Haust 1988
25. september 1988
Aðalfundur var haldinn 25. september hjá Sæþóri og Steinunni. Ekki gengið, Sæþór bauð fólk velkomið. Reynir snarlega kosinn fundarstjóri. Sæþór formaður beðinn um skýrslu: Hún ekki til ! Ritari beðinn um skýrslu: Hún gleymdist heima! Gjaldkeri beðinn um reikninga: Þeir ekki með! Vegmóður er gjaldþrota! Þá er það leikhúsnefndin: Nefndin og “mamma” fóru í leikhús! Þorrablótsnefnd: Stóð sig vel. Gönguleiðanefnd týnd! Skíðanefnd: Fór á skíði en hún hittist ekki! Nú kom uppástunga um formann: Sigríður Ósk einróma samþykkt og var þá klappað. Leikhúsnefnd stóð sig svo vel að hún var endurkosin: Svana og Fanney. Þorrablótsnefnd: Endurkjörin að sjálfsögðu. Önnur mál: Afmælisritið. Göngudagar: Sunnudaga kl. 13:00. Spurning hvernig halda á upp á 20 ára afmæli Vegmóðs. Tillögur eða uppástungur! : Viðey, Hveradalir, matur hér eða matur þar? Var þá kosin afmælisnefnd í hvelli; Sigríður Ósk, Ninna og Reynir. Skíðanefnd endurkosin: Inga og Skarpi Ó. Inga biður Skarphéðinn að láta sig vita þegar farið verður á skíði! Elínu Birnu boðin innganga í Vegmóð og hafði hún vita á að segja já í þetta sinn! Egill hafði aftur á móti vit á að segja nei! Fundi var nú slitið og hófust þá umræður fyrir alvöru. Ákveðið að hafa fyrstu göngu í haust á sama stað og fyrir 20 árum; Hægra megin hjá Lögbergi þið vitið! Varla þarf að taka fram að við fengum kaffi og með því hjá Steinunni og Sæþór.
Þeir sem ættir voru á fundinn: Sæþór, Steinunn, Skarphéðinn, Sæþór, Páll, Bói, Inga, Ninna, Maja, Sigga Ó., Jóndi, Dolli, Dóra, Egill, Hanna, Óskar Ingi, Fanney, Karl Óskar, Gunnar Már, Sigríður Ólafs., Reynir, Svana, Obba, Sævar, Skarpi Ó., og Elín Birna. Gleymdi ég einhverjum?
Rvík., 25. september 1988
Þorbjörg Hilbertsdóttir
2. október 1988
Já, það var gengið hægra megin hjá Lögbergi. Vetur konungur er nú farinn að minna á sig. Gengið var upp til vinstri og fór einn á toppinn (Sævar) en aðrir áleiðis upp. Það beit í kinnar þegar gengið var á móti norðangolunni. Afmælisritið var afhent og innheimta gekk vel. Enn koma hugmyndir um afmælisveizluna, maður fer að verða spenntur!
(Skarphéðinn, Sæþór, Páll, Óskar Ingi og Ásta María).
9. október 1988
Ekki gengið – bara borðað! Afmæli og afmæli og aftur afmæli! Nú skal verða eitt allsherjar afmælisár. Matarveizla í Veitingarhöllinni í sól og vetrarkul. Eftir mat voru ræðuhöld og blómaafhendingar til Obbu og Sævars fyrir afmælisritið. Sigríður Ólafsdóttir afhenti blómin og fór síðan með vísu á eftir. Ég (Obba) fylgdi ritinu úr hlaði með smá skýringum og sagði frá því að tvö eintök væru komin á Landsbókasafnið til varðveislu, þeir vildu fjögur! Félagar hressir að vanda og ekki spillti veðrið fyrir. Lóló gerði okkur þann heiður að vera með okkur þessa stund. Einnig voru: Elín Birna, Guðrún Lára, Gunnar Már, Karl Óskar, Dóra, Dolli, Egill og Dísa.
