Haust 2003
Sunnudagur 5. október 2003
Ákveðið var að ganga í Öskjuhlíð og hittast við Perluna. Veður ljómandi gott og súrefni streymdi í lungu Vegmóðsmanna. Gengið í suður og komið til baka úr vestri!! Fólk gekk misjafnlega langt eins og venjulega en sumir gengu rosalangt meðan aðrir gengu mjög stutt. Nokkrir gengu ekkert. Meirihlutinn gekk svo nokkuð langt!!!! Á eftir var svo kaffi með borði hlöðnu af góðgæti hjá Ninnu og Aðalsteini í Stórholtinu. Ánægja skein úr hverju andliti yfir að vera byrjuð að hittast og ganga á ný!!
Þeir sem gengu: Fanney, Ingibjörg, Villi, Hjördís, Stefanía, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Obba, Jóhannes Þórólfur, Berglind, Ásgeir Hilbert og Sólveig.
Þeir sem komu svo í kaffi fyrir utan Ninnu og Aðalstein, Sigga G., Jóndi Hanna og Bói.
Sunnudagur 19. október 2003
Við hittumst rétt við afleggjarann að Úlfarsfelli í rjómalogni og blíðskaparveðri. Þungbúið var yfir en létti til þegar á gönguna leið. Gengið var eftir hitaveitustokki í átt að Mosfellsbæ. Gengu menn mislangt eins og venjulega. Flestir gengu þó að skógrækt Mosfellsbæjar. Sátum á stokknum og röbbuðum saman eftir gönguna.
Þeir sem gengu voru: Bói, Sævar, Ninna og Fanney.
Sunnudagur 2. nóvember 2003
Hópurinn kom saman norðan megin við Rauðavatn. Heldur var kalt í veðri. Vatnið frosið og fóru nokkrir út á ísinn en aðrir gengu í kringum það. Nokkrir fengu sér meiri og minni skammt af súrefni í smágöngu við hæfi!!!!! Göngukaffið var svo hjá Ástu Maríu og Pétri í fínu íbúðinni þeirra með útsýninu út í Viðey. Það var þetta með spurninguna um „stromp" eða veg úti í Viðey!!!!!! Meðlætið var hið glæsilegasta að vanda og skemmti fólk sér við að rifja upp gamlar endurminningar og sagðar nýjar fréttir af „sumarbústaðarlóða/húsakaupum" Guðjóns og Lilju í Grímsnesinu á 5. braut !! og húsbyggingu Skarphéðins og Brynju í sveitinni, en þeirra hús nefnist Lyngholt.
Þeir sem gengu, mikið og lítið: Sævar, Jóhannes Þórólfur, Þórólfur, Berglind, Ásgeir Hilbert, Pétur, Svana Birna, Obba, Ninna, Svana, Reynir, Sigga Ósk og Dolli.
Sunnudagur 17. nóvember 2003
Mæting við gömlu rafstöðina (þá fallegri!) í Elliðaárdal. Veður ljómandi gott þegar við vorum komin á milli trjánna!!! Margir voru trítlandi í dalnum þennan morgun enda veður til þess. Það var eins og fyrri daginn að sumir gengu langt en aðrir styttra!! Ágætis ganga í hálfgerðu vorveðri í nóvember!!!
Þeir sem mættu voru: Bói, Inga, Ninna, Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Dagný, Fjóla, Sævar, Obba og Jóhannes Þórólfur.
Sunnudagur 30. nóvember 2003 ( fyrsti sunnudagur í aðventu)
Ákveðið var að hittast í Laugarnesinu skammt frá „Hrafni Gunnlaugs” og ganga í vestur. (Það fór í verra því sumir vissu ekki hvað var í vestur!!! A-ha!!) Alla vega fór hersingin af stað í vestur og allt í einu ákveðið að ganga heim til Siggu og Jónda. Það gerðu flestir en sumir snéru til baka að bílunum. Kalt var og vindur og ágjöf upp á Skúlagötu frá sjónum. Hressandi ganga en beit í kinnar. Á eftir var boðið upp á kaffi og þetta fína meðlæti hjá Siggu og Jónda í Þverholtinu.Hanna gaf svo Vegmóðsfélögum jólagjöfina í ár!
