2011-12

Haust 2011

Sunnudagur 9. október 2011

Fyrsta haustganga Vegmóðs var í Laugarnesinu í svölum vindi sem blés af hafi. Heldur voru félagar óvanir kuldanum svo gangan varð ekki mjög löng! Á eftir var farið í göngukaffi til Svönu og Reynis. Fínar veitingar og hlýtt viðmót. Var ekki annað að sjá en Vegmóðfélagar væru glaðir að hittast og segja sögur af ferðalögum sumarsins. Það sannast sí og á að maður er manns gaman. Fram fór kaffidragelsi og gengu allir mánuðir út nema apríl sem „fyrstur kemur, fyrstur fær“! Í desember er ráðgert að fara í Jólaþorpið í Hafnarfirði og fá sér hressingu þar í nágrenninu. Maíganga og kaffi verður ákveðið síðar.

Þeir sem mættu voru: Kalli, Fanney Fjóla, Ninna, Svana, Reynir, Ásta María, Sólveig, Bói, Inga og Obba.

Sunnudagur 11. desember 2011

Vegmóðsfélagar hittust í Berjarima kl. 11.00. Gott veður, logn og snjór yfir öllu. Eftir göngu var boðið upp á frábært meðlæti hjá Ástu Maríu. Orðið jólalegt hjá þeim mæðgum. Notaleg stund með skemmtilegu fólki léttir lund og fær blóðið til að renna þegar hláturinn hristir allan kroppinn og kjálkavöðvar styrkjast. Til mikillar ánægju birtust senuþjófar á staðnum, Fanney Fjóla og Lóa Lind Írisar-og Karlsdætur. Við fórum í „krúttgírinn“ og höfðum ekki af þeim augun, enda svo sætir 6 mánaða tvíburar.

Sérstaklega skal tekið fram að þeir sem „gengu“ voru Inga, Svana og Jóh. Þórólfur. Við hin gengum úr bílunum og upp á 2. hæð! Það voru Karl Óskar, Íris, Fanney Fjóla og Lóa Lind (á þeim var haldið!), Ninna, Dolli, Reynir og Obba. Á staðnum voru Ásta María og Svana Birna. 

Vor 2012

Sunnudagur 5. febrúar 2012 - Þorrablót Vegmóðs SJÁ MYNDIR

Safnast var saman í Logalandi og nokkrir félagar tóku á rás á slaginu 11:00. Aðrir gengu svo ýmsar göngur og sumir ekki neitt! Veður gott en launhált svo allur var varinn góður. Aðalatriðið var þó að allir komu sér í hús og gæddu sér á þorramat (sem hver kom með fyrir sig) og eplaköku í eftirrétti (frá Kalla). Inga bauð svo upp á rófustöppu og kaffi eins og fylgir því að „halda blótið“. Alveg er ómissandi að hittast svona og rabba og rifja upp eitt og annað frá liðnum dögum. Þökkum góðar móttökur húsráðanda og ljúft viðmót.

Þeir sem blótuðu þorra voru: Obba, Þóró, Sólveig, Jóh. Þórólfur, Svana, Reynir, Ninna, Dolli, Sigga Ósk, Jóndi, Inga, Hanna, Rakel Anna, Skarphéðinn Ó., Valgerður, Kalli, Íris, Rún, Hannes, Fanney Fjóla og Lóa Lind.

Sunnudagur 29. apríl 2012 SJÁ MYNDIR

Lokaganga Vegmóðs vorið 2012.- Komið var saman í Stjörnugróf fyrir utan hjá Írisi og Kalla. Veður gott, hlýtt á móti sól en kalt með sól í bakið og vind í fangið. Genginn var göngustígu í vestur og er þá komið í land Kópavogs. Þeir hressustu gengu langt og inn að gróðurreit sem þeir sem styttra fóru litu ekki augum. Hressandi var samt útiveran og samveran með fólkinu. Á eftir var kaffi og frábærar kræsingar hjá hjónunum Írisi og Kalla. Allt var mjög heilsusamlegt og alveg frábært á bragðið. Heimabakað brauð og allt eftir því. Félagar voru kátir og glaðir í sólskininu og ákveðið var að hittast aftur í haust. 

Göngumenn: Svana, Reynir, Ásta María, Sólveig, Jónas Hilbert, Þorbjörg S., Hörður, Inga, Kalli, Lóa Lind, Hannes, Obba og Jóh. Þórólfur. Hanna, Óskar Ingi, Rakel Anna og Yngvi Ástmundur komu í kaffið og Íris og Fanney Fjóla voru heima.

© Sævar Hilbertsson 2011Email Meshil@simnet.is