Nokkur afkvæmi Roða

Rúna frá Neðra-Vatnshorni (7,99), brún.

Móðir Jörp frá Neðra-Vatnshorni.

Eigandi: Sæþór Fannberg.

Rúna varð Reykjavíkurmeistari í tölti hjá Einari Ásmundssyni í 2. flokki vorið 2002. Hún fékk 8.5 fyrir allt nema skeið í kynbótadómi.

Fanney Dögg Indriðadóttir og Rúna frá Neðra-Vatnshorni voru atkvæðamiklar í ungmennaflokki Fákaflugs sumarið 2004, þar sem þær náðu efsta sæti.
...og síðan tóku þær 3. sætið í A úrslitum í tölti.

...á Fákaflugi, 2004
 

Fontur frá Feti fyrstu verðlaun (8,19)
Fontur er með 135 stig í kynbótamati fyrir fegurð í reið, og er þar í einu af toppsætunum ásamt föður sínum.

...á yfirferðar tölti 
 
Glóðar frá Reykjavík fyrstu verðlaun (8,14), rauð halastjörnóttur.

Móðir: Glóð frá Möðruvöllum.

Eigandi: Guðjón Sigurðsson.

Glóðar hefur hlotið 8,14 í kynbótadómi, þar af fimm níur, fyrir bak og lend, fótagerð, tölt, fegurð í reið og fet.

Hann var með hæstu byggingareinkunn (8,39) 5 vetra stóðhesta á landsmótinu 2004, [sjá mynd 2].
...á fljúgandi yfirferðar-tölti
 

Gnótt frá Víðidal fyrstu verðlaun, jörp.

Móðir: Jörp frá Víðidal.

Eigandi: Stefán Haraldsson í Víðidal, Skagafirði.  

...Gnótt: 9,5 fyrir hægt tölt
 

Platon frá Þorkelshóli 2 - IS2001155088

Móðir: Platína frá Djúpadal.

Eigandi: Júlíus Guðni og Kristín.

Hann er tamningu hjá Kollu í Grundarfirði (vorið 2005). Það gengur vel með hann og ef allt fer sem horfir er stefnt á sýningu á honum strax í vor.

"Þetta er um margt spennandi hestur, einstakt geðslag, ganglag eðlisgott og góð bygging. Þú sérð að ég er svolítið montinn af gripnum." (Júlíus Guðni) 

...Platon frá Þorkelshóli, ...hér á fjórða vetur.
 

Dögg frá Múla

Móðir: Gletta frá Múla IS1985255494 (ósýnd)

Eigandi: Sæþór Fannberg

Knapi: Fanney Dögg Indriðadóttir

Myndirnar eru tekna á íþróttamóti Þyts, þar sem þær unnu tölt ungmenna.

..og síðan á Gæðingamóti Þyts 24. og 25 júní, sigruðu þær B flokkinn með eink.: 8,51

Dögg frá Múla er mikill eldhugi og á eftir að láta að sér kveða í sumar...