Þeir sem gengu: Fanney, Karl Óskar, Dolli, Svana, Ásta María, Svana Birna, Sævar og Obba. Reynir var í „bílaleik” og þeir sem komu svo í kaffi auk húsráðenda voru, Ninna, Aðalsteinn, Hanna, Villi, Hjördís og Stefanía. Þórólfur „old one" fór til Kanaríeyja í dag!
Sunnudagur 14. desember 2003
Frost var nokkuð og snjór á jörðu, aldrei þessu vant, er Vegmóðsfélagar hittust við Rauðavatnsskóg. Fanney og Þráinn sáu um kakóið, borðið og stólana. Sævar kom með „dobíu" af drykkjarmálum, Obba kom svo með piparkökur úr Bónus á Selfossi!! Þær, kökurnar eru búnar að fá „salibununa" úr Reykjavík á Selfoss og svo að Rauðavatni. Obba kom af „hælinu" í Hveragerði.
Gekk nú hersingin inn í „rjóðrið okkar" með „leiðarljós" sem Fanney og Þráinn höfðu komið fyrir á göngustígnum svo við villtumst nú ekki. Aldrei er að vita hverjir eru á ráfi í skóginum!! Upphófust nú jólasöngvar og gengið var í kringum jólatré, eitt af mörgum!! En viti menn hver leynist þarna á milli trjánna? Enginn annar en Stúfur! Kom hann færandi hendi með epli í poka handa góðu börnunum! Óþekku „stóru börnin" sem komin voru upp yfir fermingu fengu ekki eitt einasta epli!! Þau verða að fara að taka sig á í hegðun svo þau geti líka fengið epli frá jólasveininum!! Stúfur var hinn bezti sveinn og skapaði jólastemningu í bland við fólk, meðlæti, skóg og snjó!! Jólalegra getur það ekki orðið. Gengu svo allir ánægðir til bíla sinna en sumum var farið að verða kalt á tám og skrokki. Kvöddust svo félagar í jólaskapi eftir hressandi og ánægjulega samveru stórfjölskyldunnar með óskum um gleðileg komandi jól.
Þeir sem mættu voru: Bói, Inga, Ninna, Dolli, Sigga G., Egill, „Stúfur", Hanna, Fanney, Þráinn, Karl Óskar, Dagný Fjóla, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Reynir, Svana, Ásta María, Pétur, Svana Birna, Guðjón Karl. Lilja Birna, Helena, Arnór Örn, Kristján Karl, Obba, Þórólfur „old one", Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.
Vor 2004
Sunnudagur 4. janúar 2004
Gleðilegt ár!
Vegmóðir mættu á bílastæðið vestan við Glæsibæ eftir jólafrí og nú átti að ganga eftir hið hefðbundna át og sælu jólanna. Karl Óskar var mættur gangandi til að kaupa kaffi fyrir göngukaffið og tók bílinn hennar Ninnu og farþega hennar svo hún gæti fengið sér hálkugöngu. Obba kom við til að kveðja göngumenn og „svingaði" sér austur á „Hælið". Hún ætlaði að fá sér heldur grænfóður þar en kaffi og með því hjá Karli Óskari. Veðrið var mjög gott, hiti og logn, en bílastæðið var eitt glæragler og „skripluðu menn á skötu" með göngustafi að vopni yfir stæðið og komust loks í snjó og festu. Lúmsk hálka var á göngustígunum því að það var ísing á jörðu þó hiti væri í lofti. Allir voru fegnir að komast óbrotnir í hús á Langholtsveginum. Þar tók á móti okkur hlaðið borð af heimabökuðu brauði og smákökum í hneggjandi hesti. Gerðu menn góðgætinu góð skil og kötturinn Djanis var í sviðsljósinu.
Þeir sem gengu voru: Karl Óskar, Ninna, Sævar, Fanney, Skarphéðinn, Valla, Guðrún, Snorri, Svana Birna, Ásta María, Svana, Dolli, Agnes,Egill.
Þeir sem mættu í kaffi:
Aðalsteinn, Sigríður Ósk, Hanna, Reynir, Helena, Arnór Örn, Kristján Karl, Bói, Ingibjörg, Þórólfur, Villi, Hjördís, Stefanía, Helga, Rakel
Sunnudagur 18. janúar 2004
Hittst var við Korpuskóla sumir á gestastæði en aðrir á kennarstæðin og olli það smátruflun í fyrstu. Annars var lagt af stað stundvíslega klukkan 11 og gengið kröftuglega á móti Kára í jötunmóð og beit hann í kinnar og bein en góður útvistarfatnaður og harka Vegmóðra mættu honum af fullum krafti. Þetta var reglulega góð kraftganga. Sumir gengu langan hring en aðrir aðeins styttri hring en allir mættust samtímis við Korpuskóla rjóðir, heitir og glaðir eftir 40 mínútna hörkugöngu.
