2005-06

Haust 2005

Engar göngur.

Vor 2006

Sunnudagur 5. febrúar 2006

Hópurinn hittist fyrir framan Tröllateig 20 í Mosfellsbæ, hjá Ninnu. Gengið niður í dalinn í hlýju veðri, sudda og þoku. Eins og fyrri daginn gengu sumir stutt aðrir lengra og enn aðrir lengst!! Sigga og Jóndi "skutluðust" með á nýjum "rafskutlum" og skutu okkur ref fyrir rass!! Gaman, gaman að hittast aftur. Tveir hundar slógust í hópinn, litli og stóri. Sólveig var í essinu sínu með fjörugan hund í bandi, en Gunnar Már hélt í þann stóra og þæga!! Á eftir göngu var kaffi í nýju íbúðinni hennar Ninnu og Dolla. Þar var nú ekki meðlætið skorið við nögl. Afskaplega myndalegt eins og við var að búast. Ræddu félagar um eitt og annað og m.a. það að 23. febrúar hefði höfðinginn, Óskar Á. Þorkelsson, orðið 100 ára og í tilefni þess verður boðið upp á gúllas heima hjá Ingu og Bóa þann dag. Einnig var rætt um að gaman yrði að “skanna” gönguklúbbsmyndir og brenna á diska og verður það næsta verkefni Obbu “einráðu” að gera það.

Þeir sem mættu: Ninna, Sigga G., Jóndi, Dolli, Ingibjörg, Svana, Reynir, Jóh. Þórólfur, Þóró, Sólveig, Gunnar Már, Þráinn, Obba og Sævar. Þetta var gönguhópurinn. Skarphéðinn og Valgerður voru “tröppugöngufólk” og Bói, Hanna og Rakel Anna gættu íbúðarinnar á meðan!!

Sunnudagur 19. febrúar 2006

Vegmóðsfélagar hittust við bílastæði Minjasafns Orkuveitunnar í Elliðaárdal. Sú gamla fallega rafstöð er beint á móti!! Ljómandi veður en launhált. Allir stóðu í fæturna nema Svana Birna sem datt. Meiddi sig ekkert. Það er eins og fyrri daginn, sumir eru bestir, síðan koma næst bestir og lokum bara “heldri menn” nokkuð góðir á göngu! Vaskur aðeins farinn að “hundast” sbr. “mannast” undir öruggri stjórn Karls Óskars. Ómengað súrefni fengum við á hressingargöngu þessari. Sumir gerðu teygjuæfingar í lokin! A.m.k. þrír göngumenn “fóru á sporbaug” umhverfis Elliðaárnar og komu ekki í mark!!! Vitað er að þau komust í örugga höfn. (Karl Óskar, Íris og Inga)!

Þeir sem mættu: Sævar, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Arnór Örn, Obba, Jóh. Þórólfur, Þórólfur jr., Ásgeir Hilbert, Sólveig, Karl Óskar, Íris, Bói, Inga og Ninna.

Sunnudagur 5. mars 2006

“Æskuminningaganga” um Frakkastíg, Njálsgötu, Vitastíg, “Öskustíg”, Austurbæjarskóla, Leifsgötu, sundið á bak við Þorfinnsgötu, Eiríksgötu og að bifreiðastæðinu við Iðnskólann. Sól, logn en kalt í veðri. Reynt var að segja sögu húsanna, en það gekk illa á Njálsgötunni vegna hraðferðar göngumanna!! Heldur betur var hlustað frá Vitastíg og að Eiríksgötu!!  Gammurinn var látinn geisa og rifjuð upp ýmiss minningabrot frá fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Voru göngumenn almennt sáttir í lokin, ákveðið að hafa “afturgöngu” e.t.v. í maí og fara í kaffi til Gunnars Más! Að göngu lokinni var haldið í kaffi til Svönu og Reynis Ekki var komið að tómum kofanum þar frekar venju. Frábært meðlæti og gammurinn geisaði áfram!

Þeir sem mættu voru: Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Ninna, Bói, Ingibjörg, Jóhannes Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Obba.  Helena kom í kaffi eða þannig.  Sævar tilkynnti um veikindi.

Sunnudagur 19. mars 2006

Hlégarður í Mosó?  Hvar er hann?  Jú, það grillti í hann í þokunni sem umvefur Reykjavíkursvæðið þessa dagana.  Hópurinn var fljótur að hverfa í þokunni og var því gengið eftir minni!!! Hlýtt var og logn og gengu Vegmóðir góða göngu, hver á sinn máta!  Vonandi hafa þeir sem gengu lengst ratað til baka.  Ágætis súrefnisinntaka með hreyfingu gerði gott.

