Haust 2002
Sunnudagur 6. október 2002
Fyrsta ganga Vegmóðs á haustönn! Hist var við rafstöðina (ljótu) inn við Elliðaár. Rigning var og rok en 12 stiga hiti. Nudd var í andlitið til að byrja með en þegar inn á milli trjánna var komið var logn og blíða. Sumir gengu stutt en aðrir gengu lengra. Svona eins og gengur!! Þetta var reglulega hressandi ganga og vítamínsprauta fyrir þá sem mættu. Eftir göngu var kaffi hjá Fanneyju og Þráni, geri ráð fyrir að Þráinn hafi tekið til höndum! Ljúffengar veitingar voru í boði og fólk ánægt yfir að vera farið að hittast á ný. Rabbað saman um eitt og annað yfir kaffi (gosi og vatni) og meðlæti!
(Þeir sem mættu: Fanney, Þráinn, Bói, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Helena, Obba, Jóhannes Þórólfur, Þórólfur jr., Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.)
Sunnudagur 20. október 2002
Komið saman við afleggjarann hægra megin áður en komið er að Lögbergi! Kalt í lofti en sól skein. Beit aðeins í kinnar og vetur minnir á sig.Hann ekki langt undan. Gengið var langt og misjafnt eins og venjulega! Alla vega gengu allir að skálanum, Lækjarbotnum. Skoðaður var hellir þar í grennd og gerði hann lukku hjá dömunum litlu sem gengu með okkur. Hressandi ganga í haustkulinu.
(Fanney, Ninna, Ásta María, Svana Birna, Kara Líf (vinkona hennar), Sævar,Jóhannes Þórólfur og Obba)
Sunnudagur 3. nóvember 2002
Hist var á bílastæðinu við Glæsibæ, vestan megin. Sumir komu gangandi að heiman! Gengið var í Laugardalnum og allt um kring. Sumir lengra en aðrir en allir fengu þó súrefni í lungun. Einmuna blíða. Hiti og smá rigning eins og á vordegi. Það eina sem minnti á haust eða vetur var fallandi lauf á leið okkar. Kaffi og meðlæti í Ljósheimum 4 hjá Obbu og Jóh.Þórólfi.
Þeir sem mættu: Fanney, Sigríður Ósk, Ásta María, Svanfríður Birna, Sólveig, Berglind, Þráinn, Sævar, Þórólfur jr., Óskar Ingi, Ásgeir Hilbert, Reynir, Rakel Anna, Anna (Hanna!), Svana, Bói, Obba og Jóhannes Þórólfur (skrifað upp í sömu röð og í gestabókinni!!). Hörður kom reyndar í lokin!
Sunnudagur 1. desember 2002
Hist var í Laugarnesinu skammt frá „Hrafni Gunnlaugssyni". Veður eins og best var á kosið. Logn en aðeins hafði gert ísingu svo varlega þurfti að stíga til jarðar. Ljómandi ganga með Viðey í „nærsýn"! Könnuðum nýjar framkvæmdir sem komu í ljós í göngunni. Á eftir var farið í kaffi og meðlæti til Reynis og Svönu á Rauðalækinn.
Þeir sem gengu: Ásta María, Svana Birna, Guðjón Karl, Arnór Örn, Svana, Reynir, Berglind, Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba, Jóh. Þórólfur, Fanney, Ninna, Sigríður Ósk og Jóndi. (Ingibjörg gekk í Fossvogi!) Í kaffi komu svo Bói, Lilja Birna og Kristján Karl.
Sunnudagur 15. desember 2002
Hópurinn hittist við Rauðavatnsskóg í rigningu og roki. Ekki beint jólalegt veðurfar þessa dagana. Gengið var með piparkökur og kakó inn í skóginn. Fórum inn í skógarlund og var þar logn og engin rigning! Fanney var svo forsjál að hún hafði komið á undan og kveikt á kerti og komið fyrir stólum og borði með kakóinu á!! Fyrirhyggja í lagi. Tekið var lagið þarna í skóginum og sungin jólalög um leið og kakóið var drukkið og piparkökurnar borðaðar. Það var aldeilis gaman að sjá allt Vegmóðsfólkið saman komið í skóginum. Og merkilegt nokk þá er hægt að villast í skóginum og villtist fólk á leið fram og til baka!!! Vel var mætt í jólagöngu Vegmóðs að þessu sinni. Það var vel. Gleðileg jól!