Tuttugu ára tímabil,
telst nú vera lokið,
í frosti, fönnum, birtu og yl,
áfram ótrauð höldum við.
S.F.
16. október 1988
Þetta var víst ágætis ganga skammt frá Reykjalundi. Veðrið? Það var venjulegt. Sól, rigning, slydda og svoleiðis. Kaffi og myndasýning hjá Dolla og Dóru. Ljómandi.
(Karl Óskar, Gunnar Már, Guðrún Lára, Elín Birna, Ásta María og Egill).
23. október 1988
Safnast saman skammt frá Höfðabakkabrú í ljómandi veðri. Logn og blíða eins og bezta sumarveður. Gengið yfir stífluna og allt umkring. Sáum tvö reiðhjól í Elliðaánum. Slarkfær mæting.
30. október 1988
Gengið, ekið, skokkað og hoppað upp og niður og allt um kring um hitaveitugeymana í Grafarholti. Íslenskt veður, sól, blíða, slyddurigning, regnbogi, sól, blíða og síðan nokkrir dropar. Flestir blotnuðu en þrár skvísur komu sér inn í bíl á meðan mest gekk á! Allgóð mæting.
6. nóvember 1988
Gengið í Breiðholti (Seljahverfi) eftir göngustígum í ágætu veðri. Það rigndi fyrir og eftir göngu. Ágætis ganga, en illa mætt. Kaffi hjá Fanneyju og Þráni en þá fjölgaði dálítið. Sigríður Ólafsd. afhenti Steinunni “Óskarsverðlaunin”.
13. nóvember 1988
Farið á fjöll! Heldur var hryssingslegt veðrið er farið var í grjótnámið fyrir ofan Hafravatn. Það hvessti og varð kaldara er ofar dró. Slyddurigning í bakið á leið í bílana. Mjög svo illa mætt.
27. nóvember 1988
Gengið í Öskjuhlíð innan um hunda og fólk. Grenjandi rigning en hressandi ganga. All vel var mætt.
4. desember 1988
Gengið í allar áttir frá Veðurstofunni. Veðurstofan ruglar fólk í áttum! Veður gott, frost (lítið), logn og sól, snjóföl á jörðu. Kaffi hjá mér (Obbu) í Stóragerði á eftir. Vel mætt.
11. desember 1988
Farið í Valhúsaskóla.
18. desember 1988
Já, það er þetta með Silungapoll! Alla vega gengið norska stíginn í ljómandi veðri,logn en snjór á jörðu. Kakó og piparkökur í göngu lok. Ummmmm...Nammmm.....Nammm...... Söngur hljómaði í kyrrðinni. Sumir voru óhressir yfir því. Vel mætt.
Vor 1989
15. janúar 1989
Fyrsta ganga á nýju ári. Gengið var í Fossvogskirkjugarði. Sól, snjór og mjög launhált. Ljómandi heilnæmt og gott loft. Ágætlega mætt. Kaffi og með því hjá Valgerði og Skarphéðni.
29. janúar 1989
Gengið í Laugardalnum.
5. febrúar 1989
Snjór og frost um 10 stig. Vindur ágerðist er líða tók á dag. Heldur var fáliðað í göngunni á “Sogavegi og Rauðagerði”. Kaffi var hjá Siggu í Rauðagerði og var vel mætt þar. Það má segja að varla væri hundi út sigandi er líða tók á dag.
Alltaf allt á kafi í snjó og meiri snjó. Göngur strjálar vegna ófærðar.
23. apríl 1989
Gengið frá Loftleiðahóteli í Nauthólsvík í góðu veðri, sól og smá golu. Við Fanney “fórum í hundana” rétt einu sinni!. Bara vel mætt.
Haust 1989
1. október 1989
Gengið í Breiðholti skammt frá Siggu og Jónda. Gott veður en hvasst. Ekki gengu margir. Síðan var haldið á aðalfund.
