Ég fæddist þann 13. apríl 1997. Mamma (Sigríður Jónsdóttir)var sett af stað mánuði fyrir tímann vegna þess að hún var orðin mikið lasin og komin í hættu. Þannig að hún var sett af stað 12 apríl og ég kom í heiminn þann 13. Mikið urðu mamma og pabbi (Baldur Jóhannsson) glöð þegar að þau fengu að sjá mig. Var sko alveg lang fallegastur. Var með mikið hár sem að stóð allt beint upp í loftið, ljósmæðurnar á deildinni sögðu að ég væri alveg eins og lukkutröll. Enda var ég kallaður það. Ég þurfti að vera aðeins á vöku en var sko fljótur að jafna mig, vildi bara komast heim sem fyrst.
Síðan þá hef ég sko dafnað vel. Mamma og pabbi skildu þegar að ég var lítill og mamma kynntist öðrum manni sem að heitir Guðmundur (Gummi). Ég er sko búinn að eignast alveg fullt af systkynum. Árið 2001 eignaðist ég bróðir sem að heitir Friðgeir Nökkvi og árið 2003 eignaðist ég tvíburabræður sem að heita Sebastían og Mikael. Þeir eru 11 mánaða. Hjá pabba á ég svo 2 systkyni, sem að heita Bjarki (2 ára) og Arndís (8 mánaða). Þannig að ég er sko rosa vinsæll stóri bróðir ;o). Konan hans pabba heitir Brynja.
Núna er ég í 2. bekk í Austurbæjarskóla og það er rosa gaman. Ég er alveg rosalega duglegur að læra og kennarinn segir að ég sé sko aldrei lengi að gera það sem að ég á að gera. Það byrjaði pínu brösulega í 1. bekk en síðan þá er ég alveg orðin fluglæs og er núna að læra meira í stærðfræðinni. Bestu vinir mínir heita Páll, Bjartur og Bogi og erum við sko algjörir grallarar. Þeir eru með mér í bekk og við erum alltaf saman. Mér finnst alveg rosa skemmtilegt að leika mér með vinum mínum. Við erum mikið í tölvunni og leikum okkur líka mikið í Lego. Getum endalaust búið til eitthvað flott þar. Mér finnst líka gaman að hlusta á tónlist og er þar Eminem efstur á lista(mömmu til mikillar ama, ekki alveg það sem að henni finnst að ég eigi að vera að hlusta á). Ég er mikið á Akureyri hjá ömmu og afa (er þar núna í verkfallinu) og er búin að eignast vin þar líka. Mér finnst gott að fara þangað og hvíla mig aðeins frá yngri bræðrunum ;o)
Til baka
|
|