(Bói, Ingibjörg, Ninna, Hanna, Óskar Ingi, Rakel Anna, Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Bjarki Viðar, Linda Sóley, Dagný Fjóla barnabörn Þráins, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Reynir, Svana, Guðjón Karl, Helena, Arnór Örn, Kristján Karl og vinkona Helenu, Tinna?, Obba, Þórólfur jr.,Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.)
Vor 2003
Sunnudagur 5. janúar 2003
Gleðilegt nýtt ár. Við hittumst við Veðurstofuna í mildu veðri en dálítið hvössu. Gengum sem leið liggur inn í Fossvogskirkjugarð. Þar vitjuðum við genginna Vegmóðsfélaga,kveiktum á kertum og lögðum á leiði þeirra. Geir Jónsson hefði orðið 75 ára í dag og minntumst við þess sérstaklega. Göngukaffi var að þessu sinni í Stórholti 47 hjá Ninnu og Aðalsteini.
(Obba, Þórólfur, Reynir,Svana, Ásta María, Svana Birna, Sævar, Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Skarphéðinn, Valla, Bói, Inga, Dolli, Egill,Agnes, Sigga og Jóndi komu akandi inn í kirkjugarðinn. Í kaffinu voru svo Maja, Hanna, Ninna og Aðalsteinn.)
Sunnudagur 19. janúar 2003
Í mjög fallegu vetrarveðri hittust Vegmóðir rétt fyrir innan hliðið að hesthúsunum á Andvaravöllum. Mjög kalt var í veðri og frostið beit svo harkalega í kinnar að það voru aðeins tveir sem gengu heilan hestamannahring (Þórólfur og Sævar ) Við hin gengum um hesthúsahverfið og eiginlega beint að hesthúsi Þráins og co. Við komum að hesthúsinu um það leyti sem þeir Þráinn, Kalli og Villi voru að fara í reiðtúr. Þeir buðu okkur inn í hesthús á meðan og kaffi. Eftir reiðtúrinn þá fóru Sólveig og Berglind á hestbak hinir létu kaffið duga. Spjallað var um heima og geyma í kaffistofunni til kl. hálf eitt.
Þetta var gangan þegar hestarnir gengu.
(Ninna, Fanney, Berglind, Þórólfur jr., Sólveig, Ásgeir, Sævar, Þórólfur, Bói, Inga. Hestamenn: Þráinn, Kalli og Villi.)
Sunnudagur 2. febrúar 2003
Í dæmigerðu þorraveðri mættu Vegmóðir í Logaland 16 með nesti og nýja skó. Nestinu var skutlað inn á borðstofuborð og síðan arkað út í Þorrann. Bjart var yfir, frost og snjór. Stefanía Vilhjálmsdóttir fór í sína fyrstu göngu með Vegmóði í dag, dúðuð ofan í vagninn sinn og sofnaði brátt. Við mættum óvenju seint til göngunnar eða kl 12. Tilefnið var hið árlega þorrablót Vegmóðs. Eftir göngu var notalegt að finna ilminn af hákarli og rófustöppu enda tóku menn hraustlega til matar síns. Drukkið var kaffi á eftir og ostakökur etnar með. Obba var fjarri góðu gamni og var hennar saknað (eða voru það Guddukökurnar sem menn söknuðu???)
Þeir sem gengu: (Sævar, Þórólfur,Fanney, Karl Óskar, Svana, Villi, Hjördís og Stefanía)
Þorrablótsgestir auk göngugarpanna: ( Reynir, Bói, Inga, Ninna, Hanna, Rakel, Maja, Sigga, Dolli, Ingibjörg, Dísa, Tómas Jökull, Ásta María, Pétur, Svana Birna, Guðjón Karl, Helena, Arnór Örn, Gunnar Már, Þráinn, Aðalsteinn, Skarphéðinn, Valla)
Sunnudagur 2. mars 2003
Gengið var frá skógræktinni við Hamrahlíð í Mosfellssveit í norður og austur. Veður alveg skínandi gott. Það var eins og vor væri í lofti! Flestir gengu til baka í bílana, sumir voru í bílaleik og Fanney og Jóh. Þórólfur gengu alla leið til Hönnu og líklega fór Þráinn langleiðina! Í göngulok var þetta ljómandi kaffi og með því hjá Hönnu og Grími.
Þeir sem mættur: Svana, Reynir (í bílaleik!), Ásta María, Svana Birna, Sævar, Obba, Jóh. Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Fanney og Þráinn. Í kaffi komu svo: Skarphéðinn Ó., Valgerður og Guðrún Lára (það fylgdi með að þau hefðu gengið einhvers staðar!!), (Ninna gekk líka fram og til baka en ekki með okkur!!!), Sigga Ósk, Bói, Óskar Ingi, Villi, Hjördís, Stefanía, Hanna og Grímur.
Sunnudagur 16. mars 2003
Gengin var hin fínasta ganga í kringum Grafarvoginn þ.e.a.s. þann eina sanna sko sjóinn. Þetta er mjög skemmtilegur staður til að ganga á. Hafði aldrei komið þangað áður. (Haft eftir Fanneyju). Veður: Ekta vorveður. Megnið af Vegmóðsfélögum virtust út og suður!
Þeir félagar sem gengu voru: Fanney og Sævar.
Sunnudagur 30. mars 2003
Nú var það mæting við Nauthól og gengið í vestur. Sumir gengu, aðrir gengu lengra og nokkrir gengu lengst en allir komu þeir aftur.Veður var hálf hryssingslegt, þó nokkur vindur, snjór á jörðu og nístandi kuldi. Notalegt var að koma í kaffi í Víðihlíð 1 til Skarphéðins Ó. og Valgerðar.Var meðlætinu gerð hin bestu skil og skemmtu menn sér við gamlar hrakfallasögur af vinum og venslamönnum. Aðalsteinn er á spítala og ekki vitað hvað hrjáir hann og Sigga „mamma, amma og mákka"! er einnig á spítala og heilsast henni vel.
Þeir sem gengu: Fanney, Þráinn, Ninna, Sigga Ósk, Ingibjörg, Svana, Sævar, Obba, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Jóh. Þórólfur. Þeir sem voru bara í kaffi: Bói, Skarphéðinn Ó., Valgerður og Guðrún Lára.
Sunnudagur 13. apríl 2003
Gengið á Seltjarnarnesi skammt frá golfvellinum. Skaplegt veður en fámennt. Þeir sem mættu: Sævar og Jóh. Þórólfur einnig Ninna og Karl Óskar sem gengu líka út í Gróttu og komust hjálparlaust fram og til baka!!!!
Sunnudagur 4. maí 2003
Mannskapurinn hittist skammt frá Ingvari Helgasyni og gengið var eftir göngustíg í norður. Sól en smá kul á móti vindi en hlýrra í bakaleiðinni á móti sól. Það er eins og fyrri daginn, sumir gengu styttra en aðrir en gengu þó. Sumir gengu hér um bil alla leið upp í Stararima eins og Fanney, Ásgeir Hilbert, Linda Sóley og Bjarki Viðar.Sumum gekk svo illa að finna Stararima en allt hafðist það að lokum. Ágætis ganga í þokkalegu veðri. Kaffi og meðlæti hjá Ástu Maríu og Pétri að Stararima 57 í nýju íbúðinni þeirra. Ljómandi íbúð með frábæru útsýni yfir sundin blá!! og út í Viðey. Svana Birna var ekki heima var að keppa í knattspyrnu.
Þau sem gengu: Fanney, Þráinn, Linda Sóley, Bjarki Viðar , Dagný Fjóla, Bói, Ingibjörg, Ninna, Sigga Ósk, Valgerður, Skarphéðinn Ó., Reynir, Svana, Arnór, Sævar, Obba, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Jóh. Þórólfur.
Laugardagur 17. maí 2003
Í hring eftir hring
Ó, ó, óvissuferð Vegmóðs laugardaginn 17. maí 2003.
Ákveðið var að leggja af stað frá bílastæðinu við Glæsibæ, að vestanverðu, kl. 13.00 stundvíslega. Veður var ljómandi gott og lofaði góðu að minnsta kosti fram eftir degi. Rútan kom stundvíslega með Ingva bílstjóra frá Hópferðamiðstöðinni. Síðan var lagt af stað kl. 13.06. Ekið var sem leið lá upp í Mosfellsbæ en áður hafði Fanney boðið fólk velkomið og fengið fólk til að syngja rútusöng! Síðan var Barnarásin sett á en hún dugði skammt. Fyrsta óvissan henti okkur svo í Mosfellsbæ er rútan fór eitt "sving" í fyrsta hringtorginu. Við Fanney ein augu!!
