Haust 2010
Sunnudagur 10. október 2010
10 10 10 = Happadagur. Við veljum ekki neinn venjulegan dag til að byrja haustgöngu árið 2010. Gengu Vegmóðir frá sundlauginni í Laugardal, út og suður, í rjómalogni og sól. Gengið var mislangt eða stutt eftir mati hvers og eins, en allir ánægði með sitt. Að lokinni göngu var farið í þessa fínu súpu til Svönu og Reynis á Rauðalækinn. Voru félagar glaðir og kátir með endurfundinn og voru ekki orðlausir frekar en fyrri daginn. Bara gaman!
Þeir sem mættu: Svana, Reynir, Ásta María, Bói, Inga, Ninna, Kalli, Íris, Hannes, Þráinn, Þóró (kvefhaus og gekk ekki), Sólveig, Sævar, Jóh. Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 7. nóvember 2010
Vegmóðir hittust fyrir utan Berjarima hjá Ástu Maríu í grenjandi rigningu og roki, ekki var laust við hálku. Ekki hefti það för galvaskra Vegmóða sem settu hausinn í vindinn og þrömmuðu út í óvissuna. Ekki leist okkur Ninnu á aðstæður á „jörðinni“ þar sem glitti í klakasvell. Varð á vegi okkr ágæt hálkulausa brekka að bílskúr blokkarinnar og þar hófum við göngu „upp og niður brekkuna“ samtals 10 umferðir = 10 upp og 10 niður! Kom þar að okkur einn íbúi og spurði hvort við værum á morgungöngu, sem við svöruðum með heljarinnar hlátri. Var síðan gengið til kaffiveislu a la Ásta María. Skemmtum við okkur „as usual“ (á góðri íslensku) og æfðum hlátur- og kjálkavöðvana út í eitt. Alltaf jafn gaman að hittast.
Mættir voru: Ásta María, Svana Birna, Reynir, Svana, Bói, Inga, Ninna, Þóró, Sólveig, Sævar, Jóhannes Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 12. desember 2010
Vegmóðir mættu í Bæjarholtið um klukkan 11.00. Veður gott, logn, hlýtt og blíða. Fór hver á sínum hraða og skiluðu allir sé í hús. Sólveig var búin að skreyta húsið hátt og lágt fyrir jólin, algjört „jólaland“. Var margt fallegt að skoða og dást að. Þóró var „á bak við eldavélina“ en Berglind einbeitti sér að náminu, uppi á lofti! Meðlæti frábært og mikið fjör og mikið gaman.
Þeir sem komu, voru: Ninna, Sigga Ósk, Reynir, Svana, Ásta María, Sævar, Kalli, Íris, Hannes, Bói, Inga, Obba og Jóhannes Þórólfur einnig var heimilisfólkið á staðnum, Berglind, Þóró, Ásgeir Hilbert og Sólveig, Hörður mætti líka á staðinn.
Vor 2011
Sunnudagur 16. janúar 2011
Vegmóðir hittust „hægra megin fyrir neðan Árbæjarsafn áður en komið er að brúnni Breiðholtsmegin“! Augljóst! Ljómandi veður en ... rosalega hálka. Göngumenn stóðu þó í fæturna enda varlega farið. Öðru máli gegndi um bílana sem runnu í „frjálsu falli“ niður að húsi Írisar og Kalla. Je, minn! Göngumenn skiluðu sér í hús og nutu frábærra veitinga og notalegs viðmóts hjá Írisi og Kalla.
Göngumenn: Ninna, Sigga Ósk, Kalli, Sævar, Sólveig, Þóró, Ásta María, Svana, Reynir, Jóhannes Þórólfur og Obba. Ingibjörg gekk Vegmóðsgöngu norðan megin! Íris var heima að undirbúa kaffið ástamt Rún, dóttur sinni. Bói og Hannes voru einnig á staðnum.
Sunnudagur 6. febrúar 2011
Vegmóðir hittust á bílastæðinu við Glæsibæ. Mikill snjór var á jörðu en sumir Vegmóðir létu það ekki á sig fá og brugðu sér í göngu. Á eftir var þorri blótaður í Ljósheimum og þorramatnum gerð góð skil. Alltaf gaman að hittast og spjalla.
Þeir sem mættu: Svana, Reynir, Ásta María, Sævar, Bói, Ninna, Dolli, Sigga Ósk, Karl Óskar, Íris, Hannes, Þóró, Jóh. Þórólfur og Obba.
Sunnudagur 13. mars 2011
Við hittumst í Logalandinu og hafði hver sína hentisemi með göngu, lengd og hraða! Snjór var á jörðu en logn og gott veður. Vegmóðir skiluðu sér svo allir í hús til Ingu og Bóa. Mikið var spjallað og hlegið eins og venjulega þegar „göngugarparnir“ hittast. Ekki þurfti nema já og nei til að hlegið væri í botn og aðalatriðið er að muna að segja já, því má ekki gleyma nei, nei, nei☺ Við sjáum svo til hvernig fór fyrir já og nei í næsta mánuði! Meðlætið var staðgott a la Bói og nýbökuð gómsæt gulrótarkaka a la Inga! Gott fyrir líkama og sál.
