Haust 2006
Sunnudagur 5. nóvember 2006
Það var ekki bara “Kári” heldur “Kári Kárason” sem stjórnaði veðrinu þegar Vegmóður ætlaði að hefja göngu á vetri þessum. Alls staðar brjálað veður nema hjá Ninnu í Mosó og mér (Obbu) í Ljósheimum! Vegna alls þessa var göngu sleppt en ákveðið að hittast í kaffi og með því hjá Ninnu á Tröllateigi. Frábært að hittast svona og rabba saman. Kaffidragelsi. Brjálað veður austur við Þingvallavatn hjá Svönu og Reyni, einnig hjá Þóró á Borgarbraut í Grímsnesi.
Þeir félagar sem komu í rabb og kaffi til Ninnu voru: Bói, Inga, Hanna, Villi, Hjördís, Stefanía, Svana, Ásta María, Svana Birna, Dolli, Sigga Ósk, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Jóh. Þórólfur og Obba. Ninna var að sjálfsögðu gestgjafi með pompi og pragt.
Sunnudagur 19. nóvember 2006
Snjór og ófærð fyrir flesta en fjórir Vegmóðir og hvutti létu það ekki á sig fá. Klofaðir voru skaflar og bitið á jaxlinn og “móðir” (lafmóðir) hittust við Skautahöllina í Laugardal. Súrefnisinntaka yfir meðallag og blóðið spýttist um æðar.
Hetjurnar sem mættu voru: Sævar, Jóhannes Þórólfur, Íris, Kalli og hvutti.
Sunnudagur 3. desember 2006
Fallegt vetrarveður var þegar Vegmóðsfélagar hittust á bílastæðinu við Bryggjuhverfið í Grafarvogi. Félagarnir gengu eftir sinni bestu getu og fóru mislangt eins og vanalega - en allir skiluðu þeir sér í kaffi hjá Ástu Maríu og Svönu Birnu í nýju, fallegu íbúðina í Berjarima 11 í Grafarvogi.
Þeir sem mættu voru: Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Ninna, Sævar, Jóh. Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 17. desember 2006
Engin ganga. Sigríður Ósk 50 ára. Afmæliskaffi um miðjan dag. Þar voru margir Vegmóðsfélagar mættir.
Vor 2007
Sunnudagur 7. janúar 2007
Félagar hittust við Skautahöllina í Laugardal. Snjór var yfir öllu, logn og ljómandi gott veður, en veðurspáin hjá Sigga “stormi” gerði ráð fyrir frosti og vindi. Listaverk voru út um allt í trjám og gróðri sem voru þakin snjó. Dreifðust félagar í vestur-austur-norður-suður með viðkomu við gömlu þvottalaugarnar. En þar mátti lesa að fyrstu jarðboranir við hveri á Íslandi voru gerðar í Laugardal, árið 1755!!! Þvílíkur sælureitur sem Laugardalurinn er. Á eftir var farið í kaffi og með því til Reynis og Svönu. Þar svignaði borðið af kræsingum. Rifjaðar voru upp gamlar minningar en heldur var minnið gloppótt á stundum. Skemmtum við okkur hið besta við að púsla saman löngu liðnum atburðum. Voru félagar glaðir og reifir á nýju ári.
Þeir félagar sem gengu voru: Sólveig, Þóró, Íris, Karl Óskar, Ninna, Bói, Ingibjörg, Sævar, Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna, Jóhannes Þórólfur og Obba. Guðjón Karl kom í kaffi ásamt börnum, Helenu, Arnóri Erni og Kristjáni Karli.
Sunnudagur 21. janúar 2007
Gengið var frá nýrri rafstöðinni (ljótu) í Elliðaárdal í 10 stiga frosti en logni og það sást til sólar. Eitthvað voru félagar út og suður þennan sunnudag því fáir mættu.
Hetjurnar sem mættu og gengu voru: Ninna, Jóhannes Þórólfur, Karl Óskar og Íris, já og hvutti var víst líka.
Sunnudagur 4. febrúar 2007
Vegmóðir söfnuðust saman við Víkingsheimilið í snjómuggu. Sumir gengu langt en aðrir styttra! Sást illa til manna í “muggunni”!!! Sævar átti erfitt með að kvikmynda! Hver og einn var sæll með sína göngu og súrefnisinntöku. Að lokinni göngu var skundað á þorrablót í Stjörnugrófinni í rauða sæta timburhúsið þeirra Írisar og Karls Óskars. Húsið er á afskaplega skemmtilegum stað og allt hið notalegasta. Oh, oh, ilmurinn úr eldhúsinu var svo lokkandi. Hver og einn kom með sinn þorramat en húsráðendur bættu svo ýmsu “gúmmilaði” við. Undu allir sér vel bæði uppi og niðri við samræður og létt spjall. Það sannaðist hér eins og endranær að maður er manns gaman.
Vegmóðir sem gengu: Þóró, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Reynir, Svana, Ásta María, Sævar, Villi, Hjördís, Stefanía, Obba, Jóh. Þórólfur, Þráinn, Íris gekk en fann okkur ekki! Karl Óskar var veikur heima. Í þorramatinn komu svo: Ninna, Gunnar Már, Hanna, Bói, Ingibjörg, Dolli, Jóndi, Sigga G., Skarpi Ó. og Valgerður.
Sunnudagur 18. febrúar 2007
Vegmóðir hittust sunnudaginn 18. febrúar kl. 11.00 á bílastæðinu í Nauthólsvík og gengu í vestur ... eftir fyrirmælum Maó formanns sem var víðs fjarri. Sumir gerðu þó uppreisn og gengu ekki lengra en þeir nenntu! Í Reykjavík var þá austan fimm, hiti fimm stig, hálfskýjað og rigningarúði á síðustu klukkustund.
