Í tilefni 20 ára afmælis Vegmóðs var gefið út rit. Hér má sjá formála aðalritara:
Vegmóður er 20 ára! Fyrir 10 árum birtist á prenti afrek Vegmóðsfélaga gegnum fyrstu 10 árin. Núna á 20 ára afmælinu þótti tilheyra að sameina 10+10 árin í endurbættri útgáfu. Og hér sjáið þið þetta glæsta rit í allri sinni dýrð! Ekki hef ég fengið Nóbelsverðlaunin enn, þótt skrítið sé! Ég gefst ekki upp! Ég hlýt að fá þau næst! Í "göngufjarveru" minni vegna lappabrots, liðbandaslits, magaverkja og annars krankleika skráði (Guðrún) Fanney (Óskarsdóttir), vararitari Vegmóðs, allt sem Vegmóður afrekaði á þeim tíma. Ætti ég að setja ritið á markað í jólabókaflóðinu? Nei og þó "Uppgjör Vegmóðs" gæti orðið metsölurit!! Sævar (Hilbertsson) tók af skarið: "Ég set þetta á tölvu og síðan látum við fjölfalda ritið." Búið og basta! Ég lagði til að við græddum á ritinu og færum til Ástralíu! Nei annars! Verð afmælisritsins fer eftir útlögðum kostnaði við fjölföldun og bókband. Nú er ég komin í vandræði! Annaðhvort verður formálinn ævisagan eða hér kemur punkturinn yfir i-ið! Ég vel punktinn! Vegmodur H88-V96
Skrifað 17. júní 1988,
Þorbjörg Hilbertsdóttir,
aðalritari Vegmóðs!
Hér má nálgast ritið (að hluta til) sem Microsoft Word skjöl:
Hér má líka nálgast skrifin frá 1988-2012: