2004-05

Haust 2004

Sunnudagur 10. október 2004

Við hittumst á bílastæðinu við Glæsibæ og lögðum leið okkar inn í Laugardal. Það viðraði ekki beint vel á okkur þennan fyrsta göngudag. Það rigndi mikið en logn var og milt. Göngumenn voru misvel klæddir í rigningunni. Laugardalurinn er mjög fallegur um þessar mundir í haustlitunum. Það var gengið mislangt eins og venjulega - þvottalaugarnar skoðaðar, farið inn í skrauthúsið og fiskarnir skoðaðir. Eftir göngu var farið í kaffi til Obbu og Þórólfs í Ljósheimum 4.

Þeir sem gengu voru: Sævar, Þórólfur, Obba, Sigurlaug, Fanney, Ninna, Ásta María, Svana Birna, Ásgeir Hilbert og Sólveig. Sigga Ósk kom í kaffið

Sunnudagur 24. október 2004

Gengið var út í Geldinganes í ljómandi góðu vetrarveðri. Eins og fyrri daginn gengu sumir mislangt. Sólin skein en beit aðeins í nef og kinnar. Þeir sem mættu skemmtu sér ljómandi vel í sjávarloftinu.

Þeir sem gengu: Fanney, Ninna, Sævar, Jóhannes Þórólfur, Obba, Ásgeir Hilbert og Sólveig

Sunnudagur 21. nóvember 2004

Hittumst í Furulundi í Heiðmörk. Snjór var yfir öllu en fagurt á fjöllum!  Gengum góðan hring eftir hring svo okkur hitnaði í skrokknum.  Vorum með hugann hjá Fanneyju og fannst okkur mikið vanta.

Þeir sem mættu:  Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Sævar, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba og Jóhannes Þórólfur.

Sunnudagur 5. desember 2004

Komum saman við Rauðavatnsskóg í slyddu rigningu.  Heldur var fáliðað en reynt að halda uppi smá stemmingu. Reyndum að kveikja á kerti en það tókst ekki en einn jólasöngur var sunginn meðan kakó og smákökur runnu niður í maga. Vonuðum að samkoman yrði fjölmennari og gleðilegri að ári.

Þeir sem mættu:  Sævar, Obba, Jóhannes Þórólfur, Berglind, Sólveig, Ásgeir Hilbert og vinur hans Kristján.

Sunnudagur 19. desember 2004

Hittumst við jólaþorpið í miðbæ Hafnarfjarðar.  Gengum um bæinn í kalsa veðri en logni.  Snjór yfir öllu.  Fengum okkur hressingu í Hafnarborg á meðan  beðið var eftir að húsin í jólaþorpinu yrðu opnuð. Mjög jólalegt í “firðinum” og glöddumst við yfir því að hittast þótt marga vantaði í hópinn.  Þar með lauk göngum Vegmóðs árið 2004, framhaldið ræðst ekki fyrr en Kanaríaeyjafarar (Obba og Jóh. Þórólfur) koma aftur í lok janúar 2005.

Þeir sem mættu:  Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Sævar, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba og Jóhannes Þórólfur.

Vor 2005

Sunnudagur 20. febrúar 2005

Ákveðið að hittast við gömlu rafstöðina (hvítu fallegu) í Elliðaárdal. Ánægjulegt að hittast aftur. Rigningarúði og hlýtt.  Klaki nærri farinn úr jörðu og margir á göngu. Þetta fína andlitsnudd af regnúðanum. Göngur næra líkama og sál ásamt hreinu og tæru (vonandi) loftinu! Gengið var um og yfir eina klukkustund og fólk blautt af úðanum og sumir sveittir.

Þeir sem mættu: Ninna, Sævar, Karl Óskar, Íris Ingvarsdóttir, Þóró, Berglind, Obba, Jóh. Þórólfur, Sólveig, Ásgeir Hilbert og Kristján vinur hans

Sunnudagur 6. mars 2005

Hist við Langholtsskóla í þessu líka fína veðri.  Sunginn afmælissöngur fyrir Þóró (38). Gengið um Laugardalinn fram og til baka og í hringi.  Sumir gengu í Rauðalækinn! Öndunum gefið brauð og kíkt í fiskatjörnina í Flórunni. Að göngu lokinni var þetta fína kaffi og með því hjá Svönu og Reyni.

Þau sem gengu: Karl Óskar, Íris, Ninna, Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Helena, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba og Jóh. Þórólfur. Þau sem komu í kaffið:  Bói, Guðjón Karl, Lilja Birna, Arnór og Kristján. Skarphéðinn Óskarsson heldur uppi heiðri hússins! Vegmóðs!  Fór í Vasa-gönguna í Svíþjóð!