Vegmóðir sem gengu: Þóró, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Ninna, Sævar og Jóh. Þórólfur. Ingibjörg mætti við skógræktina í Fossvogi og gekk í vestur í átt að Nauthólsvík en sá engan Vegmóðann!
Sunnudagur 4. mars 2007
Við hittumst hjá skógræktinni í Fossvogi. Gengið í vestur og austur. Fór ekki að snjóa á mannskapinn og við sem héldum að það væri að koma vor! Þeir sem gengu komu með rautt nef og rauðar kinnar í “Danska daga” til Bóa og Ingibjargar. Í Logalandi var boðið upp á ál, markíl, kavíar og danskt “leverpostej” með meiru. Konunglegar veitingar! (eða drottningarlegar!). Fylgst var með Skarphéðni Óskarssyni í Vasagöngunni í Svíþjóð og var hann enn á röltinu síðast þegar við vissum! Ljómandi góður dagur. Sævar var í Danmörku.
Þeir sem gengu: Sólveig, Ásgeir Hilbert, Jóh. Þórólfur, Obba, Karl Óskar, Íris, Ninna og Þráinn.
Í kaffið komu: Sigríður Ólafsdóttir, Sigga Geirs, Jóndi, Hanna, Rakel Anna og að sjálfsögðu voru húsráðendur Bói og Ingibjörg.
Sunnudagur 18. mars 2007
Það er nú það. Meiningin var að hittast við bílastæði sem er ekki lengur til eða búið að setja hindrun fyrir veginn svo ekki er hægt að komast þangað lengur. Alltaf verið að breyta einhverju. Jæja, við enda Stórhöfða og til vinstri fórum við og lögðum bílunum skammt frá Vogi. Snjór var yfir öllu og frekar napurt. Reynir var “þrítryggður” með að komast í gönguna, Ásta María og Sævar á gati. “Hvar er Reynir?” Svo hófst gangan en Þóró og börn komu labbandi úr Garðhúsum. En nú kom babb í bátinn, “kaldtippamaðurinn” fór úr hnjálið fyrir framan Vegmóða og fóru þeir að stumra yfir manninum. Kalla þurfti á sjúkrábíl. Skammt fyrir neðan Vog voru svo Obba, Sólveig og Ásgeir Hilbert þegar sjúkrabíllinn kom. Ekki voru “sjúkramennirnir” með það á hreinu hvar hinn “slasaði“ var og hóf þá Obba upp merkjasendingar með göngustöfunum sem þeir skildu. Komu þeir til mín (Obbu) og benti ég þeim á slasaða manninn sem húkti á steini með Reyni! Aðrir Vegmóðir héldu svo göngu sinni áfram vestur voginn. Íris og Ninna sáu fálka yfir voginum og meina ég þá alvörufálka! Var þetta hin skemmtilegasta ganga með hlátri og skellum með heilmikilli útrás fyrir “andlitskalda” Vegmóða. Þetta var sannkallað ævintýri á gönguför!
Þau sem voru svo heppin að vera í göngu þessari voru: Ásgeir Hilbert, Sólveig, Þóró, Sævar, Reynir, Ninna, Karl Óskar, Íris, Jóhannes Þórólfur og Obba. Vaskur var hinn kátasti á sínum fjórum!!
Sunnudagur 1. apríl 2007
Engin ganga. Svana Birna fermist.
Sunnudagur 15. apríl 2007
Við hittumst við bílastæðin hjá KFUM & K við Holtaveg og gengum sem leið lá inn í Laugardalinn, fram hjá húsdýragarðinum og enduðum í þvottalaugunum eins og svo oft. Krökkunum fannst þetta mjög merkilegt og hoppuðu og skoppuðu alla leiðina og fundu meira að segja dauða önd liggjandi í vatninu. Sævar og Þórólfur hurfu náttúrulega í byrjun og fóru eitthvað lengra! En veðrið var týpískt íslenskt aprílveður: í byrjun milt og skýjað, síðan kom vindur og sól og að lokum meiri vindur og haglél. Samt var bara vor í lofti og krókusar að kíkja upp á milli trjánna. Síðan bauð Obba upp á kræsingar, tertur o.fl. Skoðuðum skemmtilegar myndir.
Þeir sem gengu voru : Bói, Ingibjörg, Ninna, Sævar, Jóh. Þórólfur, Sólveig, Ásgeir Hilbert, Guðjón Karl, Arnór Örn, Kristján Karl, Svana, Reynir, Ásta María, Svana Birna og Ísar Daði.
Þeir sem komu svo í kaffi voru: Íris, Jóndi, Sigríður Ósk, Þóró, Karl Óskar og Obba að sjálfsögðu.
Sunnudagur 29. apríl 2007
Vegmóðir hittust við Perluna og hlýju veðri en dálitlum vindi. Að “síðustu” göngu lokinni var meiningin að fara í kaffiteríuna í Perlunni, en rétt fyrir göngu hringdi Valgerður í Víðihlíð í mig og bauð mannskapnum í súpu. Frábært. Varð þetta því að óvissuferðinni okkar í ár! Gerðum við súpunni góð skil ásamt “hjemmebaget bröd” sem við fengum og bragðaðist vel. Að lokum drukkum við sterkt og gott kaffi og var svo rabbað saman á léttu nótunum dágóða stund. Að lokum vil ég þakka Vegmóðum samveruna í vetur. Hittumst svo galvösk að hausti og jafnvel fyrr. Sumarkveðja til ykkar allra. Obba
Þeir sem mættu: Sævar, Jóh. Þórólfur, Ninna, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Ingibjörg, Snædís Björnsdóttir og Obba. Í Víðihlíð tóku svo Valgerður og Elín Birna á móti okkur.