Ég er fæddur 27. maí 1946 í Reykjavík. Ég lauk námi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1966 og stundaði síðan háskólanám bæði erlendis og í Háskóla Íslands en þaðan lauk ég BA-prófi í ensku og enskum bókmenntum. Ég kenndi fyrst í Kvennaskólanum í Reykjavík veturinn 1966-67. Ég byrjaði svo aftur haustið 1970 og var ég þar við kennslu til 2009. Ég fór að vísu tvisvar sinnum í leyfi frá kennslu. Ég fór í launalaust leyfi veturinn 1986-87 og vann þá hjá Apple-umboðinu hf. Veturinn 1992-93 fór ég svo í launað leyfi og sat í HÍ.
Skömmu eftir 1980 fékk ég mikinn áhuga á tölvum og skömmu síðar eignaðist ég mína fyrstu tölvu. Á árunum 1983-96 kenndi ég þess vegna líka tölvufræði í Kvennaskólanum í Reykjavík en núna hefur tölvuáhuginn dofnað. Ég reyni þó að fylgjast eitthvað með tölvuþróuninni.
Ég hef mikinn áhuga á hreyfingu og útiveru. Ég fer reglulega í gönguferðir, hjóla og á sumrin reyni ég að ferðast um landið.
Ég horfi nú langtum minna á sjónvarp en áður og les þeim mun meira af góðum bókum og hlusta á útvarpið.