Haust 2008
Sunnudagur 19. október 2008
Vegmóður er 40 ára. Starf hófst haustið 1968 og nú er 2008!
Fyrsta ganga Vegmóðs haustið 2008. Gengið var frá Glæsibæ á göngustíg í austur fram hjá bensínstöðinni og áfram. Sumir gengu langt, langt en aðrir stutt, eins og gengur. Veður var ljómandi gott, stilla en kul og klaki á pollum. Að lokinni göngu var drukkið kaffi og með því í Ljósheimum hjá Obbu og Jóh. Þórólfi. Mikil kátína ríkti á meðal félagsmanna Vegmóðs þegar rifjuð voru upp skemmtileg atvik gömul og ný. Bói var búin að reikna það út að göngur væru orðnar um eitt þúsund þessi 40 ár. Frábært. Kaffidragelsi fór fram og “seldust miðar upp”. Ein... reyndar tvær breytingar verða í sambandi við göngur og kaffi.
Fyrri: Nú munum við hittast einu sinni í mánuði og verður þá ganga og kaffi á eftir. Þeir sem hafa kaffið ráða hvaða sunnudag í mánuðinum verður gengið. Haft verður samband við Obbu og hún sendir út tilkynningu um göngu og kaffi!! Verði breyting á “kaffistað” þarf að láta Obbu vita, því gönguleið miðast við “kaffistað”.
Síðari: Laugardaginn 27. desember nk. hefði Ásta Þorkelsdóttir orðið 100 ára. Af því tilefni bjóða Svana og Reynir okkur í kaffi á Rauðalæk, á eftir göngu sem hefst kl. 11:00, laugardaginn (takið eftir það er laugardagur) 27. desember 2008. Svana og Reynir eru sem sagt með desemberkaffið !! Þetta verður ítrekað í desember og gönguleið kynnt.
Bói þakkaði “aðalritar flokksins” (Obbu) fyrir vel unnin einræðisstörf í þágu Vegmóðs á undanförnum árum og áratugum. Einnig útnefni hann Obbu sem fyrstu Vegmóður klúbbsins. Útnefning verður á 40 ára fresti!! Hljóð kom úr horni að Sólveig væri þá líkleg til að hreppa það hnoss.
Obba þakkaði lofið en vill bæta hér við að fleiri hafa hjálpað til á vegferð Vegmóðs. Það er erfitt að nefna nöfn en aðstoð hef ég fengið um margt t.d. í sambandi við myndir og tölvumál svo eitthvað sé nefnt. Ánægjan felst í því að hittast og skemmta sér og treysta fjölskylduböndin.
Að lokum kom ljómandi skemmtileg uppástunga frá Ástu Maríu um að Vegmóðir ættu að hittast í Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni og halda upp á 40 ára afmælið þar með því að fá sér kaffisopa og með því og helst sem fyrst. Hvar annars staðar en í fjöllunum fyrir þetta útiverufólk?
Þeir (félagar!) sem gengur voru: Sólveig, Þóró, Ninna, Svana, Reynir, Ásta María, Bói, Inga, Sævar, Jóh. Þórólfur og Obba. Skarphéðinn Ó. kom á, ég veit ekki hvað ég á að kalla það, “skíðahjólum”, hef bara aldrei séð slíkt áður! Valgerður kom svo síðar í kaffi.