Aðalfundur 1. október hjá Siggu Ósk og Jónda. Sumir gengu aðrir ekki. Sigga Ósk skilar skýrslu og Reynir kosinn fundarstjóri. “Á Vegmóður að halda áfram eða ekki?” Halda áfram var samþykkt. Ganga á sunnudögum kl. 13:00. Nefndir voru allar endurkosnar síðan í fyrra. Stungið upp á Dolla sem formanni. Samþykkt með lófaklappi um leið og Sigga Ósk var þakkað formannsstarfið með lófaklappi. Formaður ákveður göngur viku fyrir svo hringingar eru úr sögunni. Snarpar umræður um gönguleiðir í byggð eða ekki í byggð. Nokkuð vel var mætt á aðalfundinn. Og reynir nú á hvort klúbburinn stendur undir nafni. Drukkið var kaffi, te, kakó og gos og auðvitað meðlæti. Fundi slitið
Rvík. 1. október 1989
Þorbjörg Hilbertsdóttir
8. október 1989
Gengið hjá íþróttavellinum í Mosfellsbæ.
15. október 1989
Gengið Reykjafell/Reykjaborg.
29. október 1989
Gengið í Garðabæ.
19. nóvember 1989
Gengið í Mosfellssveit
Árið 1990
18. mars 1990
Gengið hjá Engi og upp að tönkum í Grafarholti
7. október 1990
Aðalfundur Vegmóðs 1990 hjá Dolla og Dóru í Mosó. Sæmilega mætt í kaffi en fáir í göngu. Rigningarsuddi og þoka. Dolli formaður flutti enga skýrslu. Jóndi fundarstjóri reyndi að stjórna fundinum. Karl Óskar var kosinn formaður. Síðan var rætt um að leggja klúbbinn niður. Öfug röð! Var nú samþykkt – loksins - tillaga mín um að hittast einu sinni mánuði, fyrsta sunnudag hvers mánaðar, ganga og drekka kaffi á eftir. Þó verður næsta ganga 28. október hjá Svönu og Reyni í sumó ef veður leyfir. Önnur mál: Slátur og vambir. Hrútspungar og tilheyrandi. Tannúrtaka Reynis. Nefndir sitja allar áfram. Út að borða hjá “Þrem frökkum” fyrir áramót. Leikhús eftir áramót. Þorrablót í febrúar. Ýmislegt annað bar á góma. Síðan var fundi slitið. Drukkið var te, kaffi og gott með “útlitsgóðu meðlæti”. Ég fékk mér bara kaffi en ég sá og heyrði að hinir voru mjög ánægðir með meðlætið. Fleira var ekki tekið fyrir.
Í Hveragerði 7. október 1990 Þorbjörg Hilbertsdóttir
28. október 1990
Komið saman í sumarbústað Reynis og Svönu. Bústaðurinn alveg nýr. Veður var allgott og ágætis gönguveður. Vel var mætt og göngugarpar allhressir. Kaffi og með því að sjálfsögðu.
20. nóvember 1990, þriðjudagskvöld.
Vegmóðir mættu á “Þrem frökkum” á Baldursgötu. Ninna var búin að panta borð og snæddur var kvöldverður. Var það makrobiotiskt (framb!) fæði. Mér fannst maturinn góður og smekklega fram borinn. Mættir voru 16 Vegmóðir sem kýldu magana! Ninna var því miður veik og vantaði hana sárleg til að leiðbeina okkur. Skemmtileg tilbreyting að fara svona út að borða. Hlaðborðið kostaði kr. 990.- og telst það nú sanngjarnt.
2. desember 1990
Fjórar galvaskar gengu í hring Vífilsstaðarmegin í “íslensku” veðri. Hagl-rigning-sól. Svana, Ásta María, Sigga Ólafsd. og Obba. Kaffi og með því hjá Siggu og Jónda. Það fjölgaði nokkuð í kaffinu.