Gekk nú allt að óskum þar til ég (Obba) lét rútuna stoppa við Tjaldanes og tilkynnti fólki að þar ætti að ganga og hefja fjöldasöng. Hanna hafði áður látið fólk vita að hún ynni þarna! Heldur fór um Hönnu (sem sagðist ekki skipta sér af þessu!!) og Ninnu (sem leiða átti fjöldasönginn) þar til í ljós kom að þetta var bara grín í óvissunni!!
Haldið var nú áfram upp að Leirvogsvatni eða Svanavatni (Bói kýs örugglega Svanavatnið!!!) Þar var farið í ratleik í leit að fjársjóði (sem átti eftir að spila mikla rullu síðar í ferðinni!!). Gerði sá leikur mikla lukku og smakkaðist vel!! Frábært framlag hjá Fanneyju og Þráni! Nú bað Ninna um orðið. Það fékk hún! Las hún úr eldgömlum! sendibréfum (frá 1948) frá Reyni, Obbu og listaverk frá Sævari (tveggja ára!). Og þótt ég segi sjálf frá voru þau ótrúlega skemmtileg frá svona ungum börnum!!!
Var nú haldið áfram að Fræðslumiðstöðinni á Hakinu og hún skoðuð ásamt innvolsinu. Þarna gat fólk einnig létt á sér! Gengu svo flestir í blíðunni niður Almannagjá og undu hag sínum vel og nutu þess að komast í samband við ættjörðina! Allt gekk þetta fyrir sig í rólegheitum í afslöppuðu umhverfi. En áfram var haldið og ekið meðfram Þingvallavatni og ákveðið að borða nestið á góðum stað við vatnið. Það gekk allt eftir og voru munnar og magar fylltir af ýmsu góðgæti og sá Fanney til þess að bílstjórinn heldi orku í þessari erfiðu ferð!!! Nú þurfti að hugsa hratt því ferðaáætlun okkar var of löng (Ingvi bílstjóri spurði mig hvort við ætluðum að vera í tvo daga!!!) Nú varð að gera nýja áætlun í hvelli. Þegar við nálguðumst Ljósafoss, datt mér í hug að fara Neðri Grafning. En nú var Ingvi bílstjóri ekki með á nótunum en beygði þó en hélt að ég meinti Nesjavallaveg!! Hafði hann ekki farið Neðri Grafning áður og opnuðust fyrir honum nýjar víddir á þeirri leið!!! Þar komum við honum á óvart!!! Nú tók Ninna við sér og rifjaði upp frásögn frá sokkabandsárunum okkar í Hraunprýði þegar Skarphéðinn Ó. var kaupamaður á Torfastöðum!! Skarphéðinn fylltist eldmóði og varð að fara út að mynda býlið en mátti þakka fyrir að komast upp í rútuna aftur!!!! Allt í góðu og gríni!!
Þegar beygja átti til hægri í átt að Selfossi tók sá við stýrið beygju til vinstri að Þrastalundi og lét í það skína að þar ætti að borða !!!! Þar kom einn hringurinn enn. Eftir hringinn var ekið í vestur í átt að Selfossi, en viti menn beygir ekki Ingvi bílstjóri í átt að Hveragerði. Þá fór nú um okkur Fanneyju! Hvert ætlaði maðurinn að fara!! Alltaf sama óvissan og einn hringur enn!!! En hvað var nú framundan? Lögreglan!!! Vegatálmar!! Hvað var í gangi!!!! Fór síðan eftirfarandi leikþáttur í gang.
Lögreglan: (við bílstjórann) Á hvaða ferð eru þið?
Bílstjóri: Ég er með fjölskyldufólk í óvissuferð.
Lögreglan: Allt í lagi. Haldið bara áfram.
Bílstjóri: Nei, komdu góði og leiktu smá syrpu hérna.
Lögreglan var ekki lengi að taka við sér og stökk upp í bílinn!
Lögreglan: Það var framið rán í Kópavogi og ég er að leita að ræningjanum.
Guðrún Fanney: Og hver er hann???
Lögreglan: Ræninginn heitir Guðrún. Er hún hér?!!!!
Obba: Hún er við hliðina á þér!!
Lögreglan: (bendir á kassann sem fjársjóðurinn var í!!!) Hvað er í þessu?
Fanney: (hálf kvíðin á svip) Fjársjóðurinn var í honum!!
Lögreglan: (Opnar kassann og sér að hann er tómur)
Og hvar er fjársjóðurinn nú?!!
