Klarínettuleikarafélag Íslands

Heimasíða

 

M Martin Fröst

Klarínettuleikarafélag Íslands
klaris2002@gmail.com

 

Klarínettuhátíð 30. og 31. október 2009

Í tilefni af komu klarínettuleikarans Martins Fröst efnir Klarínettuleikarafélag Íslands til dagskrár dagana 30. og 31. október næstkomandi.

Væntanlegir þátttakendur skrái sig vinsamlega með því að senda tölvupóst á klaris2002@gmail.com

---------

Námskeiðsgjöld:

Kennarar: kr. 20.000 (kennarar geta sótt um styrk í endurmenntunarsjóð FÍH/FíT, vefsljóð: http://www.viska.is/stms/ums1.php

Nemendur utan tónlistarskóla sem styrkja hátíðina og aðrir áhugasamir: kr. 5.000

Miðar á tónleika Martins og Víkings Heiðars eru ekki innifaldir í miðaverðinu en nemendur fá góðan afslátt.

Einnig er minnt á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói fimmtudaginn 29. október þar sem Martin Fröst leikur einleik í klarínettukonsert Mozarts KV 622 en auk þess leikur hljómsveitin forleikinn að Brúðkaupi Fígarós og sinfóníu Mozarts í g - moll KV 550

Sjá nánar: http://www.sinfonia.is/tonleikar/2009/10/29/eventnr/28

---------

Dagskrá:

Föstudagur 30. október kl. 18.00 – 22.00.

Masterclass Martins Fröst í Hátíðarsal FÍH, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík. - Átta nemendur leika fyrir Martin.

Laugardagur 31. október 13.00 – 16.00 – Hátiðarsalur F.Í.H.

Jón Aðalsteinn Þorgeirsson: kynning á nýútgefnu sönglagasafni "Sönglögin okkar” með lifandi tóndæmum.
Sigurður Ingvi Snorrason: kynnig á nýjum samleiksbókum fyrir klarínettukvartett með lifandi tóndæmum.
Rúnar Óskarsson: Look, listen and learn, kynning á námsefni fyrir byrjendur.
Umræður um námsefni fyrir klarínettunemendur.
Haukur Gröndal talar um Balkantónlist.
Sigurður Ingvi Snorrason: Benny Goodman, aldarminning.
Hljóðfærasýning - gömul og ný hljóðfæri.

Laugardagur 31. október 17.00 – Salurinn í Kópavogi

Miðapantanir http://salurinn.is/
Nemendur fá góðan afslátt.

Tónleikar-Martin Fröst og Víkingur Heiðar Ólafsson
Á efnisskránni verk eftir Debussy, Françaix, Poulenc, Brahms og fleiri.

-------------

Síða uppfærð 22. október 2009