Þeir sem mættu:  Sævar, Ninna, Svana, Reynir, Ásta María, lítill herramaður með henni, Svana Birna, Sólveig, Ásgeir Hilbert, Kristján vinur hans, Obba og Jóh. Þórólfur.  “Rafskutluhjónin” Sigga og Jóndi voru einnig með að þessu sinni.

Sunnudagur 9. apríl 2006

Komum saman í Laugardal við Skautahöllina í ágætis veðri. Gengum út og suður. Sumir gengu svo hratt og langt að þeir sáust aldrei. “Skógarálfar” birtust úr skógarþykkninu og aðrir hurfu í það. Mjög svo dulúðleg ganga!! Síðan gengu flestir í Ljósheima í kaffi hjá Obbu og Jóh. Þórólfi. Heilsusamlegt og “óheilsusamlegt” meðlæti með kaffinu! Létt yfir mannskapnum enda vetur senn á enda.

Þeir sem gengu: Ninna, Sigga Ósk, Sævar, Reynir, Svana, Þóró, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Obba, Jóh. Þórólfur. Karl Óskar, Íris og “voffi” gengu með okkur en voru tímabundinn og komust ekki í kaffi.

Sunnudagur 23. apríl 2006

Tveir bílar með þrjá Vegmóðsfélaga stóðu á bílastæðinu við Nauthólsvík í roki, hagli og trekki í um klukkustund á meðan Sævar og Jóh. Þórólfur gengu út í Skerjafjörð og til baka, en Obba gekk “pínkulítið” styttra!! Ninna er enn veik og lét vita að hún kæmist ekki.  En þar sem þrír koma saman þar er ... ?

Sem sagt þeir sem mættu:  Obba, Sævar og Jóh. Þórólfur

Sunnudagur 7. maí 2006

Ja, hérna þvílíkt veður. Sól, hiti og logn var þegar við söfnuðumst saman undir klingjandi Hallgrímskirkjuklukkum í síðustu göngu Vegmóðs í vetur. "Afturgangan" hófst á því að við fórum í Austurbæjarskóla undir leiðsögn Írisar. Afskaplega var gaman að rifja upp yfir hálfrar aldar gamlar minningar "sumra" úr skóla þessum. Frábært að koma í bíósalinn, kennslustofurnar, kennarastofuna og valsa um þessa löngu ganga sem hafa ekki breyst, a.m.k. ekki í minningunni. Gaman - gaman. Síðan gengið áfram niður Vitastíg og vestur Njálsgötu með "stóru stoppi" hjá Njálsgötu 29. Obba og Sævar fóru niður í portið að kíkja!! Eigandinn kom út og var hann mjög áhugasamur og spurði okkur margra spurninga um fyrri ábúendur og tilhögun í húsinu. Það var erfitt að slíta sig úr portinu enda núverandi eigandi forvitinn um fyrri hagi á Njálsgötu 29. En áfram var haldið upp og niður Frakkastíg, stoppað við Frakkastíg 12 og 19 einnig kíkt á lóðina þar sem Ölgerð Egils Skallagrímssonar var. Áfram haldið niður á Laugaveg og að Laugavegi 22. Þar sýndi Gunnar Már okkur veitingastað sem hann og fleiri eru að endurgera upp á þrjár hæðir. Barinn skal hann heita. Verður hann flottur þegar hann verður tilbúinn. Nú voru göngugarpar orðnir sveittir og þyrstir. Lóðsaði Gunnar Már okkur inn á Kaffi Oliver. Reyndar fórum við út í garð á bakvið og pöntuðum okkur veitingar. Eitthvað fannst sumum þjónustan ganga hægt svo Gunnar Már tók af skarið og tók hann niður pantanir og bar á borð af miklu öryggi og myndarskap. Snæddum við þar í brakandi sól og blíðu. Að lokum var gengið upp Klappar- og Skólavörðustíg að bílunum. Ekki er annað hægt að segja en veðurguðirnir hafi leikið við Vegmóðsfélaga þennan síðasta göngudag að sinni.

Þeir sem mættu: Bói, Inga, Ninna, Dolli, Karl Óskar, Íris, Gunnar Már, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Ásta María, Svana Birna, Obba, Jóh. Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig og Sævar.

© Sævar Hilbertsson 2011Email Meshil@simnet.is