Mættir voru: Ásta María, Svana, Reynir, Sævar, Ninna, Íris, Kalli, Hannes, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Hörður, Obba, Jóhannes Þórólfur og heimilisfólkið Inga og Bói voru að sjálfsögðu á staðnum.
Sunnudagur 3. apríl 2011
Hópurinn hittist við Kjarvalsstaði í sól og góðu veðri. Aðeins hafði snjóað um nóttina en sólin var búin að bræða svo til allan snjóinn. Félagar gengu þessa mislöngu eða misstuttu göngu en Þóró gekk lang langa því hann trítlaði úr Hafnarfirði. Skarphéðinn, Jónas Hilbert og Þorbjörg komu okkur heldur betur á óvart með komu sinni. Gaman að fá kveðju frá Guðjóni Karli í London. Takk og kær kveðja til baka. Hersingin fór síðan í kaffi í Þverholtið til Sævars sem tók á móti okkur með svignandi borði af kræsingum. Það er alltaf jafn hressandi að hittast, gantast og hlæja nú voru ekki „alltaf sömu brandararnir“ því nokkrir nýir höfðu bæst í hópinn! Alla vega tók Sævar vel og hressilega á móti okkur eins og hans er vaninn. Kærar þakkir.
Vegmóðir sem mættu: Skarphéðinn J., Jónas Hilbert, Þorbjörg S., Þóró, Ninna, Sigga Ósk, Svana, Reynir, Ásta María, Kalli, Íris, Hannes, Bói, Inga, Jóh. Þórólfur, Obba og auðvitað Sævar!
Sunnudagur 15. maí 2011
Vorferð Vegmóðs var farin í Lyngholt til Brynju, Skarphéðins og barna. Jónas Hilbert og Þorbjörg stóðu í dyrum og tóku á móti komumönnum. Upp úr klukkan 13:00 lagði fótfrái hópurinn í göngu undir leiðsögn Jónasar Hilberts og gengu garparnir í klukkustund. Við hin fórum undir leiðsögn Þorbjargar Skarphéðinsdóttur niður í hest-fjárhús. Sýndi hún okkur bæði hesta, lítil lömb og jarmandi „mömmur“. Dvöldum við þar góða stund og höfðum mikla ánægju af. Fórum svo að litast um eftir „aðal-göngu-mönnunum“ og er þeir fóru að nálgast Lyngholt tókum við á rás upp að húsinu. Heima við beið okkar kaffi og afbragðs veitingar í boði Brynju og Skarpa. Félagar nutu svo veitinganna og röbbuðu saman af sinni alkunnu snilld og voru glaðir, kátir og ánægðir með ferðina í Lyngholt og samveruna við ábúendur. Veður var gott, logn en sólarlítið og aðeins kul í lofti. Vegmóðir áttu skemmti- og eftirminnilegan dag í lok vetrarstarfsins árið 2010-2011.
Félagar sem mættu voru: Bói, Inga, Ninna, Dolli, Sigga Ósk, Karl Óskar, Íris, Hannes, Gunnar Már, Telma, Reynir, Svana, Ásta María, Obba, Jóh. Þórólfur, Þóró, Berglind, Ásgeir Hilbert, Sólveig, Hörður, Sævar og að sjálfsögðu Brynja, Skarpi, Jónas Hilbert og Þorbjörg.
Föstudagur 17. júní 2011
Lýðveldisbörn hittust á Hakinu við Almannagjá til að taka þátt í hátíðarhöldum lýðveldisbarna, sem sé, þeirra sem voru á Þingvöllum þegar lýðveldi Íslands var stofnað 17. júní 1944. Aðalskipuleggjandi var Þór Jakobsson, veðurfræðingur. Gengið var niður Almannagjá undir lúðrablæstri og numið staðar við Lögberg. Þar söng Karlakór Kjalnesinga og Þór hélt smá tölu, einnig var sýnd glíma. Gengum við Ninna, Bói og ég niður á bílastæðið fyrir neðan Almannagjá en Inga og Jóh. Þórólfur gengu upp Almannagjá að ná í bílana. Fórum sem sagt „upp og niður“ brekkuna. Veður var gott og var hressandi að vera úti og anda að sér ómenguðu súrefni við jafn hátíðlegt tækifæri!
Lýðveldisbörnin og Vegmóðsfélagarnir sem mættu voru : Bói, Ninna, Jóhannes Þórólfur og Obba en Inga var aðstoðarmaður og vatns-og bananaberi!
E.s. Fyrir þá sem ekki vita þá kosta kr. 200.- að létta af sér vatni á Hakinu!