Smáskammtalækningar eiga sér langa sögu.
Í dag er þessi grein í mikilli sókn og nýtur sífellt meiri viðurkenningar.
Þetta er 4 ára námslánshæft nám, ef lært er hérlendis.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á upplýsingavef Organon, en það er heiti félags hómópata.
Hómópatar eru aðilar að Bandalagi íslenskra græðara
Hvað er hómópatía?
Hómópatía truflar ekki aðrar læknismeðferðir.
Grundvallaratriði í hómópatíu hafa verið þekkt síðan á tímum forn-Grikkja og felst í að lækna líkt með líku (Similia similibus).
Hippokrates er sá fyrsti sem vitað er til að notaði þannig lækningar, eða um 450 fyrir Krist. Smáskammtalækningar nútímans byggjast
upp á rannsóknum S. Hahnemann (1755-1843) sem var þýskur læknir og efnafræðingur. Hann prófaði allt á sjálfum sér, nemendum sínum og
sjálfboðaliðum, því prófanir eru ekki gerðar á dýrum.
Hómópatía lítur á einkenni sem viðbrögð líkamans við ójafnvægi lífsorkunnar sem valdið geta ýmsum veikindum líkamlegum og andlegum.
Hómópatía hvetur líkamann til að koma jafnvægi á lífsorkuna.
Hómópatía er náttúruleg aðferð til að örva lífsorku líkamans til heilbrigðis. Talað er um heildræna
meðferð þar sem hómópatísk aðferð meðhöndlar manneskjuna sem heild en ekki sem sjúkdómstilfelli eða
til að meðhöndla sjúkdóminn einann og sér
Ábyrgð okkar á eigin heilsu!
Nauðsynlegt er að við tökum sjálf ábyrgð á okkar eigin líkama og heilsu. Góð heilsa felst í líkamlegu og
andlegu jafnvægi. Ef eitthvað fer úrskeiðis eigum við margra úrkosta völ.
Hómópatían er sérlega vel til þess fallin að aðstoða okkur við að endurheimta heilsuna og viðhalda henni.
En fyrst og fremst er ábyrgðin okkar. Að taka ábyrgð á eigin heilsu felur í sér til dæmis að gæta að mataræði,
hreyfingu og heilsu almennt
Hvernig virkar hómópatía ?
Efni notuð í hómópatíu eru á þriðja þúsund talsins úr jurta, steina og dýraríkinu.
Þau eru útþynnt með ákveðnum aðferðum til að ná fram dýpri og mildari virkni.
Vegna hinnar miklu þynningar eru hómópatískir smáskammtar fullkomlega hættulausir, jafnvel fyrir ungabörn,
ófrískar konur og mæður með börn á brjósti. Hún hentar fólki á öllum aldri og getur aðstoðað fólk við fjöldann
allan af vandamálum samhliða að hvetja fólk til að taka ábyrgð á eigin heilsu.
Hómópatía getur haft styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi líkamans og hjálpað til við að komast fyrir endurteknar sýkingar.
Hvernig notuð ?
Smáskammtar eru yfirleitt í litlum sykurtöflum sem látnar eru undir tunguna og látnar bráðna, í vökva eða öðru formi.
Viðeigandi ráðleggingar og val á meðferð fer algerlega eftir hverjum einstaklingi fyrir sig,
því hver einstaklingur er sjálfstæð heild með sínum eigin einkennum..
Ekki skal geyma remedíur í sól, ekki nálægt GSM eða öðrum tækjum sem senda frá sér orkutíðnir, og ekki nálægt sterkri lykt.
Ekki skal snerta töflurnar með höndunum, heldur nota eitthvað áhald. Æskilegt er að neyta ekki fæðu eða drykkjar 10 - 15 mín.
áður eða á eftir.