákveðast á aðalfundi hverju sinni.
8. gr.
Reiknisár sambandsins er starfsárið 1. september til 31. ágúst.
9. gr,
Aðalfundur skal haldinn í október ár hvert. Á aðalfundi eiga allir meðlimir sambandsins rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti en atkvæðisrétt hafa aðeins þeir sem kosnir eru fulltrúar hjá hverju félagi og skal einn fulltrúi vera fyrir hverja 10 félaga 16 ára og eldri en 20 félaga yngri.
10. gr.
Á aðalfundi skulu vera tekin fyrir eftirfarandi mál og í þessari röð:

      1. Kosin kjörbréfanefnd til að athuga umboð fulltrúa.
      2. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar.
      3. Skýrsla sambandsstjórnarinnar.
      4. Reikningar sambandsins.
      5. Ákveðin gjöld sambandsins.
      6. Kosning stjórnar og varastjórnar.
      7. Kosning tveggja endurskoðenda.
      8. Önnur mál.

11. gr.
Brot á lögum og reglum sambandsins svo og framkoma sem er andstæð almennu velsæmi eða sönnum íþróttaanda getur varðað refsingu fyrir þann sem brotlegur er.
Stjórn sambandsins er heimilt að útiloka þá menn frá skákkeppnum sambandsins en þeir geta síðan áfrýjað til næsta aðalfundar.


12. gr.
Breytingar á lögum sambandsins verða einungis gerðar á aðalfundi og þarf til þess 2/3 greiddra atkvæða.

Til baka