Árið 1991
13. janúar 1991
Kaffi hjá Fanneyju og Þráni. Bandvitlaust veður og hálka. Vel var mætt í kaffi og rabbað um heima og geima.
3. febrúar 1991
Bandvitlaust veður rétt einu sinni. Verður kaffi? Allt er að fjúka. Nú er kl. 10:30 og allt er rafmagnslaust.
Viku seinna að mig minnir var ganga og kaffi hjá Bóa og Ingu.
16. febrúar 1991
Þorrablót hjá Fanneyju og Þráni. Vel var mætt og matnum gerð góð skil. Notaleg.. Þægileg, nei..... Sigga Ólafsd. var fjarri góðu gamni því hún lá Landspítalanum eftir “fokið”. Þægileg kvöldstund í góðra vina hópi.
3. mars 1991
Gengið hjá Úlfarsfelli. Síðan var kaffi í Stóragerði 3 hjá Obbu.
7. apríl 1991
Gengið á Úlfarsfell (295 m).
5. maí 1991
Fanney, Gunnar Már, Obba og Þórólfur “big one” hittust á hól í Heiðmörk fyrir tilviljun! Fundum fjárborgina sem hlaðin er í hring. Mjög góð ganga.
2. júní 1991
Gengið í Kömbum.
Árið 1992
26. janúar 1992
Þorrablót og aðalfundur Vegmóðs var haldinn hjá Ninnu og Aðalsteini, sunnudaginn 26. janúar 1992. Komið saman klukkan 16:00. Vel mætt. Góður matur. Leikþættir. Leikendur: Elín Birna, Egill og Gunnar Már. Fundur settur. Reynir fundarstjóri, hver annar? To be or not to be var aðal umræðuefni. To be niðurstaðan. Karl Óskar heldur þrumandi skammarræðu yfir lýðnum. Algjör þögn og félagar niðurlútir. Síðan fjörugar umræður. Karli Óskari þakkað fyrir grautfúla starfið! Obba þakkar fyrir að vera kosinn formaður í þessu grautfúla félagi! Gera tilraun. Ganga á laugardögum kl 10:00 - vikulega – ótrúlegt – fram á vor. Kaffi síðasta laugardag í mánuði. Síðan kaffi og meðlæti. Ánægjulegt að hittast á ný þótt lítið hafi verið gengið á Vegmóðsárinu. Sævar og Jóndi gera gönguáætlun sem verður send í póst á okkar kostnað = ríkisins! Fanney og Ninna eiga hrós skilið fyrir framtakið
1. febrúar 1992, laugardagur kl. 10.00
Snjóhraglandi en uppstytta á milli. Hressandi innöndun á súrefni. Lögðum upp frá nýju Rafstöðinni við Elliðaár. Sexmenningarnir sem mættu voru: Sigga Ó., Jóh. Þórólfur, Obba, Sævar, Fanney og Sigga G.
8. febrúar 1992, laugardagur kl. 10:00
Jaðar – Heiðmörk. Gott veður. Auð jörð en vindur. Sævar og Jóh. Þórólfur og + ( Obba formaður veikur).
29. febrúar 1992
Gengið í Heiðmörk, Vífilsstaðarmegin.
13. desember 1992, sunndagur
Ótrúlegt en satt. Vegmóðsmenn hittast við kakódrykkju og piparkökuát í skóginum við Rauðavatn. Snjór og hvassvirði, en hvað með það. Gengið, sungið og drukkið. Sigga Ó., Ninna og Fanney eiga heiðurinn af þessari uppákomu. Þeir sem mættu: Sigga Ó., Karl Óskar, Gunnar Már, Ninna, Maja og vinkona, Dóra, Egill, Agnes, Reynir, Svana, Obba, Sævar, Bói, Inga og Sponni (hundur).