Fanney: (hálf kvíðin á svip!) Við erum búin með hann!!!!!
Nú fengu „leikarar" óstöðvandi hláturkast og lögreglan fór skellihlæjandi út úr rútunni!!!
Ég benti svo fólki á að við hefðum kallað út allt lögreglulið suðurlands til að koma þeim á óvart!!! Óvissuferð!! Ég var þó alveg með á hreinu hvað var í gangi. Verið var að kanna viðhorf ökumanna til þess að færa nýja brú, yfir Ölfusá, austur fyrir Selfoss. Bráðskemmtileg viðbót í óvissuferðina.
Jæja, þá var leikþátturinn að baki svo haldið var áfram að Selfossi eða hvað? Ekki beygði hann nú rétt út úr hringnum. Mikið rétt, beygt var að Hrísmýri 6 að Fornbílasetrinu á Selfossi og nú varð að velja safnið eða fara í sund. Það gekk vel, nema bílstjórinn var svo spenntur á safninu að ég varð að ýta við honum svo hann færi nú með sundfólkið og kæmi svo aftur að skoða safnið!!! Hlýddi hann því! Þegar hann kom til baka var Sævar svo "grand" að bjóða honum á safnið en ég hafði sofnað á verðinum að borga inn fyrir hann!! En Sævar sá við því.
En "gvöð" minn góður! Við Ninna vorum svo spenntar að fara inn í jarðskjálftabæinn (sem er upp á 6,5 á Riktanum þarna og á að vera eins og verið sé beint yfir upptökunum frá Suðurlandsskjálfta 2000) að við gerðum okkur enga grein fyrir því sem beið okkar!! Jerímías, (og Sigga ætlaði með okkur en leist ekki betur en svo á aðstoð frá okkur að hún ætlaði að bíða eftir Skarphéðini!!) nema hvað þar sem við erum staddar inni í kofanum í kolsvarta myrkri kem ég auga á takka og ýti á hann. Byrja þá að heyrast ógurlegar drunur í fjarska sem fara stig magnandi með tilheyrandi hljóðum, en það var nú ekkert! Byrjar ekki kofaræksnið að hristast og hristast, líkast því að vera í hristara, gripum við hvor í aðra þarna í myrkrinu á meðan líkaminn og allir hans partar skókust upp og niður út og suður og hristust frá barka og ofaní rófubein!! Við öskrandi og æpandi eins og argandi villidýr. Ninna byrjaði að telja niður en ég hélt að apparatið væri bilað og þetta tæki aldrei enda. Ekkert töluðum við, það var ekki hægt í stöðunni, en hugsuðum þess meira í staðinn með öskrum í bland. Mikið lifandis ósköp vorum við fegnar þegar kofaskrattinn staðnæmdist!!! Og fljótar vorum við út og þökkuðum okkar sæla fyrir að Sigga fór ekki með okkur! Og hún fór ekkert. Það var ekkert vit í því!! Svo fóru Sævar, Skarphéðinn, Egill og Agnes meira að segja tvisvar og engin óhljóð úr kofanum, en Ingvi bílstjóri lét sér nægja að fara einu sinni en Jóhannes Þórólfur fór hvergi!!! Við fengum svo að vita þegar við vorum komnar út að það hefði nægt að opna bara hurðina þá stoppar "jarðskjálftinn"! (Ég var svo á ferð þarna daginn eftir með Þóró, Ásgeiri Hilbert, (hann var svo spældur fyrir að hafa ekki komist í jarðskjálftahúsið daginn áður!) og Sólveigu. Ég hafði orð á því að þeir ættu að hafa viðvörun á húsinu þar sem stæði að það ætti bara að opna hurðina!! Hann mundi eftir okkur Ninnu frá deginum áður, nema hvað!! og sagði að við hefðum verið svo snöggar inn að hann hefði ekki haft tíma til að vara okkur við!!!) Ég hlæ svo mikið þegar ég hugsa til okkar Ninnu í kofanum að ég get varla skrifað þetta!!
Eftir "bílaskoðunina og hristinginn" fórum við að sundlauginni og kíktum þar á sundfólkið. Mikið átti það gott að flatmaga svona í vatninu og börnin á fullu í rennibrautinni. Hitti ég svo Hönnu þar sem hún var að vandræðast með Rakel Önnu sem vildi ekki setjast á klósett sem hékk uppi á vegg!!!!! Nú var kominn tími til að "reka" fólk upp úr lauginni og dreif ég í því á "bláum túttum". Gekk það mjög vel og fljótlega voru allir komnir á sinn stað í rútunni.
