Haust 2007
Sunnudagur 18. nóvember 2007
Góð mæting í köldu en sólríku veðri á bílastæðinu við Kjarvalsstaði. Gengið var og heilsað upp á Einar Ben. sem snýr bakhlutanum “ómerktur” að Miklubraut. Komu Vegmóðir svo til baka með rauðar kinnar og kuldaleg nef. Var því full ástæða til að bregða sér í kaffiteríuna á Kjarvalsstöðum og fá sér hressingu fyrir líkama og sál. Setið var og rabbað í dágóða stund og almenn ánægja meðal Vegmóðsfélaga með að hittast og ræða málin.
Þeir félagar sem mættu voru: Karl Óskar, Íris, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Ninna, Sigríður Ósk, Þóró, Berglind, Sólveig, Sævar, Jóh. Þórólfur og Obba
Sunnudagur 16. desember 2007
Vegmóðir hittust á bílastæðinu við Hafnarborg. Þegar út var komið flugum við út og suður í vatnsbaði í átt að Jólaþorpinu. Þar voru allir í fasta svefni svo við héldum inn í Fjörð að afloknu sulli í pollum og barningi við að halda sér á jörðinni! Hressingu fengum við okkur í bakaríinu og sátum þétt saman! Nú voru Jólaþorpsbúar vaknaðir svo við fukum úti í vatnsveðrinu í átt að þorpinu og höfðum þar stuttan stans. Hlýtt var og bjart ... nei það passar ekki, en 7 stiga hiti. Við hefðum átt að vera í sundfötum? Gleðileg jól.
Þessir "blaut" hressu Vegmóðsfélagar sem mættu voru: Sævar, Ninna, Íris, Karl Óskar, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Svana, Reynir og Obba.
Vor 2008
Sunnudagur 10. febrúar 2008
Vegmóðfélagar hittust við Langholtsskóla og gengu í Laugardalnum í ágætis veðri miðað við óveðrið undanfarna daga. Smá hríð skall á göngumenn en birti upp fljótlega aftur. Komu göngugarpar frísklegir og rauðir í kinnum í Ljósheima þar sem þorri var blótaður. Það er alltaf sama fjörið þegar félagar hittast og skemmta sér saman. Bói þakkaði Obbu vel unnin störf í þágu Vegmóðs! Obba gat ekki haldið aftur af tárunum og þakkaði þannig fyrir sig. (Það er í tísku að tárast í sjónvarpinu þessa dagana!). Félagar hafa alltaf um nóg að spjalla og geta hlegið út í eitt í tíma og ótíma yfir gömlu og nýjum “reynslusögum”! Meira að segja ein saklaus vatnskanna kom af stað mikilli hláturgusu! Tókst þorrablótið vel í alla staði.
Hetjurnar sem gengu voru: Sævar, Jóh. Þórólfur, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Þóró, Berglind, Íris og Karl Óskar. Þeir sem komu bara í þorrablótið voru: Sólveig, Ásgeir Hilbert, Ingibjörg, Bói, Dolli, Ninna, Sigríður Ósk og Obba.
Sunnudagur 24. febrúar 2008
Hittumst við “Ljótu Bettý” í Elliðaárdal - þeir sem sáu hana! Hinir fóru út um víðan völl! Gengið í þessu líka fallega vetrarveðri í sól, logni og nýföllnum snjó. Allir gengu eitthvað og nutu samverunnar og góða veðursins. Ljómandi ganga.
Þeir sem gengu voru: Bói, Inga, Ninna, Karl Óskar, Íris, ”Vaskur”, Þóró, Berglind, Sólveig, Sævar, Jóh. Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 9. mars 2008
Varla var hægt að fá bílastæði við sundlaugina í Laugardal vegna fjölda bíla. Í ljós kom að sundmót fór fram í Laugardalslaug. En hvað um það, þeir sem gengu í þessu líka fína veðri fóru stóran hring, í Laugardalnum, sem tók um klukkustund en tveir félagar gengu styttra! Á Rauðalæk, hjá Svönu og Reyni, fengum við svo frábærar veitingar a la Svana sem engan svíkur. Upphófust svo hressilegar samræður um líðandi stund og ýmislegt gamalt og gott. Stjórn FEB ekki EB! var gaumgæfð og tekin út á fjörugum nótum! Var hlegið og talað svo undir tók í fjöllunum! Kvöddumst við svo með brosi á vör.
Þeir félagar sem gengu: Svana, Ásta María, Sólveig, Sævar, Ninna, Reynir og Obba já og Bói og Inga gengu víst líka! Guðjón Karl, Lilja Birna, Arnór Örn, Kristján Karl og Svana Birna voru svo í kaffinu með okkur.
Sunnudagur 13. apríl 2008
Liðið hittist við Haðaland 26 - eða á bílastæði Fossvogsskóla. Það hafði slyddað um nóttina svo að snjór var á jörðinni en göngustígarnir voru nokkurn veginn auðir. Reynir og Sævar heyrðu í lóu um leið og þeir stigu út úr bílum sínum svo að von er um að hún sé komin til að kveða burt snjóinn. Obba hafði látið þau boð út ganga að við ættum að fara í austurátt en alveg eins og krakkar á mótþróaaldri gengum við fyrst í vesturátt í Fossvogsdal - og svo til baka í austurátt. Að göngu lokinni hittist Vegmóður í afmæliskaffi hjá Obbu í Ljósheimum og þar var hið mesta blómafjör!
Þeir félagar sem gengu: Svana, Reynir, Íris, Karl Óskar, (hvutti), Sævar, Ninna, Jóh. Þórólfur, Þóró, Berglind, Sólveig, Ásgeir Hilbert og svo var Obba í kaffinu með okkur!
Sunnudagur 4. maí 2008
Heldur voru Vegmóðsfélagar fáir við Nauthólsvíkina er þrammað var í austurátt í hörku vindi en hlýju veðri. Okkar var þó hagurinn og ánægjan af göngunni þótt fleiri hefðu mátt gleðjast með. Á sunnudaginn 18. maí verður svo lokaganga Vegmóðs, að þessu sinni, með kaffi hjá Ninnu. Gangan verður auglýst síðar.
Við sem þrömmuðum voru: Sævar, Jóhannes Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 18. maí 2008
Vegmóðsfélagar hittust við Tröllateig 20 í Mosfellsbæ. Skýjað var en lygnt. Gengið var eftir stígum að Álafossi og Reykjalundi og síðan til baka að Tröllateigi 20 en þar var afmæliskaffi hjá Ninnu. Skilaboð komu frá Obbu - liggjandi á spítala eftir mjaðmaaðgerð - um göngufyrirkomulagið og 40 ára afmæli klúbbsins næsta haust. Bent var á að í fjarveru Obbu væri lag að velta henni úr formennskunni en engum hugnaðist það ...
Þeir félagar sem gengu: Svana, Reynir, Ásta María, Íris, Karl Óskar, Sævar og Jóh. Þórólfur. Í kaffinu voru Ninna, Sigríður Ósk, Jóndi, Dolli, Agnes, Hanna, Hjördís, Stefanía, Alexander, Ingibjörg, Bói, Skarphéðinn og Valgerður.