Árið 1993
10. janúar 1993
Aðalfundur 10. janúar 1993 sem átti að vera í október 1992! Fyrst var gegnið í Elliðaárdal. Gott veður en snjór yfir öllu. Mesta lægð í sögu veðurlýsinga á leiðinni til Færeyja og austurstrandar Íslands. Eytt! Eitthvað nær hún vestur með landinu það mun koma í ljós. Félagar koma hressir og kátir í Stórgerði 3 í kaffi og á aðalfund. Fyrst var drukkið og snætt. Síðan var teygjustökk Þóró sýnt í sjónvarpinu sem tekið var á myndband. Þá var Bói settur fundarstjóri í fjarveru Reynis fundarstjóra. Fundarstjóri horfði vonlitlum augum á félaga sem töluð hverjir í kapp við annan. Einhvern veginn tókst honum að koma fundarmálum farsællega í gegn. Göngur Vegmóðs verða nú einu sinni í mánuði fyrsta sunnudag í mánuði kl. 13:00 og kaffimaður/kona ræður göngustað. Hringt verði í hann og látið berast. Formaður beðinn um skýrslu, ekkert finnst í fyrstu en síðan fór ýmislegt að koma í ljós og allt það lesið sem beðið var um. Þorrablót veður hjá Svönu og co sunnudaginn 24. jan. kl. 17.00. Furðuhattar og húfur inngönguskilyrði. (Þorrablótið var haldið og mættu 30 manns). Næst verður gengið sunnudaginn 7. febrúar kl. 13:00 og kaffi hjá Fanneyju og co. Fyrsta sunnudag í mars er það Velgerður sem ræður. Í apríl er það Hanna og í maí er það Ninna í sumarbústaðnum. Þorrablótsnefnd: Hanna, Svana og Fanney. Skíðanefnd: Sævar, Inga og Skarph. Ó. Ég ætla að vona að hún sé ekki á launum! Sigríður Ósk er formaður leikhúsnefndar. Nú var komið að hápunkti. Formannskjöri. Stungið var upp á Hönnu þar sem hún var fjarverandi! Einhverjir hrópuðu Obba-Obba! Og Obba sagðist hafa verið formaður í 1 ½ ár svo hana munaði ekkert um að vera það áfram. Klapp. Formaður gerði sér allt í einu ljóst að hann var algjörlega valdalaus. Búið að skera þau störf niður eins og annað. Útkoman varð sú að þetta væri valdalaust heiðursembætti eins og forseti Íslands! Ekki var það verra. Fundi slitið. Félagar mjög glaðir og ánægðir með gönguna og samkomuna á eftir. Létt yfir fólki og bjart framundan. Bói fer til Noregs 13. jan. svo hann slapp fyrir horn og missti því ekki af ánægjulegir samverustund Vegmóðs.
E.s. Fundarstjóri benti á að félagið héti Vegmóður og pundið. Pundið hefði ekki staðið undir nafni það ætti að vera tonnið! En þetta stendur til bóta og skammstöfunin verður þá VMOP. Félagar takið það til greina að pundin hlaðast á ef étið er ótæpilega. Komum þeim málum í lag.
Þeir sem mættu: Bói (ekki ganga), Inga, Ninna, Sigga Ósk, Maja, Aðalsteinn (ekki ganga), Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Gunnar Már, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Guðrún Lára, Elín Birna, Sigríður Ólafsd., Sævar, Svana, Reynir (ekki kaffi), Ásta María, JÞG (kaffi), Þóró og Obba.
7. mars 1993
Gengið í Öskjuhlíð og í kirkjugarðinum.
20. maí 1993
Gengið í Öskjuhlíð.