Var svo haldið í átt að Stokkseyri og Eyrarbakka með einni frásögn frá Kaldaðarnesárunum mínum. Ég hefði getað haldið áfram frásögnum ferðina á enda en maður verður að vita sín takmörk!!! Beygt var að Stokkseyri og allir eða flestir vissir um að þar ættum að borða! Nei, ekki reyndist það rétt. Ekið var austur fyrir þorpið og snúið þar við. Síðan gefið í í átt að Eyrarbakka og þá þóttust allir vissir um að borðað yrði á Eyrarbakka í Rauða húsinu. En það heyrðust efasemdir því fréttir voru af því að nýtt veitingahús hefði verið opnað við Óseyrarbrú, Hafið bláa! Átti ef til vill að borða þar? Nei, Rauða húsið var það. "Stjórunum" létti mikið þegar ekið var þar í hlað því loft var farið að "þykkna" aftur í en breiðu bökin okkar stóðust "þyngdina"!!! Settumst við svo til borðs en efri hæðin var svo til eingöngu ætluð okkur. Þurftum við aðeins að bíða en það kom ekkert að sök. Fengu svo börnin matinn á undan okkur, en við litlu seinna. Fóru börnin svo út að leika sér og skemmtu sér hið besta með skoppibolta!!!
Nú var byrjað að rigna og rigndi mikið, en gott veður hafði verið fram að þessu. Að máltíð lokinni héldum við af stað í lokasprett ferðarinnar. Áður höfuðum við Fanney rukkað fyrir rútuna 1500 fyrir fullorðna og 1000 fyrir börn. Síðan var ekið um Óseyrarbrú og áfram um Þrengslin í borgina. Á þessum hluta leiðarinnar lét yngsta kynslóðin gamminn geisa. Börning rifu af sér brandarana hvern af öðrum og tóku lagið og Ninna spilaði undir á gítarinn. Egill sló í gegn með Einbjörn og Tvíbjörn og þá félaga. Alveg frábært hjá honum.
Þegar við nálguðumst borgina þakkaði Fanney, fyrir hönd okkar beggja, ferðalöngum ánægjulega ferð og Bói þakkaði okkur á sinn hátt sem honum einum er lagið. Þetta fína veður var svo komið aftur þegar við námum staðar á bílastæðinu við Glæsibæ eftir vel heppnaða ferð.
Þar með hefur óvissuferð Vegmóðs orðið að veruleika. Samvinna okkar Fanneyjar hefur verið snurðulaus. Hugmyndir skutu upp kolli og gengu á milli með tölvupósti þar til niðurstöður náðust. Ekki eitt einast símtal fór okkar á milli. "Þeir skárstu" verða að fara að vara sig!!! Fanney útbjó einnig mjög smekklega söngbók með myndum frá starfi Vegmóðs. Á hún hrós skilið fyrir bókina sem og allt annað í sambandi við ferðina.
Ingvi bílstjóri varð "skárri" er á ferðina leið en í upphafi var hann hálf þurrkuntulegur!! Það tók hann greinilega tíma að jafna sig eftir að hann sá tveggja daga ferðaáætlun okkar Fanneyjar!!! En hann jafnaði sig svo um munaði og tók þátt í sprellinu að fullu.
Síðast og ekki síst vil ég minnast á það hvað börnin voru góð. Þau voru kát og glöð allan tímann og ekkert "vesen" var í kringum þau. Þau virtust skemmta sér vel, en voru stundum dálítið hissa á því hvað við rötuðum illa!!!!
Ásgeir Hilbert spurði mig daginn eftir: Amma ráðið þið Fanney yfir gönguklúbbnum? Ég svaraði sem svo að við skipuleggðum göngur og svoleiðis. Þá sagði hann: Mig langar svo að hafa svona ferð á hverju ári. Það var svo gaman. Mér fannst líka gaman og vona að svo sé um flesta, því til þess var leikurinn gerður.
Ferðafélagar:
Bói, Inga, Tómas Jökull, Ninna, Sigga, Egill, Agnes, Hanna, Rakel Anna, Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Bjarki, Linda, Dagný Fjóla, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Elín Birna, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Arnór, Obba, Jóhannes Þórólfur, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.
Skrifað í maí 2003
Þorbjörg Hilbertsdóttir