Haust 2009
Sunnudagur 4. október 2009
Gengið úr Blesugróf inn í Trjáræktina í Kópavogi og trjátegundirnar teknar út! Veður ljómandi gott, sól, logn og smá kul. Hressandi útivera í góðum félagsskap. Á eftir voru kræsingar á borðum hjá Kalla og Írisi. Vetrarstarfið fer ljómandi vel af stað.
Þeir sem komu voru: Kalli, Íris, Sævar (kom hjólandi), Jóhannes Þórólfur, Obba, Ninna, Bói, Inga, Svana, Reynir, Ásta María, Sigga Ósk, Þóró og Sólveig.
Sunnudagur 1. nóvember 2009
Félagar hittust á bílastæðinu við Glæsibæ í þessu líka ljómandi veðri en rosalegri hálku. Teknir voru smá “Bambataktar” en enginn fór á hausinn. Sumir gengu stutt, aðrir styttra og nokkrir styst. Jú, reyndar gengu nokkrir langt og héldu uppi heiðri “hússins”! Kaffi á eftir hjá Obbu í Ljósheimum. Slegið á létta strengi og Pollýönnu þankagangurinn sveif yfir vötnum. Komumst þó að því að við skiljum hvorki upp né niður í lánamálum Íslendinga! Upplýsingar frá viðkomandi aðilum af skornum skammti og fólk verður að geta í eyðurnar! Var þessu svo öllu slegið upp í grín, hvað annað? Kúlulán og barnalán, það er nú það!
Göngumenn: Ásta María, Reynir, Sævar, Svana, Karl Óskar, Berglind, Ninna, Sigga Ósk, Dolli, Sólveig, Þóró, Jóhannes Þórólfur og Obba (fram og til baka fyrir framan blokkina, ekki upp og niður brekkuna!)
Sunnudagur 13. desember 2009
Vegmóðir hittust við Fossvogsskóla í blíðu veðri ca 10° hiti og smá úði. Gott nudd á andlitið og súrefnið dregið inn í stórum skömmtum. Voru allir glaðir og ánægðir með “sína” göngu hvort sem hún var löng eða stutt. Á eftir var boðið upp á frábærar veitingar, sannkallað jólahlaðborð, hjá Ingu og Bóa. Það er alltaf jafn gaman að tala saman um allt og ekkert að ógleymdri ánægjunni af samverunni við fólkið sitt í notalegu umhverfi húsráðenda.
Þeir sem gengu voru: Sævar, Jóhannes Þórólfur, Obba, Ásta María, Guðjón Karl, Kristján Karl, Svana og Reynir. Þeir sem komu í góðgerðirnar voru: Skarphéðinn Ó., Valgerður, Guðrún Lára, Valgerður Elín, Hanna, Rakel Anna og að sjálfsögðu húsráðendur Bói og Inga.
Vor 2010
Sunnudagur 17. janúar 2010
Hópurinn hittist við Laugardalslaugina. Launhált var á götum og jafnvel gangstéttum. Veður gott, logn og blíða. Gengið var í allar áttir, þar sannaðist á okkur Íslendingseðlið að öll erum “kóngar” hvert fyrir sig! Öll komumst við í hús hjá Svönu og Reyni og þáðum ljúffengar veitingar og skemmtum okkur saman. Þarna sannaðist að “maður er manns gaman”.
Þeir sem mættu voru: Svana, Reynir, Ásta María, Ninna, Bói, Inga, Karl Óskar, Íris, Þóró, Berglind, Jóh. Þórólfur, Sævar og Obba. Hvar var Sólveig?!
Sunnudagur 7. febrúar 2010
Þorrablót og ganga í Grafarvogi. Það er þessi venjulega “mislanga ganga” sem gengin var. Á eftir snæddum við þorramat heima hjá Ástu Maríu og Svönu Birnu. Við “ungu” gamlingjarnir förum alltaf á flug er við minnumst gömlu daganna og getum hlegið á okkur gat af sömu sögunum aftur og aftur! Je minn góður. Ásta María skellti á okkur “bókmenntagetraun” sem var ekki mikið mál fyrir okkur þegar allir lögðu í púkkið! Á eftir drukkum við kaffi og skelltum í okkur konfektmolum sem fóru vel í maga. Reglulega notaleg og skemmtilegt samverustund.
Göngufólk: Bói, Inga, Reynir, Svana, Sævar, Ninna, Dolli, Ásta María, Sólveig, Þóró, Berglind, Jóhannes Þórólfur og Obba. Svana Birna var svo í þorramatnum.
Sunnudagur 7. mars 2010
Gengið frá Bæjarholti í norður og niður og út og suður á Hvaleyrarholti. Snjómugga og slabb. Kaffi og heimabakað meðlæti, m.a. eftir Sólveigu, hjá Þóró og Berglindi. Nammi, namm. Spáð m.a. í það hvar vegamót Vesturlands- og Suðurlandsvegar voru út úr Reykjavík um árið 1950. Hvar voru þau? Yngra fólkið horfði á okkur í eldri kantinum eins og við hefðum verið uppi á steinöld! Alltaf jafn gaman saman.
Göngugarpar: Sólveig, Berglind, Þóró, Sævar, Reynir, Svana, Ásta María, Karl Óskar, Íris og dóttursonur hennar Hannes Rúnarsson. Obba „kvefhaus“ var í kaffinu og Ásgeir Hilbert líka.
Sunnudagur 11. apríl 2010
Sól, rigning, hellirigning og haglél voru í boði í göngu þessa dags. Gengið frá Kjarvalsstöðum og mislangir hringir gengnir. Nokkrir komu sér í skjól á Kjarvalsstöðum áður en haldið var í göngukaffi hjá Sævari í Þverholtinu. Alltaf er jafn hressandi að hittast og rifja upp gamalt og gott. Gaman að sjá myndirnar frá því í gamla daga í fartölvunni hans Sævars. Kaffi og meðlæti voru gerð góð skil enda úrval mikið og gott.
Þeir sem gengu voru: Sævar, Bói, Inga, Berglind, Þóró, Sólveig, Karl Óskar, Hannes, Ásta María og Obba. Í kaffi komu: Ninna, Sigríður Ósk og Jóhannes Þórólfur.
E.s. Nú er eftir að vita hvort Lilju Birnu hefur tekist að fá Svönu og Reyni í Vegmóðsgöngu í London.
Sunnudagur 16. maí 2010
Lokaganga Vegmóðs í „sumó“ í Miðfellslandi. Í tilefni 80 ára afmælis Ninnu 19. maí nk. var blásið til heljarinnar veislu. Slegið hafði verið upp veislutjaldi og voru bornar fram glæsilegar veitingar. Skemmti fólk sér hið besta við að rifja upp gamlar minningar og ræða um daginn og veginn. Aldursforseti Vegmóðs Sigríður I. Ólafsdóttir 97 ára var mætt til veislunnar til að fagna 80 ára afmæli dóttur sinnar hennar Ninnu. Ótrúlegt en satt! Þetta verður eftirminnilegur dagur.
Auk Ninnu og Sigríðar voru þessir Vegmóðsfélagar mættir: Bói, Sigga Ósk, Dolli, Hanna, Villi, Hjördís, Stefanía, Alexander, Rakel Anna, Kalli, Íris, Gunnar, Þráinn, Skarpi Ó., Valgerður, Guðrún Lára, Snorri, Valgerður Elín, Elín Birna, Pálmi Viðar, Reynir, Svana, Ásta María, Svana Birna, Sævar, Obba, Jóh. Þórólfur, Þóró, Sólveig, Berglind og Steinar (pabbi Berglindar)