Copyright 2010 Sigurður K Kristjánsson
Fæddur og uppalinn á Þingeyri við Dýrafjörð.
Var skólaður í Grunnskóla Þingeyrar og Héraðskólanum að Núpi.
Byrjaði snemma að vinna í frystihúsi Kaupfélags Dýrfirðinga bæðið sem almennur starfsmaður og svo sem lyftara maður.
1987 lá leiðin í Tengil sf og var þar í 11 ár við öll þau störf sem rafvirkjar þurfa að vinna í littlu sjávarþorpi, sem er má segja öll flóra rafiðnaða greina.
1998 Var ég ráðinn til Snerpu ehf ísafirði sem var mjög vaxandi tölvufyrirtæki á Vestfjörðum. Þar starfaði eg við almennar tölvuviðgerðir, uppsetningar og viðhald netkerfa, ásamt internet tenginga ofl sem gera þurfti.
2002 Fór ég að vinna hjá Véla og bílaþjónustu Kristjáns ehf  þingeyri við almennar bifreiðaviðgerðir og skipaviðgerðir ásamt vinnu í málmsteypu fyrirtækisins og mæli ég með að fólk skoði
heimasíðu VBK þar sem mikill fróðleikur er þar um vinnubrögð tæki og tól fyrri tíma. Samhliða vinnu í VBK var ég hjá Pólnum ehf Ísafirði og vann þar við öll almenn störf rafvirkja, viðgerðir og nýlagnir í heimili og fyrirtæki ásamt bátum, bílum, iðnaðarvélum og verkfærum.
Haustið 2008 Fluttist ég til Sauðárkróks og hóf vinnu á bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga og þá aðallega í vörubíladeild. Við almennar viðgerðir á vörubílum og öðrum vinnuvélum, tölvulestur bifreiða og viðgerðir á rafölum og störturum bifreiða og véla. og starfa þar þegar þetta er ritað.
Svo í grófum dráttum er þetta starfsferill minn að þessum tímapunkti.

Starfsferill
This Site Spun with Virtual Mechanics SiteSpinner