Sunnudagur 2. nóvember 2008
Afmælisveisla - Vegmóður 40 ára
Ákveðið var að halda upp á afmælið í Litlu kaffistofunni í Svínahrauni eins og Ásta María stakk upp á í síðustu göngu. Skarphéðinn J. lagði inn orð fyrir okkur og vorum við velkomin. Vorum við flest komin á staðinn um klukkan 12 á hádegi. Þar voru tveir göngugarpar fyrir, Svana og Reynir, sem höfðu náð sér í súrefni í nágrenninu, Sævar kom litlu síðar en hann gekk á Selfjall og skömmu síðar komu svo göngugarparnir Kalli og Íris. Mæting í göngu var frjáls dag þennan. Þegar við vorum búin að fara í borða- og stólaleik fórum við að fá okkur í gogginn. Við gæddum okkur á ljúffengum veitingum og töluðum í kapp við hvert annað og tókum hláturgusur að hætti Vegmóðsmanna! Sungum við svo afmælissöng fyrir Vegmóð 40 ára og klöppuðum honum lof í lófa! Birtist nú Stefán (Litlu kaffistofueigandi) með tvo bakka af súkkulaði í boðið hússins! Frábært hjá honum. Það fór mjög vel um okkur á þessum notalega stað og heyrðist hljóð úr horni að þetta þyrftum við að framkvæma oftar. Veður var ágætt, hlýtt en smá rigning sem kom ekki að sök inn í hlýrri kaffistofunni og hlýja viðmótinu sem við fengum þar. Það sannast sem fyrr að maður er manns gaman!
Afmælisgestir voru: Svana Birna, Ásta María, Hanna, Íris, Kalli, Valgerður, Skarphéðinn Ó., Ninna, Dolli, Sigga Ósk, Sævar, Obba, Jóhannes Þórólfur, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Berglind, Þóró, Svana, Reynir, Bói og Inga.
Laugardagur 27. desember 2008
Í dag eru 100 ár frá fæðingu Ástu Þorkelsdóttur. Sævar, Jóhannes Þórólfur og Obba fóru í Fossvogskirkjugarð að leiðum Ástu, Hilberts og Ásgeirs Guðmundssonar, sem hefði orðið 50 ára í ágúst á þessu ári. Þar kveiktum þau á þremur kertum í morgunsárið. Var svo haldið á Rauðalæk til Svönu og Reynis og komið þar um kl. 11:00 og gengu þeir sem ganga vildu en aðrir leituðu húsaskjóls! Veður var gott, 8 stiga hiti og smá vindur. Um klukkan 12:00 var svo boðið upp á “bröns a la Svana” í tilefni dagsins. Afskaplega girnilegt og gott. Var síðan glaðst yfir gömlum og nýjum myndum og rifjuð upp ýmiss prakkarastrik frá Njálsgötu-Hringbrautar árunum!! Voru allir í jólaskapi og kátir yfir samverunni. Svana, Reynir, Ásta María og Svana Birna halda svo til London á morgun og verða hjá Guðjóni Karli, Lilju og börnum fram yfir áramót. Báðu allir í Vegmóði að heilsa Londonarfjölskyldunni! Kvöddu svo Vegmóðir saddir og sælir, en það voru: Sólveig, Ásgeir Hilbert, Berglind, Þórólfur, Bói, Inga, Ninna, Sigga Ósk, Dolli, Sævar, Hanna, Karl Óskar, Íris, Jóhannes Þórólfur, Obba, Ásta María, Svana Birna. Húsráðendur og gestgjafar voru svo Svana og Reynir.
Vor 2009
Laugardagur 25. janúar 2009
Vegmóðir komu saman fyrir ofan fjöruna að Geldinganesi. Veður ljómandi gott, sól, logn en kul í skugganum. Útsýni frábært til allra átta. Esjan “spókaði” sig í sólinni með hvítan hjúp. Súrefnið teygað í botn. Hressir og kátir komu göngumenn í kaffi til Ástu Maríu og voru þar sagðar “sannar sögur” yfir frábæru meðlæti og hlýlegu viðmóti.
Göngumenn: Sólveig, Berglind, Þóró, Sævar, Svana, Reynir, Ninna, Ásta María, Obba, Kalli, Íris og hvutti. Bói og Inga komu í kaffið.
E.S.
Vert er að benda á að sunnudaginn 17. maí nk. er áætlað að þiggja boð Þráins og fara í Hróarsholt og ganga þar, klifra og klappa hestum!! Veitingar að því loknu. Ferðin verður auglýst síðar og nánar sagt frá stað og tíma!