Þeir sem mættu voru:
Ásta María, Svana Birna, Pétur, Sævar, Þórólfur, Fanney og Karl Óskar.
Sunnudagur 1. febrúar 2004
Vegmóðir hittust fyrir neðan skíðalyftuna á Vatnsendahæð. Frost en stillt veður en beit í kinnar og rauð epli mynduðust á kinnum. Þegar upp á hæðina var komið sást til hestamanna, sem voru með tvo til reiðar hvor (Þráinn og Karl Óskar). Var þeim og hestunum vel fagnað. Eftir hestaklapp og spjall við feðgana var gengið áfram og komið niður á Jaðarselið og gengið að bílunum aftur. Gengið var sér til hita og komu göngumenn funheitir til „byggða"! Skundað var á þorrablót í Hléskógum (félagsheimilinu í Breiðholti!!!)nei annars.... til Fanneyjar og Þráins. Vegmóðir komu með „bland í poka" og gæddu sér á þorramat og öllu tilheyrandi. Á eftir var boðið upp á kaffi, kökur og sætindi. Var skrafað og skemmt sér fram eftir degi og brugðið á leik, veit ekki hvað hann heitir en góður er hann! Einn segir við annan að hann sé .......en sá segist alls ekki vera það og lætur leikinn ganga áfram með því að segja að næsti maður sé..... = það orð sem stendur á miða hvers og eins!!!!!! Er þetta ekki auðskilið?!!!! Ég skil þetta varla sjálf! Jæja, en alla vega skemmtu félagar sér konunglega í þessum leik og það var mergurinn málsins!! Heiðurskonan Sigríður Ólafsdóttir var þarna mætt, öllum til ánægju. Fanney á skilið hrós fyrir „íbúðarlánið" og fyrirhöfnina en þar sem hún á uppþvottavél var þetta ekki neitt, eins og hún sagði sjálf!!
Þeir sem gengu:
Fanney, Ninna, Dolli, Agnes, Egill, Svana, Reynir, Obba, Jóhannes Þórólfur, Þórólfur, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.
Ingibjörg gekk svo úr Hléskógum heim til sín í Logaland þó án vitna!!! En henni er treyst! Auk áðurnefndra Vegmóðsfélaga komu svo í blótið!
Bói, Hanna, Villi, Rakel Anna, Sigga G., Jóndi, Karl Óskar, Þráinn, Gunnar Már, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Ásta María, Pétur, Svana Birna, Guðjón Karl, Lilja Birna, Helena, Arnór Örn og Kristján Karl.
Það má segja að vel hafi verið mætt og er það ánægjulegt.
Sunnudagur 14. febrúar 2004
Þetta varð hálfgerð raðganga!!!!! Þrír mættu við Gróðrastöðina M-Ö-R-K en einn við Skógræktarstöðina í Fossvogi. Tveir af þeim fyrrnefndu gengu í vestur og að jeppa þess sem mætti við Skógræktarstöðina en sá var þá að ganga þaðan í vestur og var staddur í Öskjuhlíðinni!!!! Einn af þessum þremur „Markar" mönnum var svo á dóli þar mitt á milli!!!!! Þessir fjórir sem mættu gerðu úr þessu hina heljarinnar göngu!!!!!!! Ljómandi gott veður, logn og hlýindi. Fín ganga.
Þeir sem mættu: Obba, Karl Óskar, Jóhannes Þórólfur og Sævar.
Sunnudagur 7. mars 2004
Það er nú það! Fyrst átti að hittast við Engi. Ekkert bílastæði þar. Þá var ákveðið að hittast við afleggjarann upp að Úlfarsfelli en þegar þar að kom var svo brjálað veður að ákveðið var að fara í skógarrjóðrið undir Hamrahlíð!!! Hífandi rok og rigning stoppar ekki Vegmóðsfélaga að fá sér göngutúr!! Börnin skemmtu sér hið besta og sá minnsti „rauðklæddi" lét sem ekkert væri þótt „Kári" feykti honum til. En rennblautir og forugir voru félagar er þeir komu í Garðhús 6 í kaffi til Berglindar og Þórólfs. Þar var sunginn afmælissöngur fyrir Þóró: „Hann átti afmæli í gær ......".
Ásta María og Þóró skemmtu okkur með „ættfræðitengingu" þeirra!!!! Þau eru margföld „systkinabörn!!!!!!!!!" Ekki má gleyma „jógakennaranum" og væntanlegum nemendum hans! Var svo drukkið kaffi, gos og safi með nýbökuðu brauði ásamt öðru góðgæti.
„Er ekki örugglega nóg af gæsalöppum?"
Þeir sem gengu: Ninna, Sigga Ósk, (var í bílnum!), Bói, Ingibjörg, Fanney, Svana, Ásta María, Svana Birna, Arnór Örn, Kristján Karl, Obba, Jóhannes Þórólfur, Þóró, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Valgerður (frá Akranesi) og Sævar. Berglind og Ásgrímur voru svo í kaffinu.
Sunnudagur 21. mars 2004
Í roki og norðanátt var hist við Elliðahvamm og brekkan gengin fyrst niður og svo upp og niður ........!! Sævar gekk alveg út í Þingnes, Fanney aðeins styttra og við „hinar" enn styttra. Ekki viðraði vel til útivistar að þessu sinni, hálfgerður hrollur var í okkur og var gott að komast aftur í bílana að lokinni göngu.
Þau sem gengu: Fanney, Ninna, Ásta María, Svana Birna, Obba og Sævar.
Sunnudagur 4. apríl 2004
Þetta var sólríkur og lygn vordagur eins og þeir gerast bestir. Hittumst skammt frá Laugardalsvellinum og sumir hjá Skautahöllinni en mættumst svo á miðri leið! Félagsmenn fylltust eldmóði og bjartsýni í blíðunni og teyguðu súrefni og spjölluðu saman!! Léttleikinn sveif í loftinu og menn með skælbros allan tímann!!
Þeir sem voru í þessari bjartsýnisgöngu voru: Bói, Ingibjörg, Ninna, Fanney, Obba, Sigurlaug (vinkona), Jóhannes Þórólfur og Sævar.
Sunnudagur 18. apríl 2004
Í hífandi roki og norðanátt á Skúlagötunni!! hittumst við hjá víkingaskipinu Sólfarinu. Þar var stoppað stutt og dreifðist nú heldur betur úr hópnum. Einn hópur gekk inn á Rauðalæk til Svönu og Reynis, annar hópur gekk Laugarveginn, þriðji hópurinn kannaði svæðið umhverfis Austurbæjarskóla og gekk út á „öskustíginn" þar sem húsið úr Benjamíni dúfu fannst!!!! og fjórði hópurinn gekk svo ekki neitt!!! Allir komu þó saman í afmæliskaffi, ég veit ekki númer hvað, hjá Reyni sjötuga. Fengum þessar fínu góðgerðir að vanda og skemmtum okkur yfir gömlum hrakfallasögum úr Hraunprýði og ýmsu öðru skemmtilegu. Vorum komin með harðsperrur í magann af hlátri.
Þeir sem gengu voru: Ninna, Fanney, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Helena, Arnór Örn, Obba, Jóh. Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar. Í kaffi voru einnig: Dolli og Pétur.
Sunnudagur 2. maí 2004
Hittst var í Veiðilundi kl 13:00. Stormur og kuldi lék um okkur - ekki beint vorlegt. Ásta María vísaði síðan veginn að sumarbústað Guðjóns og Lilju. Í hávöxnum skóginum sem umlykur sumarbústaðinn var skjól og yndislegt. Við gengum um landareign þeirra undir leiðsögn Guðjóns. Þetta er stórt ævintýraland með hávöxnum trjám, djúpum dölum og brekkum. Það vantaði bara Reyni í brekkusönginn. Eftir hressilega göngu hellti Guðjón upp á könnuna og við borðuðum nestið okkar og spjölluðum. Ákveðið var að fresta óvissuferðinni þangað til í haust. Þetta var síðasta gangan á vetrinum og segjum við bara takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar.
Þeir sem mættu: Þórólfur jr., Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Ásta María, Svana Birna, Guðjón, Helena, Arnór Örn, Kristján Karl, Villi, Hjördís, Stefanía, Hanna, Ninna, Dolli, Bói, Inga, Sævar, Fanney, Karl Óskar.