
Átak í
söfnun skjala frá íþróttafélögum
miðvikudagur 18.apríl 2012
Í tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta-
og Ólympíusambands Íslands hefur sambandið og
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi
ákveðið að ráðast í átak í söfnun skjala íþróttafélaga og héraðssambanda um
land allt, þannig að þau varðveitist á öruggan hátt og verði aðgengileg á
héraðsskjalasöfnum landsins. Átakið verður kynnt fjölmiðlum miðvikudaginn
18. apríl 2012 og telst formlega hefjast þann dag en þann dag eru 100 dagar
þar til Ólympíuleikar í London hefjast. Stefnt er að því að átakinu ljúki í
janúar 2013 um leið og afmælisári ÍSÍ lýkur og þá verði tekið saman yfirlit
yfir þau skjalasöfn sem eru varðveitt á opinberum skjalasöfnum um land
allt....
Ný heimasíða
þriðjudagur 20. mars 2012
Stofnuð hefur verið ný heimasíða fyrir Héraðsskjalasafn Austur Húnavatnssýslu, þar sem hægt er að skoða ýmsan fróðleik. Opnuð hefur verið líka ljósmyndasíða.... meira....


