|
Þetta
kann ég
Ég
kann að:
Standa Já, núna kann ég
að standa á afturlöppunum, svona líka fim.
Hægri og vinstri Jamm, þetta kann
ég nokkurn veginn. Það þarf kannski aðeins
að pússa það til hjá mér, en engu að
síður komið vel á leið:o)
Leita: Núna kann ég líka
að leita. "Mamma" felur nammi hér og þar á
meðan ég bíð kyrr inni í herbergi og svo
þegar að hún kallar á mig þá kem
ég á fleygiferð og fer að leita. Rosalega dugleg:)
Sitja
Liggja
Vera kyrr
Heilsa
Suss (En
þá er ég að gera eitthvað sem að ekki
má og á að hætta því undir eins)
Gjörðu svo vel
(þá
má ég byrja á matnum)
Svo kann ég
að sækja bangsa eftir beiðni:)
Ef að "mamma" segir
meee, þá kem ég með kindina. Ef
að hún segir mjááá,
þá kem ég með ljónið. Ef að hún
segir muuu, þá kem ég með
kúnna mína. Allt voða gaman. Geri þetta nú
samt ekki nema að ég sé í stuði til að
ná í dót.
Ég skil þegar að
"mamma" segir út að labba,
þá hleyp ég að útidyrunum og til
baka, að reka á eftir "mömmu", til skiptis.
|