Sævar er í Danmörku með hóp nemenda.

Sunnudagur 13. mars 2005

Mæting í Nauthólsvík og gengið í vestur.  Hryllilega kalt, frost, vindur en sól sem tókst þó ekki að hlýja okkur.  Horfðum á flugvélar taka á loft og lenda en kuldinn var svo mikill að flestir styttu gönguna og drifu sig inn í bílana!!  Þeir allra hörðustu heldu klukkutímann út!! Sævar kominn frá Danmörku á fullu skriði. Nokkuð góð mæting miðað við veður.

Þeir sem gengu: Sævar, Obba, Jóh. Þórólfur, Berglind, Þóró, Ásgeir Hilbert með rauðar kinnar, Sólveig með rauða húfu, Svana, Reynir og Ninna.

Sunnudagur 3. apríl 2005

Mætt var til Vegmóðsgöngu við Rauðavatn í fallegu aprílveðri.  Sumir gengu stutt en aðrir gengu langt eins og gerist og gengur – en allir gengu eftir getu og fóru hressir heim.

Þeir sem mættu: Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Ninna, Jóh. Þórólfur og Sævar (sem skrifaði gönguskrifin þar sem Obba var veik.)

Sunnudagur 17. apríl 2005

Grenjandi rigning og vindur var á leið okkar upp í Mosfellsbæ en stytti upp þegar við höfðum safnast saman á bílastæðinu fyrir framan Hlégarð. Gengið var langt og stutt og fóru Sævar, Jóhannes Þórófur, Berglind og Þóró alveg upp fyrir Reykjalund en við hin létum nágrenni Hlégarðs duga.

Þeir sem mættu:  Svana, Reynir, Arnór, Kristján, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Kristján (vinur ÁSH og bekkjarbróðir Arnórs!), Sævar, Jóhannes Þórólfur og Obba.

Sunnudagur 1. maí 2005

Lokaganga Vegmóðs á þessu vori.  Ákveðið var að hittast fyrir vestan Glæsibæ og ganga “mislanga” hringi. Hálfgert gluggaveður, napurt og vestan vindur.  Sólveig mætti að línu-eða hjólaskautum (man ekki hvort er) en Ásgeir Hilbert með “loftgat” á Egilsstaða-íþróttaskónum sínum! Maður varð að hafa sig allan við að halda á sér hita.  Á eftir var kaffi í Ljósheimum 4 og rætt um framtíð Vegmóðs.

Þeir sem gengu; Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba, Jóhannes Þórólfur, Ninna, Sigga Ósk, Íris og  Karl Óskar.

Í kaffi og á fundinn komu líka: Bói, Hanna, Skarphéðinn Ó., Sævar (kvefaður) og Þóró (marinn á fæti).

Fundur

Efni fundar:  Framtíð Vegmóðs.

Obba skipaði sig fundarstjóra og yfirleitt alsráðandi yfir klúbbnum og heyrðust engin mótmæli þar um!! Rætt var um framtíð Vegmóðs og kom greinilega í ljós að áhugi er fyrir því að halda honum á lífi á svipuðu róli og verið hefur. Er það bara í góðum málum. Ræddar voru ýmsar hugmyndir og skoðanaskipti urðu um málið en niðurstaða varð að halda áfram í sama dúr!  Kom fram þakklæti til okkar Fanneyjar fyrir að hafa haldið klúbbnum gangandi á síðustu árum og áratugum.  Hlýnaði “alsráðandi” um hjartarætur við þau orð. Rifjuð var upp m.a. ferðin okkar  til Hornafjarðar 1988 á 20 ára afmæli Vegmóðs og óvissuferðin okkar sem var frábær í alla staði. Hugmynd er uppi um að fara í göngu á æskuslóðir barna Ástu og Óskars Þorkelsbarna.  Hittast á Skólavörðuholti og ganga niður Frakkastíg, um Njálsgötu, upp í Austurbæjarskóla, um Leifsgötu, Þorfinnsgötu, Eiríksgötu og upp í Skólavörður aftur.  Gaman væri að öll “flóran” mæti ungir og gamlir.  Tillaga var um að fara svo á kaffihús á eftir.  Fékk þessi hugmynd mjög góðar undirtektir.  Einnig var ákveðið að halda úti heimasíðu Vegmóðs með smá endurbótum.  Undu svo Vegmóðsfélagar glaðir við sitt og héldu svo til síns heima.  “Alsráðandi” mun svo reyna að halda áfram utan um Vegmóð eins og Fanney bað mig um í októbergöngunni í fyrra.

Skráð 1. maí 2005

Þorbjörg Hilbertsdóttir “alsráðandi"

© Sævar Hilbertsson 2011Email Meshil@simnet.is