Sunnudagur 22. febrúar 2009
Vegmóðir hittust á bílastæðinu við Hafnarfjarðarkirkju. Veður eins og best var á kosið. Stafa logn og eins stigs hiti. Fuglarnir léku sér á spegilsléttum sjónum og mannskapurinn gekk meðfram sjónum í vesturátt að hálftómum blokkunum sem standa þarna eins og draugaborgir á þessum fallega stað. Það var eins og fyrri daginn sumir gengu langt, lengra, lengst! Allir komu glaðir og ánægðir í kaffi til Berglindar og Þórólfs í Bæjarholtið að göngu lokinni, þar sem beið okkar hlaðið borð af kræsingum sem flestar voru heimalagaðar. Við vorum meira að segja svo glöð að við tókum lagið “Allir krakkar” undir gítarundirleik Ninnu!
Þeir sem gengu voru: Bói, Inga, Kalli, Íris, Sævar, Ninna, Ásta María, Svana, Reynir, Obba, Jóhannes Þórólfur og Vaskur trítlaði með. Ásgeir Hilbert og Sólveig voru svo í kaffinu.
Sunnudagur 15. mars 2009
Hittumst í hríðarbyl við Fossvogsskóla. Félagar komu úr öllum áttum og gengu í vestur! Stytti upp er gangan hófst. Það er sama rullan stutt-lengra-lengst fóru félagar. Allir komust þó í hús til Ingu og Bóa þar sem beið þeirra hlaðborð eftir göngu. Eftir göngukaffið var afmælisveisla og þá mátti koma með tertu á borðið. Nokkrir “fiskar” áttu og eiga afmæli framundan á þessu ári og var sunginn afmælissöngur þeim til heiðurs. Sigga Ólafs var mætt á staðinn og var gaman að hitta hana. Voru félagar kátir og glaðir eftir gómsætt meðlæti og skemmtilega samveru.
Þeir sem gengu voru: Ninna, (45 mín.), Sólveig, Reynir, Svana, Ásta María, Sævar, Jóhannes Þórólfur, Obba, Þráinn, Íris og Karl Óskar, já, og tveir hundar. Í kaffinu voru svo Sigga Ósk, Hanna og að sjálfsögðu húsráðendur Inga og Bói.
Sunnudagur 19. apríl 2009
Gengið og fokið á Klambratúni. Maður lagðist nú bara upp í vindinn og fauk til baka. Ekki vantaði nú samt hlýindin. Sá á leiðinni að hiti var 11° en allt fauk sem fokið gat. Á eftir fukum við í Þverholtið í algjört veislukaffi til Sævars. Voru Vegmóðir kátir og glaðir að vanda.
Þeir sem “fuku” voru: Bói, Inga, Sólveig, Ásgeir Hilbert, Berglind, Svana, Obba, Jóhannes Þórólfur, Íris, Kalli og Sævar fauk fljótlega heim til sín! Auk þess komu í kaffi: Reynir, Ásta María, Ninna, Dolli og Sigga Ósk.
Sunnudagur 17. maí 2009
Lokaganga Vegmóðs í Flóanum hjá Þráni. Sumir fóru í “útsýnisferð” í leiðinni. Allir skiluðu sér í hús að lokum. Veðurguðirnir okkur hliðhollir, sól og blíða. Það var eins og venjulega, sumir gengu langt, aðrir stutt og enn aðrir bara inn í húsið. Nágrennið skoðað í fylgd Þráins sem gaf hestunum brauð í leiðinni. Frábær húsakynni og útsýni eftir því. Að göngu lokinni bauð Þráinn upp á veitingar sem voru vel þegnar. Yngsti félagsmaðurinn á staðnum, Valgerður Elín, verður eins árs í september en sá elsti, Sigríður Ólafsdóttir verður 97 ára einnig í september. Svona er nú Vegmóður í hnotskurn.
Þeir sem komu í lokagönguna eru: Jónas Hilbert, Þórólfur Hilbert, Berglind, Sólveig, Ninna, Sigga Ósk, Jóndi, Bói, Ingibjörg, Hanna, Þráinn, Karl Óskar, Íris, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Guðrún Lára, Snorri, Valgerður Elín, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Obba, Jóhannes Þórólfur, Hörður og Sævar. Jú og tveir hundar, litli og stóri!