Árið 1994
30. janúar 1994
Þorrablót í Stóragerði 3. Vel var mætt. Ekki bar á öðru en fólk væri ánægt. Snjór og ófærð en Vegmóðir létu það ekki á sig fá. Sigga veik og Ásta María líka svo þær mættu ekki, líka Pétur og Svana Birna. Það var leitt, fyrir þau!. Húsmóðirin varð ánægð þegar henni var þakkað framtakið. Það varð úr að ákveðið var að ganga næsta sunnudag kl. 11:00 og hittast hjá Valgerði og í kaffitár á eftir. Sem sagt ánægja með endurfundinn var efst á baugi.
E.s. Þorrablót Vegmóðs 30. janúar 1994 í Stóragerði 3. Við þökkum fyrir okkur. Sævar Hilbertsson, Elín Birna Skarphéðindóttir, Berglind Steinarsdóttir, Óskar Þorgrímsson, Þorkell Geirsson, Egill Þorkelsson, Agnes, Guðrún Lára Skarphéðinsdóttir, Valgerður G. Björnsdóttir, Ólafur H. Óskarsson, Skarphéðinn Óskarsson, Reynir G. Karlsson, Ingibjörg Björnsdóttir, María Jóna Geirsdóttir, Gunnar Már Þráinsson, Karl Óskar Þráinsson, Guðrún Fanney Óskarsdóttir, Þráinn Sigurbjörnsson, Svanfríður Guðjóndóttir, Guðjón K. Reynisson, Lilja Birna Arnórsdóttir, Helena Guðjóndóttir, Sigríður Ósk Geirsdóttir, Jón Eiríksson, Anna Óskarsdóttir, Þorgrímur, Aðalsteinn, Þóró og Þorbjörg Hilbertsdóttir.
6. febrúar 1994
Gengið frá Valgerði og Skarphéðni (í eitt skipti fyrir öll!). Gott veður, ljómandi útsýni en hálka. Já, gengið upp og niður í Öskjuhlíðinni. Kaffi og með því í Víðihlíð á eftir. All sæmilega mætt.
6. mars 1994
Gengið í Seljahverfi.
9. október 1994
Gengið í Elliðaárdal. Kaffi hjá Obbu.
6. nóvember 1994
Gengið nýju leiðina hjá flugvellinum, Nauthólsvík-Skerjafjörður. Kaffi hjá Valgerði.
4. desember 1994
Gengið í Laugardal (skautasvell). Kaffi hjá Ninnu.
Árið 1995
8. janúar 1995
Gengið á Vatnsendahæð. Kaffi hjá Fanneyju.
Þorrablót hjá Fanneyju og Þráni. Vel mætt að vanda. Góður matur. Góð skemmtun og allir ánægðir.
5. febrúar 1995
Gengið í hagli og stórsjó á Ægissíðu! Kaffi hjá Ástu Maríu.
5. mars 1995
Gengið í Elliðaárdal í sól og snjó. Kaffi hjá Bóa og Ingibjörgu.
Í apríl 1995
Gengið í Laugardal. Kaffi hjá Svönu.
Árið 1996
Þorrablót hjá Ingibjörgu og Bóa í Logalandi.
2. júní 1996
“Lokaganga 1996”!
Sunnudaginn 2. júní gengum við fjögur, Sævar, Fanney, Þráinn og ég niður hálfa Almannagjá, síðan göngustíga á Þingvöllum í góðu veðri. Síðan farið í sumarbústaðinn í Miðfellslandi. Þar voru fyrir, Sigga Ólafsd., Ninna, Aðalsteinn og Maja. Grilluðum í góða veðrinu og sögðum brandara og ræddum væntanlegar forsetakosningar. Nýbakaðar vöfflur með kaffinu. Hinn ánægjulegasti dagur = fámennt en góðmennt.
Þorbjörg Hilbertsdóttir
Á árunum frá 1996 – 2001 virðist vera að slokkna í glóðum Vegmóðs en eldurinn lifnaði aftur á árinu 2001 og hefur Vegmóður starfað að mestu síðan.
Þorbjörg Hilbertsdóttir